"Ég sver" - Auglýsing frá Sky News gerir grín að formönnum stjórnmálaflokka

Kosninga­baráttan í Bretlandi er farin á fullt enda aðeins fimm vikur til kosninga. Mikil spenna ríkir fyrir tveggja klukku­stunda rökræðum milli leiðtoga flokkanna, sem verður sjón­varpað í kvöld. Þetta verður í fyrsta og eina skiptið sem leiðtogar allra sjö flokkanna sem bjóða fram koma saman með þessum hætti.

Sjónvarps­stöðin Sky er, líkt og aðrir breskir fjöl­miðlar, með umfangs­mikla umfjöllun um kosningarnar. Fjöl­miðillinn hefur þó farið óvenju­lega leið til að auglýsa umfjöllun sína. Búið er að klippa saman myndbúta af leiðtogum flokka við lagið I Swear með hljóm­sveitinni Boyz 2 Men. Lagið kallar fjöl­miðillinn Ballot Ballad - ballöðuna um kjör­seðilinn, og gerir grín að loforða­flaumi stjórn­mála­flokkanna í kosninga­baráttu.

Sjón er sögu ríkari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár