Mynd: Emrah TURUDU

Framlag Kjarnans hingað til á árinu 2018

Kjarninn er fimm ára í vik­unni. Af því til­efni verður rifjað upp það helsta sem hann hafði til mál­anna að leggja á hverju því starfs­ári sem hann hefur verið til, á hverjum degi í þess­ari viku. Í dag er farið yfir árið 2017.

Á meðal þeirra mála sem Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um á árinu 2018 er hinn mikli órói sem er til staðar á vinnu­mark­aði, meðal ann­ars vegna mjög bættra kjara æðstu ráða­manna veórígna úrskurða kjara­ráðs. Þeir hafa tryggt ráð­herrum, þing­mönnum, aðstoð­ar­mönnum ráð­herra og dóm­urum tug­pró­senta launa­hækk­anir af kjara­ráði, sem sömu aðilar skip­uðu. Þing­menn hækk­uðu til að mynda um 44,3 pró­sent í launum á kjör­dag 2016. Í stað­inn voru laun kjara­ráðs hækkuð af stjórn­mála­mönn­um.

Þá greindi Kjarninn frá því að póli­tísk ákvörðun hefði verið tekin um það að færa for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja undan kjara­ráði með þeim afleið­ingum að stjórnir sömu fyr­ir­tækja, skip­aðar af stjórn­mála­flokk­um, ákváðu að hækka laun útvarps­stjóra um 16 pró­sent í 1,8 millj­ónir króna á mán­uði, laun for­stjóra Isavia um 20 pró­sent í 2,1 millj­ónir króna á mán­uði, laun for­stjóra Lands­virkj­unar um 32 pró­sent upp í 2,7 millj­ónir króna á mán­uði, laun for­stjóra Íslands­pósts um 17,6 pró­sent í 1,7 millj­ónir króna á mán­uði og laun for­stjóra Lands­nets um tíu pró­sent í 1,8 millj­ónir króna á mán­uði.

Þetta var gert þrátt fyrir að Bene­dikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefði beðið stjórn­ar­menn sér­stak­lega um það, bæði skrif­lega og í eigin per­sónu, að sýna hóf­semi í launa­á­kvörð­unum for­stjór­anna.

Kjarninn fjall­aði einnig um að for­stjórar fyr­ir­tækja í Kaup­höll væru með nálægt fimm millj­ónum króna að með­al­tali í mán­að­ar­laun. Það eru 17-18föld lág­marks­laun. Umtals­vert launa­skrið er að eiga sér stað þar.

United Silicon

Kjarninn fjall­aði um mál­efni United Silicon, en félagið var sett í þrot 22. jan­úar 2018.

Um miðjan febr­úar náð­ist sam­komu­lag milli skipta­­stjóra þrota­­bús United Silicon og Arion banka um að bank­inn fái að ganga að sínum veðum og taka yfir allar helstu eignir félags­­ins.

Hlut­hafar og kröf­u­hafar félags­­­­ins hafa þurft að afskrifa stórar upp­­­­hæðir vegna United Silicon það sem af er þessu ári. Arion banki hefur til að mynda þegar afskrifað 4,8 millj­­­­­arða króna vegna verk­efn­is­ins. Bank­inn tók yfir hlutafé í United Silicon og bók­­færir virði eign­anna á 5,4 millj­­arða króna. Auk þess eru úti­stand­andi lánslof­orð og ábyrgðir upp á um 900 millj­­ónir króna.

Arion banki ábyrgð­ist rekstur United Silicon frá því að félagið var sett í greiðslu­­stöðvun og fram að gjald­­þroti og borg­aði um 200 millj­­­­­ónir króna á mán­uði vegna rekstur þess á því tíma­bili.

En fleiri hafa tapað stórum fjár­­hæð­­um. Frjálsi líf­eyr­is­­­­­sjóð­­­­­ur­inn, sem fjár­­­­­­­­­festi 1.178 millj­­­­­ónum króna í United Silicon, hefur fært niður virði þeirra hluta­bréfa og skulda­bréfa sem sjóð­­­­­ur­inn á í félag­inu um 90 pró­­­­­sent. Um var­úð­­­­­ar­n­ið­­­­­ur­­­­­færslu er að ræða, og nemur hún rúmum millj­­­­­arði króna. Sömu sögu er að segja af Eft­ir­­­­­launa­­­­­sjóði félags íslenskra atvinn­u­flug­­­­­manna (EFÍA). Þar nemur nið­­­­­ur­­­­­færslan einnig 90 pró­­­­­sent­­­­­um. Líf­eyr­is­­­­­sjóð starfs­­­­­manna Bún­­­­­að­­­­­ar­­­­­banka Íslands (LSBÍ) fjár­­­­­­­festir einnig í verk­efn­inu. Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­­­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­­­­un­­­­­ar­­­­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­­­­stöðvum hans í Borg­­­­­ar­­­­­túni.

Þá setti líf­eyr­is­­­­sjóð­­­­ur­inn Festa 875 millj­­­­ónir króna í United Silicon. Hann hefur einnig fram­­­­kvæmt var­úð­­­­ar­n­ið­­­­ur­­­­færslu vegna verk­efn­is­ins.

Magnús Garðarsson, stofnandi og fyrrverandi forstjóri United Silicon, er ekki í góðum málum.
Magnús Garð­ars­son, stofn­andi og fyrr­ver­andi for­stjóri United Silicon, er ekki í góðum málum.

Enn hleðst utan á þetta dæma­lausa mál. Í lið­inni viku var greint frá því að þrotabú United Silicon hefur stefnt stofn­anda og fyrr­ver­andi for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, Magn­úsi Garð­ars­syni, öðru sinni fyrir meint fjár­svik hans. Þrota­búið hafði áður stefnt Magn­úsi í byrjun árs 2018 vegna meints fjár­dráttar upp á rúm­lega hálfan millj­arð króna. Sam­kvæmt skýrslu sem KPMG vann fyrir þrota­bú­ið, og Kjarn­inn greindi ítar­lega frá í jan­úar síð­ast­liðnum í röð frétta­skýr­inga, kom fram að alls sé Magnús grun­aður um að hafa dregið að sér 605 millj­ónir króna.

Van­traust á ráð­herra

Um mið­nætti 5. mars lögðu tveir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ar, Píratar og Sam­fylk­ing, fram van­traust­s­til­lögu á Sig­ríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra. Sú gjörð á rætur sínar að rekja í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða.

Til­lagan var tekin fyrir á Alþingi 6. mars. Þar var hún felld. Atkvæði féllu þannig að 33 voru á móti til­­lög­unni, 29 með­­­fylgj­andi og einn sat hjá, Berg­þór Óla­­son Mið­­flokki.

Tveir þing­­menn Vinstri grænna, Rósa Björk Brynj­­ólfs­dóttir og Andrés Ingi Jóns­­son, studdu til­­lögu um van­­traust, en aðrir stjórn­­­ar­­þing­­menn voru á mót­i.

Í kjöl­farið hefur því verið haldið fram, meðal ann­ars af vara­for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að stjórn­ar­meiri­hlut­inn telji nú 33 þing­menn en ekki þá 35 sem sitja á þingi fyrir stjórn­mála­flokk­anna þrjá sem mynda rík­is­stjórn. Kjarninn kru­fði málið.

Lokakaflinn í fléttunni um Arion banka

Lokakafl­inn í flétt­unni um fram­tíð Arion banka, eina stóra við­skipta­bank­ans á Íslandi sem er ekki að meiri­hluta í rík­i­s­eigu, fór fram á fyrri hluta árs.

Hann hófst þegar líf­eyr­is­sjóðum lands­ins var boðið að kaupa allt að fimm pró­sent hlut í bank­an­um. Sjóð­irnir höfðu til 12. febr­úar að svara til­boð­inu. Þeir sögðu pass hver á fætur öðr­um.

Í kjöl­farið var þeim skila­boðum komið til Banka­sýslu rík­is­ins að vilji væri hjá Kaup­skil­um, félagi í eigu Kaup­þings þar sem vog­un­ar­sjóðir eru stærstu hlut­haf­arn­ir, að virkja kaup­rétt á 13 pró­sent hlut rík­is­ins í Arion banka og greiða um 23 millj­arða króna fyrir 13 pró­sent hlut rík­is­ins.

15. febr­úar var sam­þykkt að Arion banki myndi kaupa 9,5 pró­­sent hlut í sjálfum sér af Kaup­skil­um, félagi í eigu Kaup­­þings, stærsta eig­anda bank­ans. Um er að kaup á eigin bréfum í sam­ræmi við ákvörðun hlut­hafa­fund­ar. Til við­bótar var greidd arð­greiðsla upp á 7,9 millj­arða króna.

Mikil póli­tísk átök urðu um ofan­greindar vend­ing­ar. Hluti þing­manna vildi að stjórn­völd myndu grípa inn í ferlið með ein­hverjum hætti, annað hvort með því að nýta for­kaups­rétt sinn á hlutum í Arion banka eða með því að hafna nýt­ingu Kaup­þings á kaup­rétt­inum á hlut rík­is­ins. Ástæðan var meðal ann­ars sú að umfjöllun fjöl­miðla, m.a. Kjarnans, hafði sýnt fram á að það var mikið falið virði í Arion banka. Stjórn­völd töldu hvor­ugt ger­legt, enda engar for­sendur til staðar til nýt­ingar á for­kaups­rétt­inum og nýt­ing kaup­réttar í sam­ræmi við gerða samn­inga. Auk þess er það skoðun margra ráða­manna að æski­legt sé að ríkið selji að minnsta kosti hluta þeirra banka­eigna sem það á.

Arion banki var svo skráður á markað í júní.

Skipting gæða

Kjarninn hélt áfram umfjöllun sinni um skipt­ingu gæða á Íslandi og í apríl greindi hann frá því að um 218 fjöl­skyldur, sem mynda rík­asta 0,1 pró­sent lands­manna, áttu 201,3 millj­arða króna í hreinni eign í lok árs 2016. Hópurinn jók hreinar eignir sínar um 14 millj­arða króna á því ári. Það þýðir að ef sú tala myndi dreifast jafnt á hvern og myndi það þýða að hver og einn fram­telj­andi hafi aukið hreina eign sína um 67 millj­ónir króna á árinu 2016, eða um 5,6 millj­ónir króna á mán­uði. Um er að ræða fram­telj­endur og því getur bæði verið um sam­skatt­aða og ein­stak­linga að ræða. Þessi hópur hefur sam­tals átt­faldað hreina eign sína í krónum talið, án til­lits til verð­bólgu, á tæpum tveimur ára­tugum.

Ríkasta pró­sent lands­manna, 2.180 fram­telj­endur, áttu 612,6 millj­arða króna í hreinni eign í árs­lok 2016. Auður þeirra jókst um 53,1 millj­arða króna á því ári. Þessi hópur átti meira eigið fé á þessum tíma en þau 80 pró­sent lands­manna sem áttu minnst. Sam­eig­in­legar eignir þess hóps, sem telur 174.935 fram­telj­endur, var 516,1 millj­arðar króna. Ríkasta pró­sentið hefur aukið hreina eign sína sjö­falt á tveimur ára­tugum í krónum talið.

Mikil pólitísk átök eru framundan vegna komandi kjarasamninga. Þar verður meðal annars tekist á um hvernig þjóðarkakan eigi að skiptast.
Mikil póli­tísk átök eru framundan vegna kom­andi kjara­samn­inga. Þar verður meðal ann­ars tek­ist á um hvernig þjóð­ar­kakan eigi að skipt­ast.

Ríkustu fimm pró­sent lands­manna, alls um 10.900 fram­telj­endur, áttu 1.388,3 millj­arða króna í hreina eign í árs­lok 2016. Sá hópur jók eignir sínar um 139 millj­arða króna á því ári.

Eigið fé allra lands­manna jókst um 394 millj­arða króna á umræddu ári. Það þýðir að rík­asta 0,1 pró­sentið tók til sín 3,5 pró­sent af öllu nýju eigin fé, rík­asta eitt pró­sentið tók til sín 13,5 pró­sent þess og rík­ustu fimm pró­sent lands­manna tók til sín 35,3 pró­sent af öllu nýju eigin fé sem varð til á árinu 2016. Ríkasta tíund þjóð­ar­innar tók til sín tæpan helm­ing þeirrar hreinu eignar sem varð til á því ári.

Kosningasvindl, leigufélög og allt hitt

Neyt­enda­mál eru ætið ofar­lega á baugi í Kjarn­anum. Í maí rýndi hann í fjar­skipta­mark­að­inn og þau sögu­legu tíð­indi sem þá voru orðin að bæði Nova og Vodafone eru nú stærri en Síminn á far­síma­mark­aði. Þá eru tvö af hverjum þremur síma­kortum Íslend­inga nú 4G kort og Notkun Íslend­inga á gagna­magni í gegnum far­síma­kerfið hefur rúm­lega 1oofaldast frá árs­lokum 2009.

Kjarninn leiddi líka umfjöllun um mögu­legt kosn­inga­svindl sem átt hefur sér stað á Íslandi og greindi frá fjöl­mörgum atvikum sem áttu sér stað í kringum síð­ustu tvær alþing­is­kosn­ingar þar sem grunur leikur á um að farið hafi verið á skjön við lög um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka til að reyna að hafa áhrif á nið­ur­stöðu kosn­inga. Engin rann­sókn hefur farið fram á þeim.

Þá opin­ber­aði Kjarninn að stór hluti þeirra eigna sem eru í Heima­völlum, stærsta leigu­fé­lagi lands­ins sem starfar á almennum mark­aði, hafði áður verið í eigu félaga eða stofn­ana í eigu rík­is­ins. Rúmlega helm­ingur allra vaxta­ber­andi skulda félags­ins eru auk þess við Íbúða­lána­sjóð. Meðal ann­ars er um að ræða lán sem eiga að fara til félaga sem eru ekki rekin í hagn­að­ar­skyni.

Kosn­ingar fóru fram í maí og Kjarninn var að venju með umfangs­mikla umfjöllun um aðdrag­anda þeirra, birti kosn­inga­spár þar sem skoð­ana­kann­anir voru vigtaðar og greindi við­ræð­urnar sem áttu sér stað í kjöl­farið. Þær end­uðu með myndun meiri­hluta Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Pírata og Við­reisnar og Dagur B. Egg­erts­son sat áfram sem borg­ar­stjóri.

Þegar greint var frá því í byrjun júní að Skelj­ungs­fléttan svo­kall­aða væri til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara tók Kjarninn það að sér að útskýra nákvæm­lega fyrir les­endum hvað í henni fólst.

Þá hélt Kjarninn áfram umfangs­mik­illi umfjöllun sinni um stöðu erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi og þær gríð­ar­legu sam­fé­lags­breyt­ingar sem fylgja metaukn­ingu í fjölda þeirra.

Á síð­ustu vikum opin­ber­aði Kjarninn síðan meðal ann­ars það að Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefði verið ákærður fyrir pen­inga­þvætti. vegna eigna sem hann geymir í aflands­fé­lagi. Júlíus Vífill hefur ávallt neitað sök en nú liggur ákæra fyrir í mál­inu. Hann er fyrsti stjórn­mála­mað­ur­inn sem var opin­ber­aður í Panama­skjöl­unum til að vera ákærður.

Og svo auð­vitað þetta með WOW air, sem er orðið of stórt til að falla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2018

Mest lesið undanfarið ár