Mynd: Pexels

Nova og Vodafone bæði orðin stærri en Síminn á farsímamarkaði

Tvö af hverjum þremur síma­kortum Íslend­inga eru nú 4G kort. Notkun Íslend­inga á gagna­magni í gegnum far­síma­kerfið hefur rúm­lega 1oofaldast frá árs­lokum 2009. Þrjú fyr­ir­tæki skipta mark­aðnum bróð­ur­lega á milli sín.

Áskrif­endum að far­síma­þjón­ustu á Íslandi fjölg­aði um 2,4 pró­sent á síð­asta ári, eða um rúm­lega ell­efu þús­und. Alls eru nú 462.026 virk síma­kort á far­síma­neti hjá íslenskum fjar­skipta­fyr­ir­tækjum. Aukning hefur orðið í samn­ings­bundnum áskriftum en fyr­ir­fram­greiddum síma­kortum, oft kölluð frelsiskort, hefur fækkað. Þrjú fyr­ir­tæki skipta mark­að­inum nán­ast algjör­lega á milli sín. Nova er stærst með 33,2 pró­sent mark­aðs­hlut­deild, Vodafone er með 32,8 pró­sent mark­aðs­hlut­deild en Síminn er minnstur hinna þriggja stærstu með 32,3 pró­sent mark­aðs­hlut­deild. Samtals eru Nova, Vodafone og Síminn því með 98,3 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýj­ustu töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar sem sýnir stöð­una á fjar­skipta­mark­aði í lok síð­asta árs.

Staða Símans á far­síma­mark­aði hefur breyst mjög hratt á skömmum tíma. Fyr­ir­tækið var með mesta mark­aðs­hlut­deild á mark­aðnum frá upp­hafi far­síma­væð­ingar. Um mitt ár 2008 var Sím­inn t.d. með 56,6 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði. Í lok árs 2015 gerð­ist það í fyrsta sinn að annað fyr­ir­tæki náði þeim áfanga að vera með flesta við­skipta­vini í far­síma­þjón­ustu, þegar Nova tók fram úr Símanum. Nú hefur Vodafone líka gert það, og er það í fyrsta sinn sem Vodafone nær að vera með meiri mark­aðs­hlut­deild en Síminn. Þar skiptir auð­vitað mestu sam­runi fyr­ir­tæk­is­ins við 365 sem tók gildi í lok síð­asta árs. Mark­aðs­hlut­deild 365 var 3,2 pró­sent í lok árs 2016.

Tölvur frekar en símar

Hið hefð­bundna far­síma­­tíma­bil fjar­­skipta­­geirans er liðið undir lok og gagna­­flutn­inga­­tíma­bilið tekið við. Tíðn­i­heim­ildir fyrir 3G, ­fyrsta há­hraða­kyn­slóð far­síma­­nets­­kerf­ið, voru boðnar út á Íslandi í lok árs 2006. Kerfið er í raun mun frekar net­­kerfi en far­síma­­kerfi og gerð­i ­gagna­­flutn­ing ­mög­u­­leg­­an. Farsímar dags­ins í dag eru því fyrst og fremst tölvur, ekki símar.

4G-væð­ingin á Ísland­i hófst af alvöru á árinu 2014 þeg­ar ­fjöldi 4G-korta í símum fimm­fald­að­ist. Um mitt það ár voru 17,8 pró­sent allra virkra síma­korta 4G-kort. Í lok árs 2016 var 59,1 pró­sent þeirra 4G-kort. Um síð­ustu ára­mót voru 66,1 pró­sent allra virkra sím­korta 4G. Alls voru þau 305.442 tals­ins. Til sam­an­burðar voru virk 3G kort 122.516, eða rúm­lega fjórð­ungi færri en þau voru tveimur árum áður.

Gagnamagnsnotkun rúmlega 100faldast

Íslend­ingar not­uðu 25,4 millj­ónir gíga­bæta í far­síma­neti á árinu 2017. Það er 150 pró­sent meira gagna­magn en þeir not­uðu allt árið 2015 og rúm­lega 50 pró­sent aukn­ing frá því magni sem notað var á árinu 2016. Frá lokum árs 2009 og fram að síð­ustu ára­mótum hefur notkun Íslend­inga á gagna­magni rúm­lega 100fald­ast, en þá var notk­unin 243 þús­und gíga­bæti á ári.

Við­skipta­vinir Nova nota lang­mest gagna­magn. Hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins á þeim mark­aði er 59,2 pró­sent. Mark­aðs­hlut­deild Nova hefur þó farið lækk­andi á und­an­förnum árum. Hlut­deild sím­ans var 22,9 pró­sent í lok árs 2017 og hækk­aði lít­il­lega. Vodafone var með 16,7 pró­sent hlut­deild og jók sína mark­aðs­hlut­deild um 50 pró­sent milli ára.

Þrátt fyrir að gagna­magns­notkun okkar hafi marg­fald­ast ár frá ári er við því búist að hún muni áfram vaxa um tugi pró­senta á ári um fyr­ir­sjá­an­lega fram­tíð.

Samruni Vodafone og og fjarskipta- og ljósvakahluta 365 hafði töluverð áhrif á fjarskiptamarkaðinn. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Samruni Vodafone og og fjar­skipta- og ljós­vaka­hluta 365 hafði tölu­verð áhrif á fjar­skipta­mark­að­inn. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Notkun á gagna­magni í far­síma­neti segir þó ekki alla sög­una um gagna­magns­notkun Íslend­inga í gegnum far­síma eða önnur tæki sem geta tengst slíku neti. Uppi­staðan af gagna­magns­notkun Íslend­inga á sér­ ­stað á fasta­net­inu. Þ.e. Íslend­ingar reyna frekar að vera með snjall­tækin sín tengd fasta­neti heima hjá sér, á vinnu­stöðum og víðar frekar en að not­ast við 3G, 4G og nú 4,5G kerfin til að ná sér í gögn. Á fasta­net­inu er Sím­inn með mjög sterka stöð­u.

Síminn sterkastur á internetmarkaði

Alls eru 46,3 pró­sent allra inter­netteng­inga á Íslandi hjá Sím­an­um. Hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins fer þó lækk­andi. Vodafone er ­með 37,1 pró­sent og jók hlut­deild sína um þriðj­ung milli ára. Þar skiptir, líkt og á öðrum sviðum, sam­run­inn við 365 miklu máli. Þessir tveir aðilar með tölu­verða yfir­burði á mark­aðn­um. Sam­an­lögð mark­aðs­hlut­deild Símans og Vodafone í inter­net­þjón­ustu er nú 83,4 pró­sent.

Hringdu hefur hins vegar bætt vel við sig á und­an­förnum árum. Á síð­ustu tveimur árum hefur ­mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins farið úr 5,4 pró­sent í 7,3 pró­sent. Við­skipta­vinum Hringdu hefur fjölgað um 3.076 frá lokum árs 2015 og eru nú 9.817 tals­ins.

Nova seldi lengi vel ekki inter­net­þjón­ustu með öðrum hætti en í gegnum far­síma­kerfi. Á því varð breyt­ing á árinu 2016 þegar að fyr­ir­tæk­ið til­kynnti að það ætl­aði að hefja ljós­leið­ara­þjón­ust­u. Nova er í flokknum „Annað“ í skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofnun ásamt öðrum minni þátt­tak­endum þegar kemur að inter­netteng­inum en hlut­deild þess flokks hefur farið úr 5,8 pró­sent í lok árs 2016 í 9,2 pró­sent í lok síð­asta árs.

Heild­ar­fjöldi þeirra sem eru með sjón­varp í gegnum netteng­ingar var 107.389 í lok síð­asta árs. Síminn hefur verið stærstur á þeim mark­aði og í lok árs 2015 var mark­aðs­hlut­deild hans til að mynda 57,5 pró­sent. Hún hefur lækkað á síð­ustu tveimur árum og er nú 52,6 pró­sent. Hinn leik­and­inn á mark­aðnum, Vodafone, er með 47,4 pró­sent hlut­deild eftir sam­run­ann við 365.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið undanfarið ár