Game of Thrones eru mest „stolnu“ sjónvarpsþættir sögunnar

Sjónvarps­þátta­röðin Game of Thrones snýr aftur á skjáinn hjá HBO sjónvarps­stöðinni í kvöld, en Stöð 2 hefur þættina til sýninga hér á landi. Samkvæmt umfjöllun frétta­miðilsins Quartz, tróna þættirnir efst á vafasömum lista yfir mest niðurhalaðasta sjónvarps­efni sögunnar.

Til þess að bregðast við ólöglegu niðurhali á þáttunum hefur HBO brugðið á það ráð að frumsýna fyrsta þáttinn í fimmtu seríu Game of Thrones samtímis í mörgum löndum, og er Ísland þar á meðal. Fyrsti þátturinn verður sýndur á Stöð 2 klukkan eitt í nótt. Viðbragð HBO má rekja til óþolinmæði fjölmargra aðdáenda þáttanna að bíða eftir sýningu þeirra í sínu heima­landi. Framvegis verða svo þættir seríunnar sýndir á sama tíma og í löndunum og í Banda­ríkjunum.

Samkvæmt umfjöllun Quartz hefur sjónvarps­þáttunum verið niður­halað í yfir 200 löndum víðs vegar um heiminn. Þá hefur þáttum úr fyrri fjórum seríum þáttanna verið niður­halað meira en 7 milljón sinnum á síðastliðnum tveimur mánuðum. Aðdáendur þáttanna í Brasilíu voru þar sérflokki, en þar var þáttunum niður­halað ólöglega í hátt í milljón skipti. Frakkar voru næst duglegastir við að niðurhala sjónvarp­þáttum Game of Thrones ólöglega á eftir Brasilíu­mönnum,

Til saman­burðar má nefna tölur yfir niðurhal á öðrum vinsælum sjónvarps­þáttum sem hafa notið alþjóðlegrar hylli sjónvarps­áhorfenda á sama tímabili. Á síðastliðnum tveimur mánuðum hefur þáttum í sjónvarps­þátta­röðinni The Walking Dead verið niður­halað 5,7 milljónum sinnum. Þá hefur þáttunum um Walter White og Jesse Pinkman í Breaking Bad sjónvarp­þátta­röðinni verið niður­halað í 3,8 milljónir skipta, sjónvarps­þættirnir Vikings koma þar á eftir með 3,4 milljónir niðurhöl, og þáttunum vinsælu um Frank Underwood, House of Cards, var niður­halað í 2,8 milljónir skipta á síðastliðnum tveimur mánuðum.

Til marks um eftir­væntinguna sem ríkir eftir nýjustu þáttaröð Game of Thrones var greint frá því í fjöl­miðlum í dag að fyrstu fjórir þættirnir í seríunni hafi nú þegar lekið á netið, og séu meðal annars aðgengi­legir ólöglega í gegnum Popcorn-Time deiliskrár­forritið, sem margir álíta að sé ein helsta ógn gegn höfunda­vörðu sjónvarps­efni í heiminum í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár