Mynd: Nasdaq Iceland

Meðallaun forstjóra í Kauphöllinni eru 4,7 milljónir á mánuði

Laun for­stjóra í Kaup­höll­inni hafa flest hækkað mikið á und­an­förnum árum. Í flestum til­fellum nemur launa­hækk­unin marg­földum lág­marks­launum. Meðal for­stjór­inn er með tæp­lega 17föld lág­marks­laun.

Fjórir for­menn verka­lýðs- og stétt­ar­fé­laga sendu í gær frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu þar sem þeir for­dæmdu launa­hækkun for­stjóra N1, sem hækk­aði um eina milljón króna á mán­uði á síð­asta ári og er nú með 5,9 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun, og sögðu laun hans jafn­gilda launum 22 afgreiðslu­manna hjá félag­inu. Þeir skor­uðu á stjórn­endur N1 að veita starfs­fólki sínu sam­bæri­legar kjara­bætur taf­ar­laust

N1 er, eins og flest félög sem skráð eru í Kauphöll Íslands, að stórum hluta í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Þeir eiga, beint eða óbeint, um helm­ing allra skráðra hluta­bréfa hér­lendis. Þrýst­ingur hefur skap­ast á sjóð­ina að grípa inn í launa­þróun æðstu stjórn­enda félaga sem þeir eiga stóran hlut í, þar sem hún sendi verstu mögu­legu skila­boð sem hægt sé að senda inn í kom­andi kjara­við­ræður venju­legs launa­fólks. Enn sem komið er hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir ekki brugð­ist við með neinum hætti.

Í þessu sam­bandi má benda á að lág­marks­laun á Íslandi eru 280 þús­und krónur á mán­uði og mið­gildi heild­ar­launa hér­lendis árið 2016 voru 583 þús­und krónur á mán­uði, sem þýðir að helm­ing­ur launa­manna var með laun und­ir þeirri upp­hæð á því ári. Það ár var fjórð­ung­ur launa­manna með 470 þús­und krón­ur eða minna í heild­ar­laun og tí­undi hver launa­maður með lægri laun en 381 þús­und krón­ur fyr­ir fullt starf.

Það eru alls 16 for­stjórar yfir félög­unum sem skráð eru á íslenskan hluta­bréfa­markað. Þeir eru allir karlar. Kjarninn tók saman launa­kjör þeirra úr birtum árs­reikn­ingum og hvernig þau hafa þró­ast á und­an­förnum árum. Nið­ur­staðan er sú að meðal Kaup­hallar-for­stjór­inn er með 4,7 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun. Það eru tæp­lega 17föld lág­marks­laun.

Fjarskiptafélög

Orri Hauksson, for­stjóri Símans, hækk­aði laun sín um 12,4 pró­sent milli ára. Hann var með um fjórar millj­ónir króna á mán­uði í laun í fyrra. Laun hans voru ekki gefin upp sér­stak­lega í árs­reikn­ingi Símans fyrir árið 2014 en ári síðar, 2015, var hann með tæp­lega 3,4 millj­ónir króna á mán­uði. Mán­að­ar­laun hans höfðu því hækkað um 600 þús­und krónur á tveimur árum.

Hjá hinu fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu sem skráð er á markað, Fjar­skiptum, situr Stefán Sig­urðs­son í for­stjóra­stólnum. Hann er með tölu­vert hærri laun en Orri, eða tæpar 4,7 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra. Laun hans lækk­uðu hins vegar lít­il­lega í fyrra. Stefán var með tæp­lega 3,2 millj­ónir króna á mán­uði í laun árið 2014 þegar hann tók við starf­inu. Síðan þá hafa mán­að­ar­laun hans því hækkað um 1,5 milljón króna.

Eldsneytissalar

Tveir elds­neyt­is­salar eru skráðir í Kaup­höll­ina. Annar þeirra er Skelj­ungur. For­stjóra­skipti urðu þar seint á síð­asta ári þegar Valgeir Bald­urs­son var settur til hliðar og Hendrik Egholm tók við starf­inu. Hann hafði áður verið fram­kvæmda­stjóri P/​F Magn, dótt­ur­fé­lags Skelj­ungs í Fær­eyj­um. Árið 2016 var Hendrik með hærri laun en Valgeir þrátt fyrir að vera í raun und­ir­maður hans. Hann var þá með 48 millj­ónir króna í árs­laun og því fjórar millj­ónir króna í laun á mán­uði. Valgeir fékk hins vegar 44 millj­ónir króna í heild­ar­laun það árið, eða tæp­lega 3,7 millj­ónir króna á mán­uði.

Það hefur hins vegar kostað skild­ing­inn fyrir Skeljung að segja Valgeiri upp. Gjald­færð laun til hans vegna síð­asta árs, og vegna starfs­loka hans, voru 104 millj­ónir króna. Það útleggst sem 8,7 millj­ónir króna á mán­uði en vert er að taka fram að umtals­verður hluti af greiðslum til hans voru ógreiddar í lok árs 2017 þrátt fyrir að þær hefðu verið gjald­færðar. Hendrik hækkað í launum milli ára um 12,5 pró­sent og var með 54 millj­ónir króna í heild­ar­laun, eða 4,5 millj­ónir króna á mán­uði.

Laun Eggerts Þórs Kristóferssonar, „ódýra forstjórans“, hækkuðu um eina milljón króna á mánuði í fyrra.
Laun Eggerts Þórs Krist­ó­fers­sonar, „ódýra for­stjór­ans“, hækk­uðu um eina milljón króna á mán­uði í fyrra.

Hinn elds­neyt­is­sal­inn sem skráður er á markað er N1. Þar er for­stjór­inn Egg­ert Þór Krist­ó­fers­son. Hann var með tæpar 5,9 millj­ónir króna á mán­uði í laun á síð­asta ári. Heild­ar­laun hans á því ári námu 70,5 millj­ónum króna og hækk­uðu um rúm­lega 12 millj­ónir króna á árinu, eða um eina milljón króna á mán­uði. Í við­tali við Við­skipta­blaðið í byrjun mars 2015 sagði Egg­ert Þór að það sæist í árs­skýrslu félags­ins að hann væri „ódýri for­stjór­inn“. Laun hans fyrsta árið sem hann sat í stóli for­stjóra voru lægri en laun fyr­ir­renn­ara sín. Heild­ar­laun hans á því ári voru 43,8 millj­ónir króna, eða tæp­lega 3,7 millj­ónir króna á mán­uði. Í fyrra höfðu mán­að­ar­laun Egg­erts Þórs hins vegar hækkað um 2,2 millj­ónir króna á tveimur árum og heild­ar­laun hans á ári um 26,7 millj­ónir króna á sama tíma.

Fasteignafélög

Þrjú fast­eigna­fé­lög eru skráð í Kaup­höll­ina. For­stjóri Eikar er Garðar Hannes Frið­jóns­son. Laun hans hækk­uðu um tvær millj­ónir króna á milli ára og heild­ar­laun hans voru 36 millj­ónir króna árið 2017. Það gera þrjár millj­ónir króna á mán­uði.

Helgi S. Gunn­ars­son, for­stjóri Regins, lækk­aði umtals­vert í launum í fyrra og var með 33,2 millj­ónir króna í heild­ar­laun. Það þýðir að mán­að­ar­laun hans voru tæp­lega 2,8 millj­ónir króna.

Sá for­stjóri fast­eigna­fé­lags sem var með hæstu mán­að­ar­launin í fyrra var Guðjón Auð­uns­son hjá Reitum. Heild­ar­laun hans hækk­uðu um 12,1 pró­sent á milli ára og voru 44,4 millj­ónir króna árið 2017. Það gera 3,7 millj­ónir króna á mán­uði.

Tryggingafélög

Þrjú trygg­inga­fé­lög eru skráð á markað. Eitt þeirra er Sjóvá þar sem Hermann Björns­son situr í for­stjóra­stólnum. Laun Hermanns hækk­uðu sam­tals um 2,9 millj­ónir króna í fyrra, eða um rúm sex pró­sent. Heild­ar­launin það árið voru 49,8 millj­ónir króna og mán­að­ar­launin því tæp­lega 4,2 millj­ónir króna. Árið 2014 var Hermann með 39,2 millj­ónir króna í heild­ar­laun, eða 3,3 millj­ónir króna á mán­uði. Mán­að­ar­launin hafa því hækkað um rúm­lega 900 þús­und krónur á þremur árum.

Mánaðarlaun forstjóra í Kauphöllinni Íslands:

  • Árni Oddur Þórð­ar­son 7,8 millj­ónir á mán­uði
  • Finnur Árnason 6,4 millj­ónir króna á mán­uði*
  • Eggert Krist­ó­fers­son 5,9 millj­ónir á mán­uði
  • Helgi Bjarna­son 5,9 millj­ónir á mán­uði**
  • Gylfi Sig­fús­son 5,6 millj­ónir króna á mán­uði
  • Stefán Sig­urðs­son 4,7 millj­ónir á mán­uði
  • Björgólfur Jóhanns­son 4,6 millj­ónir króna á mán­uði
  • Hendrik Egholm 4,5 millj­ónir á mán­uði
  • Sigurður Við­ars­son 4,3 millj­ónir á mán­uði
  • Vil­hjálmur Vil­hjálms­son 4,2 millj­ónir á mán­uði
  • Hermann Björns­son 4,2 millj­ónir á mán­uði
  • Orri Hauksson fjórar millj­ónir á mán­uði
  • Finnur Oddsson 3,8 millj­ónir á mán­uði
  • Guðjón Auð­uns­son 3,7 millj­ónir króna á mán­uði
  • Garðar Hannes Frið­jóns­son þrjár millj­ónir á mán­uði
  • Helgi S. Gunn­ars­son 2,8 millj­ónir á mán­uði

*Laun fyrir rekstr­ar­árið 2016/2017

**Settist í stól for­stjóra um mitt ár 2017

Hjá TM er Sigurður Við­ars­son for­stjóri. Launin hans stóðu nán­ast í stað á milli ára og voru allt í allt 51,4 millj­ónir króna í fyrra. Það gerir mán­að­ar­legan launatékka að með­al­tali upp á 4,3 millj­ónir króna. Árið 2014 voru mán­að­ar­laun Sigurðar um 3,6 millj­ónir króna. Þau hafa því hækkað um 700 þús­und á þremur árum.

Hjá VÍS urðu for­stjóra­skipti í fyrra þegar Helgi Bjarna­son tók við af Jakobi Sig­urðs­syni. Þau vist­ar­skipti urðu á miðju ári. Helgi var sam­tals með 35,5 millj­ónir króna í laun í fyrra fyrir þá sex mán­uði sem hann starf­aði hjá VÍS, sem gera 5,9 millj­ónir króna að með­al­tali. Ef reiknað er með­al­tal for­stjóra­launa bæði Helga og Jakobs voru með­al­tals­mán­að­ar­laun for­stjóra VÍS í fyrra fimm millj­ónir króna.

Árið 2014 var Sigrún Ragna Ólafs­dóttir, síð­asta konan til að stýra skráðu félagi á Íslandi, for­stjóri VÍS. Hún var með þrjár millj­ónir króna á mán­uði í laun, sem er 2,9 millj­ónum krónum minna en með­al­tals­laun Helga hjá VÍS í fyrra og tveimur millj­ónum krónum minna en með­al­laun karl­for­stjór­anna tveggja voru á því ári.

Gömlu risarnir

Tvö af rót­grón­ustu fyr­ir­tækjum lands­ins eru Icelandair Group og Eimskip. Hjá því fyrr­nefnda situr Björgólfur Jóhanns­son í for­stjóra­stólnum. Hann var með 55,5 millj­ónir króna í heild­ar­laun í fyrra, eða rúm­lega 4,6 millj­ónir króna á mán­uði. Síðasta ár var ekki sér­stak­lega gott fyrir Icelandair Group. Í upp­hafi þess árs var virði félags­ins í Kaup­höll­inni 112 millj­arðar króna. Í lok þess var virðið komið niður í 71,3 millj­arða króna. Þrátt fyrir það hækk­uðu laun Björg­ólfs lít­il­lega á árinu 2017. Björgólfur var með 3,8 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun árið 2014. Síðan þá hafa mán­að­ar­laun hans því hækkað um 800 þús­und krónur.

Marel er langverðmætasta félagið í Kauphöll Íslands. Og forstjóri þess, Árni Oddur Þórðarson, sá forstjóri sem er með hæstu mánaðarlaunin. Mynd: Marel.
Marel er lang­verð­mætasta félagið í Kauphöll Íslands. Og for­stjóri þess, Árni Oddur Þórð­ar­son, sá for­stjóri sem er með hæstu mán­að­ar­launin. Mynd: Marel.

Gylfi Sig­fús­son er for­stjóri Eimskips. Hann var með 67,4 millj­ónir króna í laun árið 2017 sem er nán­ast sama upp­hæð og hann var með árið áður. Það þýðir að mán­að­ar­laun hans voru að með­al­tali 5,6 millj­ónir króna. Laun hans 55 pró­sent í evrum talið frá árinu 2014.

Marel og Grandi

Lang­verð­mætasta félagið í Kauphöll Íslands er Marel. Það er í dag rúm­lega 250 millj­arða króna virði, sem jafn­gildir um 30 pró­sent af verð­mæti allra skráðra hluta­fé­laga á Íslandi. Velta félags­ins er um 125 millj­arðar króna á ári.

For­stjóri Marel er Árni Oddur Þórð­ar­son. Hann var með 581 þús­und evrur í laun í fyrra, sem gera um 70 millj­ónir króna miðað við gengi krónu í lok árs. Auk þess fékk hann um 198 þús­und evrur í kaupauka­greiðslur, um 24 millj­ónir króna, og því voru heild­ar­laun hans um 7,8 millj­ónir króna á mán­uði. Hann er því launa­hæsti for­stjór­inn í Kaup­höll­inni. Laun og kaupauka­greiðslur Árna Odds hækk­uðu um fimm pró­sent í evrum talið milli áranna 2016 og 2017.

Annað skráð félag sem gerir upp í evrum er sjáv­ar­út­vegs­ris­inn HB Grandi. Vil­hjálmur Vil­hjálms­son, for­stjóri þess, hækk­aði um 21 pró­sent í launum í fyrra þegar þau eru skoðuð í evrum. Árslaun hans fóru úr 349 þús­und evrum í 421 þús­und evrur. Það þýðir að árs­laun hans voru um 50,7 millj­ónir króna miðað við með­al­gengi evru í fyrra, og því um 4,2 millj­ónir króna á mán­uði.

Origo og Hagar

Þá standa eftir tvö félög. Hjá Origo, sem áður hét Nýherji, er Finnur Oddsson for­stjóri. Laun hans hækk­uðu um 2,5 millj­ónir króna í fyrra upp í 45,7 millj­ónir króna. Það gera mán­að­ar­laun upp á 3,8 millj­ónir króna á mán­uði. Laun Finns hafa hækkað mikið á und­an­förnum árum. Árið 2014 var hann með 2,1 milljón króna á mán­uði. Mán­að­ar­laun hans hefur því hækkað um 1,7 millj­ónir króna á þremur árum.

Hagar, stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki á Íslandi, átti erfitt ár í fyrra, sér­stak­lega vegna inn­komu Costco á mark­að­inn. Mark­aðsvirði félags­ins dróst saman um 20 millj­arða króna á árinu, þótt það hafi rétt aðeins úr kútnum það sem af er árinu 2018.

Hagar gera ekki upp með sama hætti og önnur félög sem skráð eru á markað. Þ.e. rekstr­ar­árið þeirra er ekki alm­an­aks­árið og því mun árs­reikn­ingur félags­ins fyrir síð­asta rekstr­arár ekki liggja fyrir fyrr en í maí. Finnur Árnason, sem hefur verið for­stjóri Haga um ára­bil, var hins vegar með 76,6 millj­ónir króna í laun á rekstr­ar­ár­inu 2016/2017. Það gera um 6,4 millj­ónir króna á mán­uði. Laun hans og hlunn­indi hafa verið á þessum nótum und­an­farin ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár