Sigmundur flytur í hús Boga Pálssonar

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, er fluttur í hús sem var í eigu mágs hans, Boga Óskars Páls­sonar, fyrrum stjórn­ar­manns Exista. Bogi afsal­aði hús­inu til for­eldra sinna ári eftir hrun.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, er nú að flytja í glæsi­höll í Garðabæ við Skrúðás 7 ásamt eig­in­konu sinni, Önnu Sig­ur­laugu Páls­dóttir, og dóttur þeirra. Vísir greindi frá þessu þann 13. des­em­ber. Áður hefur Sig­mundur búið í Selja­hverf­inu í Breið­holti.

Samkvæmt fast­eigna­skrá eiga for­eldrar Önnu Sig­ur­laugar, Páll Sam­ú­els­son og Elín Sigrún Jóhann­es­dóttir, húsið við Skrúðás sem metið er á 115 millj­ónir króna. En húsið á sér sögu líkt og flest hús. Fyrri eig­andi húss­ins var eign­ar­halds­fé­lagið Stofn sem Stundin fjall­aði nokkuð ítar­lega um í sept­em­ber stuttu eftir að félagið var form­lega úrskurðað gjald­þrota. Lýstar kröfur í búið voru tæp­lega 308 millj­ónir króna. Ríflega sex millj­arða króna skuldir félags­ins voru færðar niður eftir hrun.

Nýtt heimili forsætisráðherra
Nýtt heim­ili for­sæt­is­ráð­herra Samkvæmt frétt Vísis er þetta nýtt heim­ili Sig­mundar Davíðs.

Stofn var í eigu Boga Óskars Páls­sonar, fyrr­ver­andi stjórn­ar­manns Exista og mágs Sig­mundar Davíðs. Bogi keypti húsið árið 2005 þegar allt lék í lyndi hjá honum en árið áður greiddi hann næst mest allra Reyk­vík­inga í opin­ber gjöld. Í apr­íl­mán­uði 2009 var húsið flutt yfir á félagið Stofn. Óljóst er hvað félag Boga borg­aði Boga fyrir húsið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár