Landsmönnum utan trúfélaga fjölgar

Tæpur fjórðungur lands­manna standa utan trúfélaga eða hafa ótilgreinda skráningu. Meðlimum fjölgar mest í ásatrúar­félaginu.

Fjölgar mest
Fjölgar mest Mestur vöxtur hefur verið í með­lima­fjölda ása­trú­ar­fé­lags­ins. Mynd: Wikipedia/Haukurth

Lands­mönnum sem standa utan trú- og lífs­skoðunar­félaga eða hafa ótilgreinda skráningu hefur fjölgað um tæplega 3.500 frá 1. desember síðastliðnum. Tæpur fjórðungur lands­manna er ýmist skráður utan trú- og lífs­skoðunar­félaga eða með ótilgreinda skráningu.

Sem fyrr er lang­stærstur hluti lands­manna skráður í þjóð­kirkjuna, tæplega tveir þriðju hlutar lands­manna, alls 229.686 manns. Lítilsháttar fækkun hefur orðið frá 1. desember, um 31 meðlim. Frá 1. desember árið 2019 hefur hins vegar fækkað um rétt tæplega 1.500 manns í þjóð­kirkjunni.

Tæplega 57 þúsund manns eru með ótilgreinda skráningu og hefur fjölgað um ríflega 2.300 manns frá 1. desember síðastliðnum. Frá 1. desember 2019 hefur fjölgað um ríflega 5.500 manns í þeim hópi.

Tæplega 29 þúsund manns eru skráðir utan trú- og lífs­skoðunar­félaga og hefur þeim fjölgað um ríflega eitt þúsund frá 1. desember síðastliðnum og um tæplega þrjú þúsund frá árinu 2019.

Helstu breytingar aðrar á trúfélaga­skráningu eru þær að áfram fækkar þeim sem skráðir eru í zuism trúfélagið. Frá því á síðasta ári hefur þeim fækkað um 185 og eru nú 731 skráðir í félagið. Í desember 2019 voru 1.255 manns skráðir í félagið. Forsvars­menn félagsins lýstu því yfir árið 2015 að þeir hyggðust endur­greiða sóknar­gjöld þeirra sem skráðir væru í félagið og á stuttum tíma skráðu yfir þrjú þúsund manns sig í félagið. Deilur stóðu um stjórn félagsins lengi vel og engin starfsemi hefur verið í því um margra missera skeið, ef starfsemi var þá nokkurn tíma til staðar.

Mest fjölgun hefur orðið í ásatrúar­félaginu á tíma­bilinu, um 257 meðlimi og eru nú ríflega 5.300 manns skráðir í félagið. Meðlimum í lífs­skoðunar­félaginu Siðmennt hefur á sama tíma fjölgað um 228 og eru þeir nú tæplega 4.300.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár