Segir óbilgirnis- og harðlínustefnu hafa verið innleidda eftir að Halldór Benjamín tók við SA

Formaður Eflingar segir atvinnu­rekendur hafa verið hrifna af baráttulatri verkalýðs­forystu. Í Icelandair-málinu hafi ASÍ ekki bara leyst gerendur undan grófu ásettn­ings­broti heldur opnað á að fyrir­tækið fengi umbun í formi fjár­festingar úr lífeyris­sjóðum.

Halldór Benjamín Þorbergsson og Sólveig Anna Jónsdóttir.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son og Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Samsett

„Eitt af því sem gerir ástfóstur Alþýðu­sambandsins við Salek-hugmynda­fræðina enn undarlegra en ella er að samtök atvinnu­rekenda hafa æ minni áhuga á slíku samstarfi. Í tíð Gylfa Arnbjörns­sonar var mikil heiðríkja í samskiptum atvinnu­rekenda við hreyfinguna, en atvinnu­rekendur voru auðvitað hrifnir af baráttulatri verkalýðs­forystu og hugmynda­fræði um að stétta­barátta borgaði sig ekki. Eftir að Halldór Benjamín Þorbergsson tók við sem framkvæmda­stjóri SA árið 2017 hefur þar hins vegar verið innleidd mikil óbil­girnis- og harðlínustefna þar sem öll gömul heiðurs­manna­samkomulög eru virt að vettugi, og hvert tækifærið er nýtt til að láta reyna á réttindi sem áður var sátt um.“

Þetta segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, í annarri grein af fjórum um átökin innan Alþýðu­sambands Íslands (ASÍ) sem hún birtir um þessar mundir á Kjarnanum. Sá Halldór Benjamín sem hún nefnir er Þorbergsson og hefur verið framkvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífsins (SA) frá því síðla árs 2016.

Símtal frá Boga Nils í Drífu breytti stefnunni

Að sögn Sólveigar Onnu er skýrasta dæmið um þessa stefnu, og þróun, það þegar Icelandair Group, fyrr­verandi vinnu­staður Halldórs Benjamíns, ákvað að segja flug­freyjum upp störfum í miðri kjara­deilu sumarið 2020 með hætti sem hún segir að hafi gengið í berhögg við ákvæði laga um stéttar­félög og vinnu­deilur. „Tilgangur þessarar aðgerðar, sem SA studdi opinber­lega, var augljós­lega ekki bara sá að knésetja flug­freyjur heldur að opna á nýja laga­framkvæmd í kjara­deilum sem tæki gildi yfir allan vinnu­markaðinn. Þar er auðvitað í bakgrunninum sár gremja SA yfir árangusríkum verkfalls­aðgerðum Eflingar­félaga, nokkuð sem gengur gegn öllum þeim hugmyndum um stétta­samvinnu og afnám verkfalls­aðgerða sem höfðu ráðið áratugum saman og atvinnu­rekendur höfðu skiljanlega bundið miklar vonir við.“

Miðstjórn ASÍ ákvað að sækja málið af fullum þunga fyrir Félags­dómi og þeirri afstöðu var fylgt eftir með yfir­lýsingum frá Drífu Snædal, þáverandi forseta ASÍ, um að ekkert yrði slegið af grunn­prinsippum þrátt fyrir að Icelandair glímdi við neyðar­ástand vegna kórónu­veiru­kreppunnar.

Sólveig Anna segir að þessi afstaða Drífu hafi breyst tveimur vikum síður. „Í stað þess að fylgja máls­sókninni eftir, og fá stað­festingu á því að uppsagnirnar væri ólöglegar, ákvað ASÍ skyndi­lega í samráði við Magnús Norðdahl lögfræðing sambandsins að ganga til viðræðna við SA og Icelandair um að fara allt aðra leið. Þar var svo sannarlega „slegið af grunn­prinsippum“. Var þessi stefnu­breyting gerð í kjölfar þess að Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair hringdi í Drífu Snædal. Bogi Nils fékk sínu framgengt hratt og örugglega og skilaði það sér í sameiginlegri yfir­lýsingu SA, ASÍ, Flugfreyju­félagsins og Icelandair sem birt var 17. september 2020.“

Umbunað fyrir gróft ásetningsbrot

Með þessari yfir­lýsingu hafi ASÍ leyst Icelandair Group og SA alfarið undan hótun um málsókn fyrir Félags­dómi. „Í staðinn lýstu Icelandair og SA því yfir að þau „viðbrögð“ að segja upp flug­freyjum í miðri kjara­deilu væru „hörmuð“ þar sem þau væru „ekki í samræmi við þær góðu samskipta­reglur sem aðilar vinnu­markaðarins vilja viðhafa“. Með þessari yfir­lýsingu leyfði Alþýðu­sambandið brotlegu íslensku fyrirtæki í bandalagi við lands­samtök atvinnu­rekenda að uppnefna mikil­vægustu lagalegu réttar­vernd vinnandi fólks í landinu, lög sem samþykkt voru af Alþingi, „samskipta­reglur“.“

Þá hafi hinir brotlegu fengið að ganga frá málinu án afleiðinga. „Reyndar er það ekki rétt að segja að málið hafi verið afleiðinga­laust, því Icelandair stóð á þessum tíma í mjög umtöluðu hlutafjár­útboði. Tilgangur fyrir­tækisins með að sækjast eftir þessari yfir­lýsingu var augljós­lega sá að ryðja braut fyrir hiksta­lausa þátttöku lífeyris­sjóða í því útboði, sem einmitt varð raunin. Þannig má segja að Alþýðu­sambandið hafi tryggt afleiðingar fyrir hinn brotlega í málinu - en þó ekki refsingu heldur umbun.“

Því hafi ASÍ ekki einungis leyst gerendur undan öllum afleiðingum af einu grófasta ásetnings­broti gegn íslenskum vinnu­rétti sem sést hefur á Íslandi áratugum saman heldur opnaði sambandið dyrnar fyrir það að fyrir­tækið fengi sérstaka umbun með ríkulegum fjár­festingum úr eftir­launasjóðum launa­fólks. „Efling hélt uppi gagnrýnum spurningum um þessa ákvörðun en við þeim fengust aldrei nein málefnaleg svör. Úr varð að stjórn Eflingar samþykki gagnrýni og birti á vef félagsins. Við það sat.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár