Engin eftirlitsstofnun rannsakar mögulegt kosningasvindl á Íslandi

Fjölmörg atvik áttu sér stað í kringum síð­ustu tvær alþing­is­kosn­ingar þar sem grunur leikur á um að farið hafi verið á skjön við lög um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka til að reyna að hafa áhrif á nið­ur­stöðu kosn­inga. Engin rann­sókn hefur farið fram á þeim.

Síðustu tvær alþingiskosningar, sem fóru fram með árs millibili 2016 og 2017, áttu sér stað vegna þess að almenningur þrýsti mjög á breytingar. Í báðum kosningunum er rökstuddur grunur um að farið hafi verið á svig við lög um fjármál stjórnmálaflokka.
Síðustu tvær alþing­is­kosn­ingar, sem fóru fram með árs milli­bili 2016 og 2017, áttu sér stað vegna þess að almenn­ingur þrýsti mjög á breyt­ingar. Í báðum kosn­ing­unum er rök­studdur grunur um að farið hafi verið á svig við lög um fjár­mál stjórn­mála­flokka. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hvorki lög­regla né Rík­is­end­ur­skoðun hafa rann­sakað atvik sem áttu sér stað í kringum alþing­is­kosn­ingar á und­an­förnum árum og rök­studdur grunur er um að séu í and­stöðu við lög um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka og fram­bjóð­enda.

[links]6. grein laga um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka og fram­bjóð­enda segir að óheim­ilt sé að veita við­töku fram­lögum frá óþekktum gef­end­um. Í lög­unum segir einnig að hámarks­fram­lög lög­að­ila sem megi gefa stjórn­mála­sam­tökum eða fram­bjóð­endum séu 400 þús­und krón­ur. Stjórn­mála­sam­tök skulu halda sam­stæðu­reikn­ing fyrir allar ein­ingar sem undir þau falla, svo sem sér­sam­bönd, kjör­dæm­is­ráð, eign­ar­halds­fé­lög og tengdar sjálfs­eign­ar­stofn­an­ir.

Nafnlaus vel fjármagnaður áróður

Fyrir síð­ustu tvær kosn­ing­ar, sem fram fóru haustið 2016 og haustið 2017, voru nafn­laus fyr­ir­bæri sem komu á fram­færi kost­uðum áróðri á sam­fé­lags­miðlum og víðar á vefnum, mjög áber­andi og aug­ljóst að umtals­verðum fjár­munum var kostað til þess að koma áróðr­inum á fram­færi.

[adspot]Þrátt fyrir umfang þessa liggur enn ekk­ert fyrir um hverjir standa fyrir þessum fyr­ir­bærum né hversu miklu fé hefur verið varið í rekstur þeirra.

Þá eru einnig rekin frjáls félaga­sam­tök sem kaupa aug­lýs­ingar í útvarpi og sjón­varpi í aðdrag­anda kosn­inga sem bein­ast gegn ákveðnum áherslum valdra stjórn­mála­flokka, og ríma skýrt við áherslur ann­arra. Frjáls félaga­sam­tök birta ekki árs­reikn­inga opin­ber­lega og því liggur ekki fyrir hversu miklum fjár­munum er varið í umræddar aug­lýs­ingar né hverjir það eru sem greiða þá fjár­muni.

Úr eigin vasa

Í síð­asta mán­uði féll hér­aðs­dómur í máli almanna­teng­ils sem taldi Fram­sókn­ar­flokk­inn skulda sér fjár­muni fyrir að hafa unnið við að lag­færa ímynd flokks­ins og þáver­andi for­manns hans, Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, í kjöl­far frétta­fultn­ings af aflands­fé­laga­eignar Sig­mundar Davíðs sem opin­beruð var í Panama­skjöl­unum árið 2016. Almanna­teng­ill­inn, Viðar Garð­ars­son, setti meðal ann­ars á fót tvær varn­ar­vef­síður sem inni­héldu póli­tískan áróður fyrir hönd Sig­mundar Davíðs.

[box]Í hér­aðs­dómnum kom fram að Sig­mundur Davíð hefði sjálfur greitt Viðari rúm­lega eina milljón króna fyrir vef­síðu­gerð­ina og ýmis önnur við­vik sem tengd­ust und­ir­bún­ingi þing­kosn­inga haustið 2016. Á vef­síð­unum tveimur komu ekki fram nöfn þeirra sem að þeim stóðu heldur stóð að önnur þeirra, Panama­skjolin.is, væri á vegum stuðn­ings­manna Sig­mundar Dav­íðs og eig­in­konu hans. Sú síð­ari, Islandi­allt.is, var sögð vera rek­inn af hópi ein­stak­linga úr ýmsum átt­um, með ólíkar stjórn­mála­skoð­an­ir, sem eigi það sam­eig­in­legt að vera stuðn­ings­menn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar. Sú upp­hæð sem Sig­mundur Davíð greiddi Viðari úr eigin vasa er langt umfram það sem ein­stak­lingur má greiða í kosn­inga­fram­lag.

Engin rannsókn farið fram

Rík­is­end­ur­skoðun hefur sam­kvæmt lögum um stjórn­mála­sam­tök og fram­bjóð­endur eft­ir­lit með fjár­málum þeirra. Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á stofn­un­ina og spurði hvort hún hefði sýnt frum­kvæði í því að rann­saka ofan­greinda hátt­semi.

Í svari Rík­is­end­ur­skoð­unar segir að eft­ir­lits­heim­ildir hennar séu bundnar við að skoða árs­reikn­inga og gögn stjórn­mála­sam­taka og reikn­inga stað­festra sjóða. Í þeim til­fellum sem fjallað er um hér að ofan sé ann­ars vegar um að ræða frjáls félaga­sam­tök og hins vegar greiðslur frá ein­stak­lingi. „Stofn­unin hefur ekki heim­ildir til að kalla eftir gögnum frá eða rann­saka frjáls félaga­sam­tök nema að því leyti sem birt­ist í reikn­ings­skilum þeirra stjórn­mála­sam­taka sem við­kom­andi styður. Því hefur Rík­is­end­ur­skoðun ekki haft frum­kvæði að því að rann­saka birt­ingu efnis og kaupum á aug­lýs­inga­plássi frá félaga­sam­tökum eða ein­stak­lingum. Það flækir jafn­framt málin að í mörgum til­fellum er ekki verið að birta aug­lýs­ingar til stuðn­ings ákveðnum flokki, heldur til að fæla frá stuðn­ingi við ein­hvern annan ákveð­inn flokk.“

Kjarninn beindi einnig fyr­ir­spurn til lög­reglu­yf­ir­valda og spurði hvort að annað hvort lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra hefði rann­sakað ofan­greind mál. Í svari Gunnars Rúnars Svein­björns­sonar, kynn­ing­ar­full­trúa lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, kemur fram að eft­ir­grennslan hafi leitt í ljós að mál sem þessi hafi ekki komið til rann­sóknar.

Því liggur fyrir að engin eft­ir­lits­stofnun eða rann­sókn­ar­að­ili er að rann­saka hvort að fjár­mögnun nafn­lausra áróð­urs­síðna, fram­lög til frjálsra félaga­sam­taka sem beita sér í kosn­ingum eða greiðslur stjórn­mála­manna sem eru hærri en lög­bundin hámörk séu ólög­leg eða ekki.

Í skýrslu Örygg­is- og sam­vinn­u­­stofn­unar Evr­­ópu (ÖSE), sem birt var í kjöl­far alþing­is­­kosn­­ing­anna árið 2017 var þetta and­vara­leysi gagn­rýnt sér­stak­lega. Þar sagði meðal ann­ars að umboð eft­ir­lits­að­ila til eft­ir­lits með ólög­­mætum og nafn­­lausum kosn­­inga­á­róðri á net­miðlum væri ófull­nægj­andi.

Frétta­skýr­ingin birt­ist einnig í Mannlífi sem kom út í dag, 11. maí. Hægt er að lesa Mannlíf hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

löggæsla

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár