Kvótakerfið leikur danska trillukarla grátt

Danskir trillu­karlar og eigendur smábáta óttast að kvóta­kerfið sé að ganga af smábáta­útgerðinni dauðri. Danskir smábáta­sjómenn eru nú helmingi færri en þegar kvóta­kerfinu var komið á fyrir tíu árum og löndunar­höfnum smábáta hefur fækkað. 46 höfnum þar sem smábátar lögðu upp afla hefur verið lokað á undan­förnum tíu árum og í 56 höfnum til viðbótar landa nú helmingi færri en árið 2005. Nú eru skráðar tæplega 600 löndunar­hafnir í landinu öllu en í rúmlega 300 þeirra kemur aldrei fiskur á land. Danskir smábáta­sjómenn eru nú um 1800, voru 3300 fyrir tíu árum.

Árið 2005 ákvað danska ríkis­stjórnin (Venstre og Konservative) með stuðningi Danska Þjóðar­flokksins að afla­kvótar yrðu framvegis eign útgerð­anna. Kvótinn sem kom í hlut hverrar útgerðar (mjög oft í eigu eins manns) var byggður á aflamagni undan­farinna ára og almenn sátt um að sá háttur yrði hafður á. Jafnframt yrði eigendum kvótans heimilt að selja hann. Yfir­lýstur tilgangur stjórnarinnar með þessu fyrir­komulagi var að þannig skapaðist möguleiki fyrir þá sem vildu hætta útgerð að fá arð af ævistarfinu, eins og það var orðað, og jafnframt hefðu aðrir sjómenn tækifæri til að auka við sig og renna þannig styrkari stoðum undir útgerðina.

Töldu að fjórðungur myndi selja kvóta og báta

Danski sjávar­útvegs­ráðherrann sagði í viðtali árið 2005, þegar kvóta­kerfið var kynnt, að búast mætti við að fjórðungur smábáta­eigenda myndi ákveða að selja bæði kvóta og báta. Ráðherrann sagði þetta byggt á athugunum og viðtölum við sjómenn um allt land. Hann sagði jafnframt að margir smábáta­eigendur teldu sig þurfa aukinn kvóta til að geta haldið rekstrinum áfram og þeim gæfist nú tækifæri til þess.

Mun fleiri vildu selja

Eftir að kvóta­lögin voru sett og sala heimiluð kom í ljós að athuganir og ályktanir sjávar­útvegs­ráðuneytisins reyndust ekki nærri lagi. Mun fleiri vildu selja bæði kvóta og báta en ráðuneytið hafði gert ráð fyrir. Dönsku sjómanna­samtökin höfðu stutt lögin um kvóta­söluna og þar á bæ kom þetta líka á óvart. Formaðurinn sagði að það sem hefði gerst í land­búnaðinum á fimmtíu árum hefði einungis tekið sex til sjö ár í sjávar­útveginum.

Færri og stærri

Eins og áður sagði var það tilgangur kvóta­laganna að skapa nýja möguleika, bæði fyrir þá sem vildu hætta sjómennskunni og líka hina sem vildu styrkja stöðu sína með auknum kvóta. Þetta markmið hefur vissulega náðst, að minnsta kosti að nokkru leyti. Nú eru mörg stór útgerðar­fyrirtæki sem standa mun traustari fótum en áður. Margir stór­útgerðar­menn eru nú meðal þúsund ríkustu íbúa Danmerkur og tveir þeirra með þeirra hundrað ríkustu. Fyrir tíu árum var var enginn útgerðar­maður á þessum þúsund manna lista.

Farið í kringum lögin

Þegar kvóta­lögin voru sett voru í þeim ákvæði sem áttu að takmarka kvótaeign, til dæmis tilteknum tegundum á ákveðnum svæðum. Þetta átti að tryggja „hæfilega dreifingu“ eins og það var orðað. En á sama hátt og vatn finnur sér ætíð farveg finna mennirnir oftast leiðir til að snúa á laga­bókstafinn. Það eru sem sé margir sem eiga kvóta, á pappírnum, þótt aðrir séu hinir raun­verulegu eigendur. Þeir sem skráðir eru fyrir kvóta, sem aðrir nýta gegn greiðslu, ganga hér í Danmörku undir nafninu sófa­sjómenn og þeir sem þannig geta bælt fletið skipta, að talið er, nokkrum hundruðum.

Afleiðingarnar

Eins og getið var hér að framan standa margar stórar útgerðir nú mun traustari fótum en áður en kvóta­lögin voru sett árið 2005. Jafnframt því hefur fisk­vinnsla og verkun á mörgum stærri stöðum, sérstak­lega á Jótlandi eflst og styrkst. Þetta hefur þýtt meiri hagkvæmni í vinnslunni og bætt samkeppnis­hæfni sjávar­útvegarins, ekki síst í útflutningi.


En afleiðingarnar hafa líka orðið aðrar. Fram kom í upphhafi þessa pistils að smábáta­sjómönnum hefur fækkað mikið, fjölmörgum höfnum hefur verið lokað og margar aðrar eru vart svipur hjá sjón saman­borið við það sem áður var. Þetta þýðir minna og fábreyttara mannlíf, ýmis starfsemi sem fylgdi smábáta­útgerðinni og bryggju­lífinu er ekki lengur til staðar, það þýðir færri vinnandi hendur. Ekki eru til neinar tölur um þau störf sem þannig hafa horfið og ekki heldur hvaða áhrif þetta hefur haft á fólks­flutning frá smærri stöðum við strendur landsins.

Nær útilokað fyrir þá sem vilja byrja

Formaður danska sjómann­sambandsins sagði, í viðtali við blaðið Information fyrir skömmu, að alvarlegustu afleiðingar kvóta­kerfisins og þeirrar „kvóta­verðbólgu“ sem henni hefði fylgt væri sú staðreynd að nær ókleift væri fyrir unga menn að hasla sér völl í greininni. Það bæri dauðann með sér sagði formaðurinn. „Ef engin endurnýjun er í greininni endar það bara á einn veg“. Hann benti jafnframt á að margir, og kannski flestir, smábáta­sjómenn gætu ekki risið undir síhertum kröfum varðandi öryggi, meðferð fisksins o.fl o.fl. Stjórn­völd yrðu að opna augun áður en það yrði of seint.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár