Leitað á heimilum flugmannsins - flugstjórinn reyndi að brjótast inn með exi

Búið er að gera húsleit á heimilum flug­mannsins Andreas Lubitz, sem er sagður hafa brotlent Germanwings-þotu viljandi í frönsku ölpunum fyrr í vikunni. Þýska blaðið Der Spiegel greinir frá því að fundist hafi miklar vísbendingar um að hann hafi átt við geðræn vandamál að stríða.

Lubitz hafði íbúð til umráða í Dusseldorf og hafði einnig aðsetur í húsi foreldra sinna í Montabaur, um 100 kílómetra norður af Frankfurt. Þýskir fjöl­miðlar greina frá því að leitað hafi verið á báðum stöðum seint í gærkvöldi og margir hlutir fjar­lægðir, til að mynda tölva. Talskona lögreglunnar í Dusseldorf hefur borið til baka fréttir af því að miklar eða mikil­vægar vísbendingar hafi fundist. Lögreglan hyggst halda blaðamanna­fund klukkan 11.

Frétta­síðan Bild vitnar í lækna­skýrslur og segir að Lubitz hafi átt við mikið þunglyndi að stríða, og það hafi verið af þeim sökum sem hann tók langt hlé frá námi á meðan á þjálfun hans hjá Lufthansa stóð. Þar segir einnig að hann hafi enn verið í meðferð við þunglyndi. Ekkert af þessu hefur þó verið staðfest opinber­lega.

Bild segir einnig að flug­stjórinn, sem var læstur úti úr flug­stjórnar­klefanum eftir að hafa farið fram á klósettið, hafi reynt að brjóta niður dyrnar að klefanum með exi. Það megi ráða af upptökum úr flugrita vélarinnar.

Hinn flug­ritinn er enn ófundinn, en hylki utan af honum fannst í fyrradag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár