Það helsta hingað til: Vantraust á dómsmálaráðherra

Kjarninn tekur saman helstu frétta­mál íslensks sam­fé­lags á fyrsta fjórð­ungi árs­ins 2018. Þar á meðal er van­traust­s­til­laga á Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra vegna fram­göngu hennar í Lands­rétt­ar­mál­inu.

Hvað?

Um mið­nætti 5. mars lögðu tveir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar, Píratar og Sam­fylk­ing, fram van­traust­s­til­lögu á Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra. Sú gjörð á rætur sínar að rekja í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða, sem snýst um að mats­nefnd um hæfi umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti við Lands­rétt, nýtt milli­dóm­stig, lagði fram til­lögu um 15 hæf­ustu ein­stak­ling­anna í fyrra­vor til að taka við 15 stöð­um. Sig­ríður ákvað að breyta þeirri til­lögu og færa fjóra af lista mats­nefnd­ar­innar en setja fjóra aðra í stað­inn. Í des­em­ber 2017 komst Hæsti­réttur að þeirri nið­ur­stöðu að Sig­ríður hefði brotið gegn stjórn­sýslu­lögum með athæfi sínu í málum sem tveir mann­anna sem höfðu verið færðir af list­anum höfð­uðu. Hinir tveir hafa síðan höfðað bóta­mál á hendur rík­inu.

Í könnun sem Mask­ína vann fyrir Stund­ina kom fram að 72,5 pró­­sent lands­­manna vildu að Sig­ríður segi af sér emb­ætti. Spurt var „Finnst þér að Sig­ríður Á. Andersen dóms­­mála­ráð­herra eigi að segja af sér ráð­herra­­dómi eða á hún að sitja áfram sem dóms­­mála­ráð­herra?“

Af hverju?

Van­traust­s­til­lagan kom í kjöl­far þess að umboðs­maður Alþingis sendi bréf til stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar. Þar kom fram að hann myndi ekki hefja frum­­kvæð­is­rann­­sókn á mál­inu í ljósi yfir­­stand­andi umfjöll­unar dóm­stóla og Alþingis um mál­ið. Hann gerði hins vegar nokkrar veiga­­miklar athuga­­semdir við máls­­með­­­ferð­ina, meðal ann­­ars þá að hann teldi að sá tveggja vikna frest­­ur, sem ráð­herra hefur ítrekað borið við að hafi haft áhrif á mög­u­­leika hennar til að rann­saka mál­ið, hafi ekki átt við í því til­­­felli.

Að auki benti hann sér­­stak­­lega á skyldu sér­­fræð­inga ráðu­­neyt­is­ins til að veita ráð­herra ráð­­gjöf, til að tryggja að ákvarð­­anir hans séu lögum sam­­kvæmt og að öll stjórn­­­sýsla ráð­herra og ráðu­­neytis sé í sam­ræmi við ólög­­festa rétt­­mæt­is­­reglu stjórn­­­sýslu­rétt­­ar. Ráð­herra hafi í þessu til­­viki verið veitt sú ráð­­gjöf, en minnst þrír sér­­fræð­ingar ráðu­­neyt­is­ins ráð­lögðu Sig­ríði ítrekað við því að breyt­ingar á lista Lands­rétt­­ar­­dóm­­ara og sá ófull­nægj­andi rök­­stuðn­­ingur sem þeim breyt­ingum fylgdi gæti verið brot á stjórn­sýslu­lögum, eins og síðar kom á dag­inn.

Hver varð niðurstaðan?

Tillagan var tekin fyrir á Alþingi 6. mars. Þar var hún felld. Atkvæði féllu þannig að 33 voru á móti til­lög­unni, 29 með­fylgj­andi og einn sat hjá, Berg­þór Óla­son Mið­flokki.

Tveir þing­menn Vinstri grænna, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Andrés Ingi Jóns­son, studdu til­lögu um van­traust, en aðrir stjórn­ar­þing­menn voru á mót­i.

Í kjöl­farið hefur því verið haldið fram, meðal ann­ars af vara­for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að stjórn­ar­meiri­hlut­inn telji nú 33 þing­menn en ekki þá 35 sem sitja á þingi fyrir stjórn­mála­flokk­anna þrjá sem mynda rík­is­stjórn.

Það helsta hingað til: Órói á vinnu­mark­aði

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár