Kjarninn mælir með: Snillingurinn John Nash, Xavi og hinir hæstlaunuðu

Við lifum sögulega tíma, ekki aðeins hér á landi, heldur ekki síðar erlendis. Ritstjórn Kjarnans fylgist vel með gangi mála, og má hér að neðan finna umfjallanir sem að mati ritstjórnar eru vandaðar, áhuga­verðar og skemmtilegar, hver með sínum ólíka hætti.

„Snillingurinn“ John Nash


„Þessi náungi er snill­ingur.“ Þetta var það eina sem stóð í með­mæla­bréfi John Nash, þegar hann sótt­ist eftir því að kom­ast inn í hag­fræði­deild Princeton háskól­ans. Nash og kona hans Alicia, lét­ust í bílslysi, 24. maí síð­ast­lið­inn. Nash var 86 ára gam­all og kona hans 82 ára. Nash glímdi í ára­tugi við geð­klofa, en hann fékk Nóbels­verð­launin í hag­fræði 1994 fyrir kenn­ingar sínar í leikja­fræði stærð­fræð­innar. Kvik­myndin A Beauti­ful Mind, sem fékk Ósk­arsverð­launin 2002, fjallar um ævi Nash, hæfi­leika hans á sviði stærð­fræði og bar­átt­una við geð­klofa. John Moriarty, pró­fessor við Manchester háskóla, skrifar um Nash á vef breska rík­is­út­varps­ins BBC, þar sem hann segir að vinna Nash nýt­ist dag­lega við hin ýmsu úrslausn­ar­efni, meðal ann­ars þegar kæmi að því að leysa vanda Grikk­lands.

Merki­legur maður sem fjallað er um með áhuga­verðum hætti.

Leikstjórnandinn hættur


Xavi Hernandéz, leik­stjórn­and­inn frá­bæri hjá Barcelona, hefur leikið sinn síð­asta heima­leik fyrir félagið. Hann hefur leikið 826 leiki fyrir félagið á sautján keppn­is­tíma­bilum, og vann 25 titla með félag­inu, auk þess hefur hann tvisvar orðið Evr­ópu­meist­ari með Spáni og einu sinni Heims­meist­ari. Tveir leikir eru enn eftir af tíma­bil­inu, úrslit í Spán­ar­bik­arnum og Meist­ara­deild Evrópu. Síðasti heima­leikur Xavi var 2-2 jafn­tefli gegn Deportivo. Árið 2011 birt­ist ítar­legt við­tal við Xavi í The Guardian, þar sem hann fjall­aði um sýn sína á lífið og til­ver­una, og vita­skuld fót­bolt­ann. Hann hefur alla tíð verið mik­ill aðdá­andi Paul Scholes, og segir að reita­bolti sé besta æfingin af öllum.

Ótrúlegur ferill og magnað viðtal við frábæran leikmann.


This is how Xavi received the Liga 2014/15 trophy #campionsFCB #6raciesXavi pic.twitter.com/aPOq6pX3S4


— FC Barcelona (@FCBarcelona) May 23, 2015


Þeir launahæstu


New York Times tók saman upp­lýs­ingar um launa­hæstu for­stjóra Banda­ríkj­anna setti upp með graf­ískum hætti. Upp­lýs­ing­arnar sýna glögg­lega svim­andi háar tölur, og einnig hvernig þær skipt­ast í grunn­laun, bónusa og kaup­rétti. Aðeins ein kona kemst á lista yfir launa­hæsta fólkið, það er Marissa A. Mayer, for­stjóri Yahoo.

Góð grafísk fram­setning.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár