Telja svigrúm til að taka yfir 80 milljarða út úr Arion banka

Ráð­gjafar Kaup­þings við sölu Arion banka telja að eigið fé bank­ans sé svo mikið að svig­rúm sé til að greiða út yfir 80 millj­arða til hlut­hafa hans í arð, ef ráð­ist verður í útgáfu víkj­andi skulda­bréfa. Án þess sé svig­rúmið 50 millj­arðar.

Ráð­gjafar frá Kviku, sem ráðnir voru af Kaup­þingi til að aðstoða við söl­una á Arion banka í des­em­ber síð­ast­liðnum, telja að allt of mikið af pen­ingum sé inni í bank­anum. Í kynn­ingu sem þeir héldu fyrir nokkra íslenska líf­eyr­is­sjóði í jan­úar, þegar þeir reyndu að sann­færa sjóð­ina um að kaupa um fimm pró­sent hlut í Arion banka, kemur fram að eigið fé bank­ans sé svo mikið að svig­rúm sé til greiðslu á yfir 80 millj­örðum króna út úr bank­anum ef ráð­ist verður í útgáfu víkj­andi skulda­bréfa. Án þess sé svig­rúmið samt 50 millj­arðar króna.

Til sam­an­burðar má nefna að eigið fé Arion banka um síð­ustu ára­mót var 225,7 millj­arðar króna. Því er það mat ráð­gjaf­anna að hægt sé að greiða rúm­lega þriðj­ung alls eigin fjár Arion banka út, ef ráð­ist yrði í að gefa út víkj­andi skulda­bréf sem myndu í kjöl­farið mynda hluta af eig­in­fjár­grunni bank­ans.

Kjarninn er með kynn­ing­una, sem er kyrfi­lega merkt trún­að­ar­mál, undir höndum.

Því hærra sem verðið er, því meira fær ríkið

Mikill styr hefur staðið um eign­ar­haldið á Arion banka und­an­farin miss­eri. Þegar svo­kall­aðir stöð­ug­leika­samn­ingar voru gerðir, en þeir tóku gildi þegar Kaupþing fékk und­an­þágu frá fjár­magns­höftum snemma árs 2016, var eign­ar­haldi bank­ans þannig háttað að íslenska ríkið átti 13 pró­sent hlut en Kaupþing, félag utan um eft­ir­stand­andi eignir kröfu­hafa þess banka, áttu 87 pró­sent. Í samn­ing­unum sem und­ir­rit­aðir voru 13. jan­úar 2016 var meðal ann­ars sagt til um að Kaupþing ætti að gefa út skulda­bréf upp á 84 millj­arða króna sem væri tryggt með veði í öllum hlut félags­ins í Arion banka. Skulda­bréfið bar vexti og ein­ungis mátti greiða inn á það með því að selja hluta í Arion banka á gengi sem væri yfir 0,8 krónur fyrir hverja bók­færða krónu af eigin fé bank­ans. Ef við­skipti færu fram undir því gengi myndi virkj­ast for­kaups­réttur sem ríkið samdi um að fá. Kaupþing þurfti að greiða upp skulda­bréfið, og þar með selja Arion banka, fyrir árs­lok 2018.

Auk þess var gerður sér­stakur afkomu­skipta­samn­ingur milli Kaup­þings og Seðla­banka Íslands, fyrir hönd íslenska rík­is­ins, ef Arion banki yrði seldur. Í honum felst að að ef sölu­and­virði Arion banka verður á bil­inu 100 til 140 millj­arðar króna mun sú upp­hæð sem til fellur umfram millj­arð­anna 84 sem fara í að borga skulda­bréfið upp skipt­ast þannig að Seðla­banki Íslands fær ⅓ en Kaupþing ⅔. Sölu­and­virði á bil­inu 140 til 160 millj­arðar króna myndi skipt­ast þannig að Seðla­bank­inn fengi helm­ing en Kaupþing helm­ing og sölu­and­virði umfram 160 millj­arða myndi skipt­ast þannig að Seðla­bank­inn fengi ¾ af því en Kaupþing ¼. Þetta var opin­berað síð­ast­lið­inn föstu­dag þegar stöð­ug­leika­samn­ing­arnir svoköll­uðu voru birtir.

Ein stærsta eignarsala ríkisins frá upphafi

Töluverð við­skipti hafa átt sér stað með hluti í Arion banka síðan að samn­ing­ur­inn var gerður. Í fyrra keyptu fjórir af stærstu eig­endum Kaup­þings, Taconic Capital, Och-Ziff Capital Mana­gement Group, sjóðir í stýr­ingu Attestor Capital og Goldman Sachs, sam­tals 29,6 pró­sent hlut í Arion banka af sjálfum sér í fyrra. Tveir þeirra, Attestor og Goldman Sachs, bættu við sig 2,8 pró­sent hlut 13. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þá keyptu rúm­lega 20 sjóðir í stýr­ingu fjög­urra af stærstu sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækjum Íslands: Stefnis, Íslands­sjóða, Lands­bréfa og Júpíter, sam­tals 2,54 pró­sent hlut. Sam­an­lagt kaup­verð var um 9,5 millj­arðar króna. Og sama dag var kaup­réttur Kaup­þings á 13 pró­sent hlut rík­is­ins í Arion banka virkj­aður. Sá kaup­réttur var form­gerður í samn­ingi frá árinu 2009, var for­taks­laus og ein­hliða. Ríkið mátti því ekki hafna til­boð­inu án þess að ger­ast brot­legt við gerða samn­inga.

Gengið var form­lega frá sölu hlut­ar­ins 26. febr­úar síð­ast­lið­inn. Kaup­verðið var 23,4 millj­arðar króna og ekk­ert opið né gagn­sætt sölu­ferli fór fram. Um eina stærstu eigna­sölu rík­is­ins frá upp­hafi er að ræða.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, skrifaði undir uppgjörssamninginn á hlut íslenska ríkisins í Arion banka.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, skrif­aði undir upp­gjörs­samn­ing­inn á hlut íslenska rík­is­ins í Arion banka.

Hver dagur skipti máli

Þessi flétta var þó ekki plan A hjá Kaup­þingi. Upp­runa­lega ætl­uðu þeir að selja íslenskum líf­eyr­is­sjóðum hlut­inn sem Attestor, Goldman og íslensku fjár­fest­ing­ar­sjóð­irnir keyptu á 9,5 millj­arða króna þann 13. febr­úar.

Líf­eyr­is­sjóð­unum bauðst að kaupa hlut í Arion banka á verði sem var um 0,8 krónur fyrir hverja krónu af bók­færðu eigin fé. Á verði sem var rétt frá því að virkja for­kaups­rétt rík­is­ins.. Það verð mið­aði við eig­in­fjár­stöðu Arion banka í lok sept­em­ber 2017.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir höfn­uðu til­boð­inu. Þess í stað keyptu áður­nefndir tveir af erlendu hlut­höfum bæði Kaup­þings og Arion banka, og íslensku fjár­fest­inga­sjóð­irnir hlut­inn á sama gengi. Plani B var hrint í gang. Mjög mik­il­vægt var fyrir Kaupþing að hlut­ur­inn myndi selj­ast þennan dag. Með því voru nefni­lega upp­fyllt skil­yrði fyrir 25 millj­arða króna útgreiðslu á eigin fé Arion banka til hlut­hafa hans, annað hvort í formi arð­greiðslu eða með upp­kaupum á eigin bréfum.

Daginn eftir að við­skiptin voru til­kynnt, 14. febr­úar síð­ast­lið­inn, birti Arion banki árs­upp­gjör sitt fyrir árið 2017. Ef hlut­ur­inn hefði verið seldur í sam­ræmi við eig­in­fjár­stöðu bank­ans þann dag hefði kaup­verðið farið í tæp­lega 0,79 krónur á hlut og for­kaups­réttur íslenska rík­is­ins virkj­ast.

Fyrirhugaðar arðgreiðslur lækka eiginlegt verð umtalsvert

Ofan­greind arð­greiðsla er þó ein­ungis sú fyrsta af nokkrum sem til stendur að ráð­ast í til að lækka eigið fé Arion banka umtals­vert.

Í kynn­ing­unni sem Kjarninn hefur undir höndum segir að Arion banki gæti greitt allt að 80 millj­arða króna út til hlut­hafa sinna. Hluti þeirrar útgreiðslu yrði þó að fara fram sam­hliða útgáfu víkj­andi skulda­bréfa. Þar stendur enn fremur að hægt sé að greiða 50 millj­arða króna út í arð á næstu árum án þess að fara í útgáfu víkj­andi bréfa. Í sér­stöku arð­greiðslu­lík­ani, sem kynnt var fyrir líf­eyr­is­sjóð­unum, var síðan farið í gegnum það hvernig væri hægt að greiða út við­bót­ar­eigið fé í arð­greiðslum á næstu árum, og lækka eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans um leið niður í 21,6 pró­sent.

Í kynn­ing­unni er einnig sér­stak­lega tekið fram að ef miðað sé við sama verð og for­kaups­réttur rík­is­ins virkj­ast við, og tekið sé til­lit til 50 millj­arða króna arð­greiðslu sem nýir eig­endur fá hlut­deild í ákveði þeir að kaupa, sé verðið sem verið sé að selja á 0,74 krónur fyrir hverja krónu af bók­færðu eigin fé Arion banka. Tilboðið hljóð­aði því upp á að líf­eyr­is­sjóð­irnir gætu greitt verð sem myndi ekki virkja for­kaups­rétt­inn en að það væri í raun lægra vegna þess að arð­greiðslur sem þeim yrðu tryggðar á móti myndu í raun lækka verð­mið­ann.

Þessu til­boði tóku Attestor, Goldman Sachs og íslensku fjár­fest­ing­ar­sjóð­irnir.

Áfram verður fjallað um kynn­ing­una á Kjarn­anum síðar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár