Mynd: Nasdaq Iceland

Arion banki varð fyrsti nýi bankinn til að fá frelsi

Arion banki var skráður á markað um mitt ár. Þar með var hann fyrstur bank­anna þriggja sem end­ur­reistir voru á rústum þeirra sem hrundu í októ­ber 2008 að losna að fullu úr viðjum rík­is­ins og kom­ast í almenna eigu. En árið hefur ekki bara verið gott.

Lokakafl­inn í flétt­unni um fram­tíð Arion banka, eina stóra við­skipta­bank­ans á Íslandi sem er ekki að meiri­hluta í rík­i­s­eigu, fór fram á fyrri hluta árs.

Hann hófst þegar líf­eyr­is­sjóðum lands­ins var boðið að kaupa allt að fimm pró­sent hlut í bank­an­um. Sjóð­irnir höfðu til 12. febr­úar að svara til­boð­inu. Þeir sögðu pass hver á fætur öðr­um.

Í kjöl­farið var þeim skila­boðum komið til Banka­sýslu rík­is­ins að vilji væri hjá Kaup­skil­um, félagi í eigu Kaup­þings þar sem vog­un­ar­sjóðir eru stærstu hlut­haf­arn­ir, að virkja kaup­rétt á 13 pró­sent hlut rík­is­ins í Arion banka og greiða um 23 millj­arða króna fyrir 13 pró­sent hlut rík­is­ins.

Sam­hliða fór fram stjórn­ar­fundur hjá Kaup­þingi sem, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, stóð fram á nótt. Nið­ur­staða hans var meðal ann­ars sú að tveir af erlendum hlut­höfum bæði Kaup­þings og Arion banka, Attestor Capital og fjár­fest­ing­ar­bank­inn Goldman Sachs, myndu kaupa 2,8 pró­sent hlut í Arion af Kaup­þingi til við­bótar við það sem þeir áttu. Auk þess keyptu rúm­lega 20 sjóðir í stýr­ingu fjög­urra af stærstu sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækjum Íslands: Stefn­is, Íslands­sjóða, Lands­bréfa og Júpít­er, sam­tals 2,54 pró­sent hlut. Sam­an­lagt kaup­verð var um 9,5 millj­arðar króna.

Gátu miðað við gamalt uppgjör

Ástæða þess að salan á hlutnum var keyrð í gegn þennan dag var ein­föld: þá var hægt að miða kaup­verðið við níu mán­aða upp­gjör Arion banka. Miðað við það er verðið sem greitt var fyrir 0,805 krónur á hverja krónu af eigin fé sem bank­inn á. Ef verðið hefði farið niður fyrir 0,8 krónur hefði for­kaups­réttur rík­is­ins á hlutnum virkj­ast. Ef við­skiptin hefðu farið fram 14. febr­úar hefði það gerst.

15. febr­úar var sam­þykkt að Arion banki myndi kaupa 9,5 pró­­sent hlut í sjálfum sér af Kaup­skil­um, félagi í eigu Kaup­­þings, stærsta eig­anda bank­ans. Um er að kaup á eigin bréfum í sam­ræmi við ákvörðun hlut­hafa­fund­ar. Til við­bótar var greidd arð­greiðsla upp á 7,9 millj­arða króna.

Mikil póli­tísk átök urðu um ofan­greindar vend­ing­ar. Hluti þing­manna vildi að stjórn­völd myndu grípa inn í ferlið með ein­hverjum hætti, annað hvort með því að nýta for­kaups­rétt sinn á hlutum í Arion banka eða með því að hafna nýt­ingu Kaup­þings á kaup­rétt­inum á hlut rík­is­ins. Ástæðan var meðal ann­ars sú að umfjöllun fjöl­miðla, m.a. Kjarnans, hafði sýnt fram á að það var mikið falið virði í Arion banka. Stjórn­völd töldu hvor­ugt ger­legt, enda engar for­sendur til staðar til nýt­ingar á for­kaups­rétt­inum og nýt­ing kaup­réttar í sam­ræmi við gerða samn­inga. Auk þess er það skoðun margra ráða­manna að æski­legt sé að ríkið selji að minnsta kosti hluta þeirra banka­eigna sem það á.

Skráður á markað

Um miðjan maí til­kynnti Arion banki að hann ætl­aði að efna til útboðs á hluta­bréfum í bank­anum. Jafn­framt var greint frá því að ætl­unin væri að skrá bréfin í kaup­höll bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Til sölu yrði að minnsta kosti 25 pró­sent hlutur en í mesta lagi 40 pró­sent.

Síðasta upp­gjör Arion banka fyrir skrán­ingu þótti ekki mjög gott. Hagn­aður sam­­stæðu bank­ans á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2018 nam 1,9 millj­­örðum króna sam­an­­borið við 3,4 millj­­arða króna á sama tíma­bili 2017. Arð­­semi eigin fjár var aðeins 3,6 pró­sent sam­an­­borið við 6,3 pró­sent fyrir sama tíma­bil árið 2017, en þetta telst lágt í alþjóð­­legum sam­an­­burð­i.

Hlutabréf í Arion banka voru tekin til viðskipta í Kauphöll Íslands 15. júní 2018. Mynd: Nasdaq Iceland.
Hluta­bréf í Arion banka voru tekin til við­skipta í Kauphöll Íslands 15. júní 2018. Mynd: Nasdaq Iceland.

Í skrán­ing­ar­lýs­ing­u bank­ans sagði að Arion banki teldi að rekstur hans hefði þró­ast með jákvæðum hætti frá því í lok mars 2018. „Hreinar vaxta­tekjur juk­ust í apr­íl, að hluta til vegna auk­innar verð­bólgu, sem hefur jákvæð áhrif á vaxta­mun bank­ans þar sem hann á meiri verð­tryggðar eignir en skuld­ir. Hreinar vaxta­tekjur juk­ust einnig vegna end­ur­greiðslu á skulda­bréfi á fyrsta árs­fjórð­ungi 2018 sem bar til­tölu­lega háa vexti, sem dró úr vaxta­kostn­aði. Lána­safn bank­ans hefur stækkað í sam­ræmi við vöxt­inn á fyrsta árs­fjórð­ungi með áfram­hald­andi vexti í hús­næð­is­lán­um, lánum til lít­illa og með­al­stórra félaga og útlánum til fyr­ir­tækja. Trygg­inga­starf­semi bank­ans hefur batnað eftir erf­iðan fyrsta árs­fjórð­ung. Kostn­að­ar­grunnur hefur fylgt sam­bæri­legri þróun og fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2018 og virð­is­rýrnun útlána hefur verið að mestu óbreytt frá lokum fyrsta árs­fjórð­ungs. Verk­efna­staða á útlána­sviðum og í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf eru í góðum far­veg­i.“

Í til­kynn­ingu sem birt var um miðjan maí, þar sem útboðið var boð­að, sagði að mark­mið Arion banka sé að vera með arð­semi eigin fjár sem sé yfir tíu pró­sent. Til að ná því er lík­legt að breyta þurfi fjár­mögnun bank­ans mjög með því að greiða út eigin fé og sækja víkj­andi lán (sett mark­mið er að minnka eig­in­fjár­hlut­fall úr 23,6 pró­sent í 17 pró­sent), minnka rekstr­ar­kostnað umtals­vert (kostn­að­ar­hlut­fall er nú 70,8 pró­sent en sett mark­mið er að ná því undir 50 pró­sent) t.d. með því að fækka starfs­fólki og ná hóf­legum vexti í útlánum sem sé í takti við vöxt í þjóð­ar­fram­leiðslu á Íslandi í nán­ustu fram­tíð.

Arion banki var svo skráður á markað í júní. Fyrsta stóra bank­anum sem hafði verið reistur á bruna­rústum þeirra sem orsök­uðu banka­hrunið hafði verið skilað á markað tæpum tíu árum eftir að hrunið átti sér stað. Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, sagði þó í við­tali við sjón­varps­þátt­inn 21 á Hring­braut síðla árs að hann von­að­ist til þess að hinir tveir myndu fylgja honum þangað í nán­ustu fram­tíð.

Í dag er eign­ar­hald Arion banka með þeim hætti að Kaupþing ehf. er enn stærsti eig­and­inn með 32,67 pró­sent. Þá á Arion banki 9,31 pró­sent hlut í sjálfum sér. Vog­un­ar­sjóð­irnir Taconic Capital (tíu pró­sent), Attestor Capital (7,31 pró­sent) og Och-Ziff Capital (6,58 pró­sent) koma þar næst. Stærsti inn­lendi fjár­festir­inn í bank­anum er Gildi líf­eyr­is­sjóður með 2,47 pró­sent hlut.

Flugfélögin lita stöðu Arion banka

Vend­ingar í flug­heim­inum hafa haft nei­kvæð áhrif á rekstur Arion banka á síð­ari hluta árs. Bankinn átti umtals­verða hags­muni undir hjá bæði Primera Air og WOW air, en Primera fór í þrot í byrjun októ­ber­mán­aðar og WOW air hefur háð dauða­stríð mán­uðum saman sem enn sér ekki fyrir end­ann á.

Arion banki sendi frá sér afkomu­við­vörun 2. októ­ber, sama dag og Primera óskaði eftir greiðslu­stöðvun. Þar sagði að vegna ófyr­ir­séðra atburða gerði bank­inn ráð fyrir því að nið­ur­færa lán og greiða út ábyrgðir sem myndu hafa nei­kvæð áhrif á rekstr­ar­af­komu hans á þriðja árs­fjórð­ungi 2018. Áhrifin áttu að verða allt að 1,8 millj­arðar króna.

Augljóst var að þarna var um áhrif af gjald­þroti Primera að ræða, þótt það væri ekki sagt berum orðum.

Þegar afkoma þriðja árs­fjórð­ungs var kynnt var greint frá því að hún væri undir vænt­ingum. Arð­semi eig­in fjár var 2,3 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi, sem telst lítil arð­semi í alþjóð­legum sam­an­burði.

Bankinn hóf auk þess sölu­ferli á Valitor á árinu og samdi við Citigroup um miðjan nóv­em­ber um ráð­gjöf vegna þeirrar sölu. Til stendur að selja meiri­hluta eða allt hlutafé í greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu.

Vandræðin í Helguvík

Önnur vand­ræða­eign Arion banka er kís­il­mál­verk­smiðja United Silicon í Helguvík. Bankinn tók yfir verk­smiðj­una snemma árs, stofn­aði félagið Stakks­berg utan um hana, ætlar sér að koma henni aftur í starf­semi og svo selja hana.

Mikil and­staða er hins vegar við þau áform hjá íbúum Reykja­nes­bæjar og félaga­sam­tökin „And­stæð­ingar stór­iðju í Helguvík“ hafa staðið fyrir und­ir­skrifta­söfnun til að m.a. aft­ur­kalla starfs­leyfi Stakks­berg. Samtökin vilja að íbúar sveita­fé­lags­ins fái að kjósa um það hvort þeir kæri sig yfir­höfuð um stór­iðju­upp­bygg­ingu í Helguvík.

Kjarninn greindi frá því um miðjan des­em­ber að lög­maður félags Arion banka hefði sent Skipu­lags­stofnun bréf þar sem kom fram að hann teldi að íbúa­kosn­ing um breyt­ingar á skipu­lagi á svæð­inu sem félagið hefur óskað eftir að láta vinna sé ekki lög­mæt.

Í bréf­inu sagði lög­maður Stakks­berg að þegar hafi verið fall­ist á starf­sem­ina sem hafi fengið öll leyfi og sé meðal ann­ars með gilt starfs­leyfi. „Verk­smiðjan hefur þegar verið byggð á lóð­inni fyrir um 22 millj­arða króna. Um er að ræða rétt­indi sem njóti verndar eign­ar­rétt­ar­á­kvæðis 72. gr. stjórn­ar­skrár­innar og atvinnu­rétt­indi sem njóti verndar 75. gr. stjórn­ar­skrár. Um slík rétt­indi verði ekki kosið í almennum kosn­ingum að mati Stakks­berg ehf.“

Verði kosið um málið, og nið­ur­staða þeirrar kosn­ingar verði sú að starf­semi kís­il­málm­verk­smiðj­unnar verði hafnað, þá telur Stakks­berg Reykja­nesbæ hafa bakað sér bóta­skyldu. „Í þessu sam­bandi er minnt á að þegar unnin fjár­fest­ing í verk­smiðju Stakks­berg nemur um 22 millj­örðum króna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2018

Mest lesið undanfarið ár