Mynd: Nasdaq Iceland

Ríkið er stærsti lánveitandi Heimavalla

Stór hluti þeirra eigna sem stærsta leigu­fé­lagið á almennum mark­aði, Heima­vellir, á voru áður í eigu félaga eða stofn­ana í eigu rík­is­ins. Rúmlega helm­ingur allra vaxta­ber­andi skulda félags­ins eru við Íbúða­lána­sjóð.

Hluta­bréf í Heima­völlum, einu umdeildasta félag lands­ins, voru tekin til við­skipta í Kauphöll Íslands í gær. Ástæða þess að Heima­vellir er umdeilt félag er eðli þeirrar starf­semi sem félagið stundar. Á örfáum árum hefur það eign­ast um tvö þús­und íbúðir, leigt þær út og haft af því mik­inn hagnað. Á sama tíma hefur ríkt mik­ill skortur, og ákveðið neyð­ar­á­stand, á hús­næð­is­mark­aði á Íslandi.

Það ástand hefur gert það að verkum að leigj­endum hefur fjölgað um tíu þús­und á sjö árum og fjöldi þeirra er nú áætl­aður um 50 þús­und. Meiri­hluti leigj­enda, alls 57 pró­­sent, er á leig­u­­mark­aðnum af nauð­­syn og 80 pró­­sent leigj­enda vilja kaupa sér íbúð, en geta það ekki. Ein­ungis 14 pró­­sent leigj­enda vilja vera á leig­u­­mark­aði. Þriðji hver leigj­andi borgar meira en helm­ing af ráð­­stöf­un­­ar­­tekjum sínum í leigu og fáir tekju­lágir leigj­endur geta safnað sér spari­­­fé, sam­kvæmt könnun sem Íbúða­lána­sjóður lét gera fyrir skemmstu.

Áður en að félag er skráð á markað þarf það að taka saman, og birta skrán­ing­ar­lýs­ingu með ítar­legum upp­lýs­ingum um sig. Í skrán­ing­ar­lýs­ingu Heima­valla, sem er dag­sett 23. apríl, er að finna ítar­legar upp­lýs­ingar um það hvernig félagið hefur vaxið á und­an­förnum árum og hvernig það hefur fjár­magnað sig. Og þar kemur fram að þessi stærsti ein­staki leik­andi á almenna íbúð­ar­mark­aðnum hefur keypt stærstan hluta íbúða sinna á und­an­förnum árum af íslenska rík­inu. Þegar fjár­mögnun Heima­valla er skoðuð kemur í ljós að það eru fjár­mála­fyr­ir­tæki í eigu íslenska rík­is­ins sem eru helstu lán­veit­endur þess.

Ríkið stærsti seljandinn

Heima­vellir er ekki gam­alt félag. Það var stofnað árið 2015 í kjöl­far þess að nokkur minni leigu­fé­lög, sem áttu sam­tals 191 íbúð, runnu saman. Það hefur síðan stækkað hratt, meðal ann­ars með því að kaupa eign­ar­söfn af Íbúða­lána­sjóði, sem er í eigu íslenska rík­is­ins. Stærsta við­bótin kom þó síðla árs 2016 þegar Heima­vellir eign­uð­ust 716 íbúðir á Ásbrú, gamla varn­ar­liðs­svæð­inu á Mið­nes­heiði, með því að sam­ein­ast félag­inu Ásabyggð, sem hét áður Háskóla­vellir. Það hafði eign­ast flestar þeirra árið 2008 þegar þær voru keyptar af Kadeco, félagi í eigu íslenska rík­is­ins. Kadeco hafði verið stofnað til að taka við fast­eignum á svæð­inu í kjöl­far þess að banda­ríski her­inn yfir­gaf her­stöð­ina á Mið­nes­heiði.

Úr fjárfestakynningu Heimavalla.
Úr fjár­festa­kynn­ingu Heima­valla.

Því er ljóst að stærsti selj­andi fast­eigna til Heima­valla á starfs­tíma félags­ins eru tvö félög í eigu íslenska rík­is­ins, ann­ars vegar Kadeco og hins vegar Íbúða­lána­sjóður.

Lang­flestar íbúðir sem Heima­vellir eiga eru á suð­vest­ur­horn­inu. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á félagið 567 íbúðir. Flestar þeirra, eða 336, telj­ast litlar enda undir 90 fer­metrum að stærð. Með­al­stærð íbúða Heima­valla á svæð­inu er 83,8 fer­metrar.

Samtals sam­anstendur því eigna­safn Heima­valla af 1.968 íbúðum og 78 pró­sent þeirra tekna sem félagið hefur af útleigu þeirra falli til vegna íbúða sem eru að í mesta lagi 45 mín­útna akstur frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða stað­settar á því. Þetta umfang gerir Heima­velli að stærsta ein­staka aðil­anum sem er til staðar á almennum leigu­mark­aði á Íslandi í dag, en áætlað er að hlut­fall leigj­enda á Íslandi sé allt að 23 pró­sent allra sem þurfa þak yfir höf­uðið.

Umfangið fimmfaldast á tveimur árum

Í skrán­ing­ar­lýs­ingu Heima­valla er hægt að nálg­ast mikið af upp­lýs­ingum um stöðu þess. Þar kemur m.a. fram að fjár­fest­inga­eignir, sem eru hús­næði í útleigu eða í bygg­ingu, sem eru í eigu Heima­valla hafi verið metið á 10,2 millj­arða króna í lok árs 2015. Síðan þá hefur félagið bætt við sig veru­legu magni slíks og virði þess um síð­ustu ára­mót var metið á 53,5 millj­arða króna. Umfang félags­ins hefur því rúm­lega fimm­fald­ast á tveimur árum.

Leigu­tekjur Heima­valla hafa vaxið um rúm­lega 2,5 millj­arða króna frá lokum árs 2015 og fram til síð­ustu ára­móta, en þær voru um 3,1 millj­arður króna í fyrra. Þegar rekstr­ar­kostn­aður þeirra eigna sem félagið leigir út er tal­inn frá voru hreinar leigu­tekjur á síð­asta ári 2,1 millj­arður króna. Þær voru 380 millj­ónir króna árið 2015.

Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimavalla, og Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands, þegar viðskipti með bréf í félaginu hófust í gærmorgun.
Guð­brandur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Heima­valla, og Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, þegar við­skipti með bréf í félag­inu hófust í gær­morgun.

Leigu­tekjur félags­ins á hvern fer­metra hafa líka hækkað umtals­vert á milli áranna 2016 og 2017, eða um 20 pró­sent. Á sama tíma jókst útleigu­hlut­fallið úr 93,2 pró­sent í 95,8 pró­sent. Með öðrum orðum þá er nán­ast allt sem Heima­vellir á í útleigu.

Rekstr­ar­hagn­aður Heima­valla áður en búið er að borga af lánum og borga skatta var 9,8 millj­arðar króna á síð­ustu þremur árum. Sá hagn­aður er til­kom­inn með tvennum hætti.

Í fyrsta lagi vegna leigu­tekna, sem raktar voru hér að ofan, og í öðru lagi vegna „mats­breyt­inga fjár­fest­inga­eigna“, sem á manna­máli þýðir hækkun á hús­næð­is­verði. Þær mats­breyt­ingar hafa verið sam­tals um 7,4 millj­arðar króna á árunum 2015 og út árið 2017.

Hagnaður Heima­valla, sem er eign hlut­hafa eftir að búið er að greiða af lánum og skatta, hefur líka vaxið feyki­lega hratt á síð­ustu árum. Árið 2015 var hann 63,2 millj­ónir króna en á síð­ustu tveimur árum var hann 2,2 og 2,7 millj­arðar króna. Sam­an­lagt hefur félagið því skilað 4,9 millj­arða króna hagn­aði á árunum 2016 og 2017.

Með lán sem eiga að stuðla að „viðráðanlegum kjörum“ fyrir leigjendur

Stór hluti þeirra upp­kaupa á hús­næði sem átt hefur sér stað í gegnum Heima­velli er fjár­magn­aður með lánum. Alls eru hreinar vaxta­ber­andi skuldir félags­ins 34,8 millj­arða króna og eig­in­fjár­hlut­fall þess í eignum sínum því um 31,4 pró­sent. Það hefur hækkað mikið á síð­ustu árum með hækk­andi fast­eigna­verði og stækkun Heima­valla, en það var ein­ungis 10,5 pró­sent í lok árs 2015. Það þýðir að 89,5 pró­sent af því sem keypt var hafði verið tekið að láni. Vert er að taka fram að hluti þeirra lána kom frá móð­ur­fé­lag­inu Heima­völlum leigu­fé­lagi en að teknu til­liti til þeirra lána hækk­aði eig­in­fjár­hlut­fallið 2015 í 21,1 pró­sent, og láns­hlut­fallið fer í 78,9 pró­sent, sam­kvæmt upp­lýs­ingum í skrán­ing­ar­lýs­ing­unni.

Heima­vellir hafa aldrei borgað út arð. Félagið stefnir þó á að gera það „þegar rekstur félags­ins er kom­inn í jafn­vægi“. Það er nefni­lega ekki ein­falt að greiða út arð úr Heima­völlum eins og er. Stór hluti af núver­andi fjár­mögnun Heima­valla er í formi lána frá Íbúða­lána­sjóði sem veitt hafa verið á grund­velli reglu­gerðar um lán­veit­ingar sjóðs­ins frá árinu 2013 til sveita­fé­laga, félaga og félaga­sam­taka sem ætl­aðar eru til bygg­ingar eða kaupa á leigu­í­búðum. Markmið þeirrar reglu­gerðar er að „stuðla að fram­boði á leigu­í­búðum fyrir almenn­ing á við­ráð­an­legum kjörum“.

Skulda Íbúðalánasjóði tæpa 19 milljarða

Í skrán­ing­ar­lýs­ingu Heima­valla segir að til að „upp­fylla form- og efn­is­skil­yrði Reglu­gerð­ar­innar mega félög sem veitt hafa verið slík lán ekki vera rekin í hagn­að­ar­skyni og úr þeim má hvorki greiða arð né arðsí­gildi“. Slík lán eru veitt til 50 ára.

Um síð­ustu ára­mót skuld­uðu Heima­vellir 18,6 millj­arða króna í slík lán. Það eru rúm­lega helm­ingur af öllum vaxta­ber­andi skuldum félags­ins.

Í skrán­ing­ar­lýs­ing­unni segir að stefna Heima­valla sé að „end­ur­fjár­magna þessi lán á næstu miss­erum enda telja stjórn­endur að félag­inu muni bjóð­ast betri kjör og skil­málar á mark­aði. Ekki er á þessu stigi hægt að segja til um hvenær slíkri end­ur­fjár­mögnun mun ljúka né á hvaða kjörum hún mun bjóð­ast. Sú hætta er fyrir hendi að félag­inu tak­ist ekki að end­ur­fjár­magna lánin á kjörum sem það telur ásætt­an­leg. Komi til þess, og félagið ákveður að eiga eign­irnar áfram, munu við­kom­andi dótt­ur­fé­lög áfram þurfa að lúta skil­yrðum Reglu­gerð­ar­innar, þ.m.t. banni við greiðslu arðs eða arðsí­gildis.“ Þar kemur einnig fram að skrán­ing félags­ins á markað sé mik­il­vægur liður í því að end­ur­fjár­magna lánin.

Til við­bótar við Íbúða­lána­sjóð er nefndur einn annar lán­veit­andi Heima­valla í lýs­ing­unni. Það er Lands­bank­inn, sem er nán­ast að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins.

Heimavellir tóku yfir félög sem Íbúðalánasjóður hafði lánað

Íbúða­lána­sjóður stað­festir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um fjár­mögnun Heima­valla að sjö dótt­ur­fé­lög Heima­vall­ar­sam­steypunnar – þau eru alls 17 – séu með leigu­í­búð­ar­lán upp á 18,6 millj­arða króna hjá sjóðnum. Þar segir einnig að þessar lán­veit­ingar hafi að langstærstum hluta upp­haf­lega verið til smærri leigu­fé­laga víðs­vegar um landið, allt frá Vest­fjörðum til Aust­ur­lands og Suð­ur­nesja. Þau leigu­fé­lög hafi Heima­vellir síðan yfir­tekið á síð­ari stigum.

Heimavallarsamsteypan.
Heima­vall­ar­sam­steypan.

Sjóð­ur­inn segir að hluti af þessum lánum, alls um átta millj­arðar króna, sé sam­kvæmt reglu­gerð­inni sem sam­þykkt var árið 2013. Restin, um 10,6 millj­arðar króna, séu svokölluð almenn leigu­í­búða­lán en um þær lán­veit­ingar hafi gilt mun rýmri reglur en gildi í dag. Þegar þeim hafi verið breytt með lögum hafi verið „sett sem skil­yrði að rekstur félaga sem tækju leigu­í­búða­lán væri með hags­muni leigu­taka að leið­ar­ljósi og skorður settar fyrir því með hvaða hætti heim­ilt væri að ráð­stafa hagn­aði“.

Búið að ná hámarksstærð

Miðað við áætl­anir Heima­valla, sem birtar eru í skrán­ing­ar­lýs­ingu fyr­ir­tæk­is­ins, þá hefur fjöldi íbúða sem félagið ætlar að eign­ast náð nán­ast hámarki. Í lok árs 2018 er búist við því að þær verði 2.026 en fækka svo niður í 1944 á árinu 2019 með sölu ákveð­inna eigna. Árið 2020 eiga þær að vera 2.026.

Heima­vellir hafa fest kaup á tals­verðum fjölda nýbygg­inga sem koma munu til afhend­ingar á næstu tveimur árum. „Alls er um að ræða 301 íbúð í Reykja­vík, Kópavogi, Mos­fellsbæ og Hafn­ar­firði. Að auki er félagið að láta end­ur­inn­rétta rými sem áður hýstu setu­stofur á Ásbrú sem skilar 28 stúd­íó­í­búðum til við­bótar við fyrr­nefndar 301. Nýjar íbúðir félags­ins eru við Hlíð­ar­enda (póstnr. 101) og Ofan­leiti í Reykja­vík (póstnr. 103), Eini­velli í Hafn­ar­firði (póstnr. 221) og Boðaþing í Kópavogi (póstnr. 203).

Samhliða kaupum á nýjum íbúðum hefur félagið unnið mark­visst að því að end­ur­skipu­leggja eigna­safn sitt. Í þessu felst að óhent­ugar leigu­ein­ingar eru seldar og hag­kvæm­ari íbúðir keyptar í stað­inn. Á árinu 2017 seldi félagið 240 íbúðir úr eigna­safn­inu sem voru að mestu stórar og/eða stakar íbúðir eða aðrar eignir sem sýndu sig vera óhent­ugar til útleigu. Það er mark­mið félags­ins að eiga sem mest heilar hús­eignir eða fjöl­býl­is­hús þar sem meiri­hluti íbúð­anna eru í eigu Heima­valla. Rekstur heillra hús­eigna er mun hag­kvæm­ari en rekstur stakra íbúða. Félagið mun vinna áfram að end­ur­skipu­lagn­ingu safns­ins á næstu miss­erum þar sem áhersla verður lögð á að selja út stakar íbúðir og stórar íbúðir sem ná ekki fram­legð­ar­mark­miðum félags­ins.“

Útboð olli vonbrigðum og verðið tók dýfu á fyrsta degi

Eign­ar­hald Heima­valla er nokkuð dreift. Stærsti ein­staki eig­and­inn er Stálskip ehf. með 8,59 pró­senta hlut. Það félag var í ára­tugi útgerð­ar­fé­lag en seldi kvóta og skip í upp­hafi árs 2014 og breytti sér í kjöl­farið í fjár­fest­ing­ar­fé­lag. Eigendur eru enn sama fjöl­skylda og átti Stálskip á árum áður, hjónin Guðrún Lár­us­dóttir og Ágúst Sig­urðs­son og börn þeirra.

Heimavellir eiga 567 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og til stendur að fjölga þeim á næstu misserum. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Heima­vellir eiga 567 íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og til stendur að fjölga þeim á næstu miss­erum. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Við­skipta­fé­lag­arnir Tómas Krist­jáns­son og hjónin Finnur Reyr Stef­áns­son og Steinunn Jóns­dóttir eiga sitt­hvor 7,54 pró­sentin í félag­inu í gegnum félögin Gana og Snæból ehf. Þá á sami hópur 95 pró­sent í Klasa ehf. sem á 3,85 pró­sent í Heima­völlum. Sam­an­lögð eign þess­ara þriggja félaga er því 18,93 pró­sent. Aðrir stórir einka­fjár­festar eru m.a. félag í eigu Magnúsar Pálma Örn­ólfs­sonar, félag í eigu Róberts Wessman og Hilmars Þórs Krist­ins­sonar og félag í eigu Jóns Ármanns Guð­jóns­sonar. Þá eiga þrjú íslensk trygg­inga­fé­lög; Sjóvá, VÍS og Trygg­inga­mið­stöðin hlut í félag­inu auk nokk­urra minni líf­eyr­is­sjóða.

Í hluta­fjár­út­boð­inu sem haldið var í síð­asta mán­uði voru boðnir til sölu 750 millj­ónir hluta í Heima­völlum en heim­ild var til að stækka útboðið upp í 900 millj­ónir hluta ef eft­ir­spurn gæfi til­efni til. Það gerði hún ekki.

Fjár­festar áttu að gera til­boð á bil­inu 1,38- 1,71 krónur á hlut fyrir stærstan hluta þess sem var til sölu. Nið­ur­staðan varð sú að vegið með­al­tal var 1,39 krónur á hlut, eða mjög nálægt lægri mörk­unum. Ekki reynd­ist þörf á að stækka úboðið enda ekki eft­ir­spurn eftir því að kaupa umfram­hlutafé á því verði sem von­ast var eftir. Athygli vakti t.d. að áhugi ann­arra líf­eyr­is­sjóða en þeirra sem þegar voru í eig­enda­hópnum var lit­ill sem eng­inn.

Bréf Heima­valla voru svo tekin til við­skipta í gær­morgun í Kaup­höll­inni og verðið í lok dags var ell­efu pró­sentum lægra en með­al­tals­gengið í útboð­inu. Eftir fyrsta dag á mark­aði lækk­aði heild­ar­virði Heima­valla í 13,9 millj­arða króna.

Með skrán­ingu á markað ávinnst þó tvennt fyrir hlut­hafa Heima­valla. Í fyrsta lagi þá getur félagið mögu­lega end­ur­fjár­magnað skuldir sínar við Íbúða­lána­sjóð vegna lán­veit­inga sem áttu að fara til þeirra sem reka ekki hagn­að­ar­drifna starf­semi, og þar með aflétt hömlum sem eru á arð­greiðslum úr félag­inu. Í öðru lagi skap­ast selj­an­leiki á bréfum, meðal ann­ars með við­skipta­vaka, sem gefur þeim hlut­höfum sem vilja selja hluti sína leið til þess. Í ljósi þess að hækk­anir á fast­eigna­verði hafa ein­ungis numið 0,9 pró­sentum á síð­asta hálfa árinu eftir að hafa farið upp um tugi pró­senta frá því að Heima­vellir voru stofn­aðir, gæti það verið leið sem ein­hverjir þeirra munu vilja nýta sér.

Ath. Í upp­runa­legu útgáfu frétta­skýr­ing­ar­innar stóð að Kadeco hefði verið lagt niður. Það er ekki rétt. Hið rétta er að starf­semi félags­ins hefur verið breytt. Skýr­ing­unni hefur verið breytt í sam­ræmi við þetta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár