Rúmlega 200 fjölskyldur eiga yfir 200 milljarða

Ríkasta eitt pró­sent lands­manna jók hreina eign sína um 53 millj­arða króna árið 2016. Sá hópur, sem telur rúm­lega tvö þús­und fjöl­skyldur, á meira af hreinum eignum en þau 80 pró­sent lands­manna sem eiga minnst. Í þeim hópi eru um 175 þús­und fjöl­skyldur.

Um 218 fjöl­skyldur, sem mynda rík­asta 0,1 pró­sent lands­manna, áttu 201,3 millj­arða króna í hreinni eign í lok árs 2016. Hópurinn jók hreinar eignir sínar um 14 millj­arða króna á því ári. Það þýðir að ef sú tala myndi dreifast jafnt á hvern og myndi það þýða að hver og einn fram­telj­andi hafi aukið hreina eign sína um 67 millj­ónir króna á árinu 2016, eða um 5,6 millj­ónir króna á mán­uði. Um er að ræða fram­telj­endur og því getur bæði verið um sam­skatt­aða og ein­stak­linga að ræða. Þessi hópur hefur sam­tals átt­faldað hreina eign sína í krónum talið, án til­lits til verð­bólgu, á tæpum tveimur ára­tugum.

Ríkasta pró­sent lands­manna, 2.180 fram­telj­endur, áttu 612,6 millj­arða króna í hreinni eign í árs­lok 2016. Auður þeirra jókst um 53,1 millj­arða króna á því ári. Þessi hópur átti meira eigið fé á þessum tíma en þau 80 pró­sent lands­manna sem áttu minnst. Sam­eig­in­legar eignir þess hóps, sem telur 174.935 fram­telj­endur, var 516,1 millj­arðar króna. Ríkasta pró­sentið hefur aukið hreina eign sína sjö­falt á tveimur ára­tugum í krónum talið.

Ríkustu fimm pró­sent lands­manna, alls um 10.900 fram­telj­endur, áttu 1.388,3 millj­arða króna í hreina eign í árs­lok 2016. Sá hópur jók eignir sínar um 139 millj­arða króna á því ári.

Eigið fé allra lands­manna jókst um 394 millj­arða króna á umræddu ári. Það þýðir að rík­asta 0,1 pró­sentið tók til sín 3,5 pró­sent af öllu nýju eigin fé, rík­asta eitt pró­sentið tók til sín 13,5 pró­sent þess og rík­ustu fimm pró­sent lands­manna tók til sín 35,3 pró­sent af öllu nýju eigin fé sem varð til á árinu 2016. Ríkasta tíund þjóð­ar­innar tók til sín tæpan helm­ing þeirrar hreinu eignar sem varð til á því ári.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um hvert eigið fé ofan­greindra hópa hafi verið í lok árs 2016. Hagstofa Íslands birtir árlega tölur um eigið fé Íslend­inga. Það gerði hún síð­ast í októ­ber 2017, og var það um að ræða tölur sem sýndu stöð­una í lok árs 2016. Þar er þó ein­ungis hægt að sjá hvernig eigið fé lands­manna skipt­ist eftir tíundum. Tölurnar sem nú hafa verið birtar sýna hvert eigið fé allra efsta lagið í íslensku sam­fé­lagi er.

Hlutfallsleg eign sýnir ekki heildarmynd

Frá árinu 2010 hefur eigið fé Íslend­inga rúm­lega tvö­fald­ast. Í lok þess árs var það 1.565 millj­arðar króna en var 3.343 millj­arðar króna í lok árs 2016.

Eigið fé efsta lags­ins hefur dreg­ist saman sem hlut­fall af heild­ar­eignum. Margir nota þá stað­reynd sem rök fyrir því að jöfn­uður sé að aukast. Það er þó hægt að horfa öðru­vísi á málið líka. Þ.e. út frá því hvernig nýr auður sem verður til skipt­ist á milli stétta sam­fé­lags­ins krónu fyrir krónu.

Í árs­lok 2010 var t.d. eigið fé 70 pró­sent þjóð­ar­innar sem átti minnst, og bundið var í fast­eign nei­kvætt um 23,5 millj­arða króna. Í árs­lok 2016 var sú eign orðin jákvæð um 263,1 millj­arða króna. Það er uppi­staðan í eig­in­fjár­aukn­ingu þorra þjóð­ar­innar, enda hefur hús­næð­is­verð tvö­fald­ast frá árinu 2010.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, lagði fram fyrirspurnina til fjármála- og efnahagsráðherra.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, lagði fram fyr­ir­spurn­ina til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Efstu 0,1, 1, 5 og tíu pró­sent rík­ustu lands­menn­irnir hafa hins vegar mun fjöl­breytt­ari leiðir til að hagn­ast, enda til­heyra þeir sem eiga þorra einka­fjár­magns Íslend­inga þessum hópum. Þar er að finna fyr­ir­tækja­eig­endur, þá sem taka þátt í hluta­bréfa­mark­aði og eiga kost á því að spila á geng­is­sveiflur með því að flytja fjár­magn til og frá land­inu eftir því sem hentar við­kom­andi fjár­hags­lega best. Í þessu lagi eru líka þeir sem hafa tök á því að nýta sér aflands­fé­lög vegna „skatta­hag­ræðis“, sem á manna­máli þýðir að ekki sé greiddur sami skattur af sömu tekjum og aðrir lands­menn þurfa að greiða. Þetta þarf ekki að vera ólög­legt, en getur verið það.

Það er engum vafa und­ir­orpið að efsta lagið tekur til sín mun stærri hluta af nýjum auði en önnur lög sam­fé­lags­ins. Og þannig hefur málum verið háttað ára­tugum saman. Í árs­lok 1997 átti rík­asta eitt pró­sent lands­manna, þá um 1.450 fjöl­skyldur, 89 millj­arða króna í eigið fé, eða 16,2 pró­sent af öllu eigin fé lands­manna. Í lok árs 2016 átti rík­asta eitt pró­sentið, þá rúm­lega tvö þús­und fjöl­skyldur, 612,6 millj­arða króna, eða 19,2 pró­sent af heild­inni. Hrein eign hóps­ins í krónum talið hefur sjö­fald­ast á þessum tæpu tveimur ára­tugum. Árið 1997 átti hver fram­telj­andi innan hóps­ins að með­al­tali 61,5 millj­ónir króna í hreina eign. Í lok árs 2016 átti hver fjöl­skylda innan rík­asta eins pró­sents lands­manna um 293,7 millj­ónir í hreinni eign.

Á sama tíma hafa þau 70 pró­sent lands­manna sem eiga minnst eigið fé séð það sam­eig­in­lega vaxa úr 27,4 millj­örðum króna, sem var þá sam­eig­in­leg eign 101.444 fram­telj­enda, í 97,5 millj­arða króna, sem er sam­eig­in­leg eign rúm­lega 153 þús­und fram­telj­enda. Þessi hópur hefur því aukið eigið fé sitt í krónum talið um 70 millj­arða króna á tæpum tveimur ára­tugum. Á sama tíma hefur eigið fé rík­asta 0,1 pró­sent lands­manna, hóps sem á tíma­bil­inu hefur talið 150-200 fjöl­skyldur, auk­ist um 176 millj­arða króna.

Mest af nýjum auði fer til efsta lags samfélagsins

Árið 2010, þegar eft­ir­hrunskreppan var sem hörð­ust hér­lendis, átti rík­asta fimm pró­sent þjóð­ar­innar 56,3 pró­sent af öllu eigin fé hennar. Það er slá­andi tala, sem end­ur­speglar í fyrsta lagi hversu illa þorri þjóð­ar­innar hafði farið fjár­hags­lega, að minnsta kosti tíma­bundið, úr hrun­inum. Í öðru lagi sýnir hún að áhrif hruns­ins á eignir efsta lags sam­fé­lags­ins voru ekki nærri jafn drastískar og á eignir ann­arra.

Frá þeim tíma hefur orðið til 1.778 millj­arðar króna af nýjum auði á Íslandi. Í lok árs 2016 var hlut­fall rík­ustu fimm pró­senta þjóð­ar­innar komið í 43,5 millj­arða króna og hafði lækkað hlut­falls­lega á hverju ári frá 2010. Þrátt fyrir það hafði þessi hópur aukið hreina eign sína um 495 millj­arða króna á tíma­bil­inu. Það þýðir að 28 pró­sent alls nýs auðs sem varð til á Íslandi á þessum árum, rúm­lega fjórða hver króna, fór til rík­ustu fimm pró­sent lands­manna.

Efnahagshrunið leiddi af sér gríðarleg mótmæli, enda varð stór hluti þjóðarinnar fyrir miklu fjárhagslegu tjóni vegna atburðanna haustið 2008.
Efna­hags­hrunið leiddi af sér gríð­ar­leg mót­mæli, enda varð stór hluti þjóð­ar­innar fyrir miklu fjár­hags­legu tjóni vegna atburð­anna haustið 2008.

Ríkasta eitt pró­sent þjóð­ar­innar jók auð sinn um 164 millj­arða króna á þessu sama tíma­bili og tók þar með til sín rúm­lega níu pró­sent af öllum nýjum auði. Ríkasta 0,1 pró­sentið tók til sín 39,2 millj­arða króna, eða 2,2 pró­sent af öllum nýjum hreinum auð.

Eignirnar vanmetnar

Virði eigna þessa hóps er reyndar van­met­inn. Þessi hópur á nefni­lega nær öll verð­bréf lands­ins í eigu ein­stak­linga, eða 86 pró­sent slíkra. Í tölum Hag­stof­unnar er þær fjár­mála­legu eignir sem telj­ast til hluta­bréf í inn­lendum og erlendum hluta­fé­lögum á nafn­virði, eign­ar­skatts­frjáls verð­bréf, stofn­sjóðs­eign og önnur verð­bréf og kröfur. Og í töl­unum eru þau metin á nafn­verði, ekki mark­aðsvirði, sem er mun hærra. Alls á tíu pró­sent rík­asti hluti lands­manna verð­bréf, m.a. hluta­bréf í inn­lendum og erlendum hluta­fé­lögum eða skulda­bréf, sem metin eru á 383,4 millj­arða króna á nafn­virði. Hin 90 pró­sent þjóð­ar­innar eiga verð­bréf sem metin eru á 62,2 millj­arða króna að nafn­virði. Þessi skipt­ing hefur hald­ist að mestu eins á und­an­förnum árum. Í lok árs 2010 átti efsta tíund lands­manna líka 86 pró­sent allra verð­bréfa.

Virði verð­bréfa í eigu Íslend­inga hækkað um 23 millj­arða króna að nafn­virði á árinu 2016. Þar af hækk­uðu bréf rík­ustu tíu pró­sent þjóð­ar­innar um 21,8 millj­arða króna. Því fór um 95 pró­sent af allri virð­is­aukn­ingu verð­bréfa til rík­ustu tíundar Íslend­inga á árinu 2016.

Verðbréf gera tvennt, þau hækka eða lækka í verði og þau búa til fjár­magnstekjur sem eig­endur þeirra fá greiddar út. Í tölum frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu vegna álagn­ingu opin­berra gjalda á ein­stak­linga 2017 kom fram að tekjur ein­stak­linga af arði hafi verið 43,3 millj­arðar króna árið 2016. Fjöldi þeirra sem töldu fram arð vegna árs­ins 2016 var 14.545 og fjölg­aði um 685 milli ára, eða um tæp­lega fimm pró­sent.

Sölu­hagn­aður jókst um 39,1 pró­sent milli ára þrátt fyrir að fjöl­skyldum sem töldu fram sölu­hagnað hafi ein­ungis fjölgað um 5,4 pró­sent. Það bendir til þess að fámennur hópur sé að taka til sín þorra þess arðs sem verður til í íslensku sam­fé­lagi.

Sölu­hagn­aður var alls 32,3 millj­arðar króna árið 2016 og þar af nam sala hluta­bréfa 28,7 millj­örðum króna og hækk­aði um 38,3 pró­sent á milli ára. Á sama tíma fjölg­aði fjöl­skyldum sem telja fram sölu­hagnað vegna hluta­bréfa um ein­ungis 3,7 pró­sent í 3.682 alls. Um tvö pró­sent fjöl­skyldna lands­ins greiddu fjár­magnstekju­skatt vegna sölu­hagn­aðar á hluta­bréfum.

Vantar földu eignirnar í skattaskjólunum

Inn í ofan­greindar tölur vantar allar þær eignir sem Íslend­ingar eiga erlendis, en hafa ekki verið taldar fram hér­lendis. Í Pana­ma-skjöl­unum var upp­lýst að tæp­lega 600 Íslend­ingar ættu um 800 félög sem Mossack Fonseca, lög­fræði­stofa sem sér­hæfir sig í „skatta­hag­ræði“ og í að fela eign­ir, sá um fyrir þá. Kjarninn, í sam­starfi við Reykja­vík Media og fleiri fjöl­miðla, fjall­aði ítar­lega um þær upp­lýs­ingar sem birt­ust í skjöl­unum vorið 2016.

Ljóst er að aflands­fé­laga­eign Íslend­inga er mun víð­tæk­ari en kom fram í þeirri umfjöllun vegna þess að Mossack Fonseca var ekki eina stofan sem þjón­u­staði Íslend­inga. Vís­bend­ingar um umfang þeirrar eignar komu fram í skýrslu um aflandseignir Íslend­inga og skattaund­an­skot vegna þeirra, sem var birt snemma í jan­úar 2017 eftir ítrek­aðar fyr­ir­spurnir Kjarnans um birt­ingu á skýrsl­unni. Hún hafði þá verið til­búin í rúma þrjá mán­uði, eða frá því fyrir kosn­ing­arnar 29. októ­ber 2016.

Í skýrsl­unni kom fram að aflands­fé­laga­væð­ingin hafi haft tugi millj­arða króna af íslenskum almenn­ingi í van­goldnum skatt­greiðslum og búið til gríð­ar­legan aðstöðumun þeirra sem hafa, bæði lög­lega og ólög­lega, getað falið fé í erlendum skatta­skjólum þegar illa árar í íslensku efna­hags­lífi en stýrt fé aftur heim til að kaupa eignir á bruna­út­sölu í nið­ur­sveiflum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jöfnuður

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hinn kerf­is­bundni íslenski ójöfn­uður

Það er eng­inn vafi að mark­aðs­bú­skapur og alþjóða­sam­vinna hefur aukið lífs­gæði á Íslandi. Árið 1994, þegar samn­ing­ur­inn um Evrópska efna­hags­svæðið (EES) tók gildi var lands­fram­leiðsla Íslend­inga 440 millj­arðar króna. Í fyrra var hún 2.555 millj­arðar. Kakan hefur því stækkað feiki­lega mikið á ald­ar­fjórð­ungi. Það er gott. Íslandi gengur best þegar við stöndum fyrir við­skipta­frelsi, alþjóða­sam­vinnu, mann­rétt­indi og leggjum áherslu á...

Mest lesið undanfarið ár