Easy Jet aldrei flogið hærra - Mikill vöxtur á flestum mörkuðum

Breska lággjalda­flugfélagið Easy Jet hefur hækkað hagnaðarspá sína fyrir þetta rekstrarár, og gerir nú ráð fyrir árlegum hagnaði upp á 700 milljónir punda, eða sem nemur tæplega 140 milljörðum króna. Fyrri spár höfðu gert ráð fyrir 600 milljóna punda hagnaði.

Ástæðan sem nefnd er í uppgjörs­tilkynningu félagsins er meðal annars sú að fleiri Bretar sóttu til sólar­landa við Miðjarðarhaf en ráð var fyrir gert, og er örlítið meiri kuldi í júní og júlí nefnd sem líklega ástæða fyrir því.

Carolyn McCall, framkvæmda­stjóri Easy Jet, segir í tilkynningu mikil eftir­spurn sé nú frá Bretum sem vilja komast í frí til sólar­stranda við Miðjarðarhaf og einni í borgar­ferðir vítt og breitt um heiminn.

Þá hafa aðrir markaðir gengið vel. Easy Jet er eitt þeirra félaga sem flutt hefur ferðamenn til og frá Íslandi frá því í mars 2012. Frá þeim tíma hefur vöxturinn í ferða­þjónustu hér á landi verið gríðar­lega mikill og hraður, en búist er við því að ferðamenn fari jafnvel nálægt því að verða 1,5 milljón á þessu ári, til saman­burðar við tæplega eina milljón í fyrra.


EasyJet Sees Profit Boost From Record Summer http://t.co/U9wnUd2IzE


— Sky News (@SkyNews) September 3, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár