Ákærð fyrir fjögur morð á sjúkrahúsi í Danmörku

Fyrr í vikunni hófust í Danmörku réttarhöld yfir hjúkrunar­fræðingi sem grunaður er um að hafa orðið fjórum sjúklingum að bana á sjúkra­húsinu í Nykøbing á eyjunni Falstri.

Hjúkrunar­fræðingurinn, þrítug kona, var á næturvakt á sjúkra­húsinu í Nykøbing (Nykøbing F sygehus) aðfara­nótt 1. mars sl. Þessa nótt létust þrír sjúklingar á hennar deild á sjúkra­húsinu. Kærasti vinnu­félaga konunnar hringdi til lögreglu um hádegisbil þann dag og sagði frá því að unnasta sín, sem vann á spítalanum og er vitni í málinu, hefði komið óvænt inn á stofu á deildinni um nóttina. Þar hefði hún séð hjúkrunar­fræðinginn með tvær sprautu­nálar í hendinni bogra yfir rúmliggjandi konu. Hjúkrunar­fræðingurinn hafði reynt að fela sprautu­nálarnar en vitnið sagðist hafa séð þær mjög greini­lega. Skömmu síðar dó konan á áður­nefndri stofu og ennfremur tveir aðrir sjúklingar á þessari sömu deild. Fjórði sjúklingurinn var hætt kominn en læknum tókst að endur­lífga hann.

Við rannsókn fannst mikið magn morfíns og stesolids (róandi) í blóði þeirra þriggja sem létust þessa nótt og sömu sögu var að segja af sjúklingnum sem lifði af. Lögreglunni í Nykøbing þótti frásögn vitnisins svo trúverðug að hjúkrunar­fræðingurinn var hand­tekinn þennan sama dag og hefur setið í gæslu­varðhaldi síðan. Sprauturnar sem saksóknari í réttar­höldunum kallar morð­vopnin fundust á spítalanum. Ein sprautu­nálin innihélt leifar, áður­nefnds morfíns og stesolids auk eins efnis til viðbótar en læknar og hjúkrunar­fræðingar hafa borið fyrir réttinum að þessum þrem efnum sé aldrei blandað saman. Efnin voru þau sömu og fundust í blóði sjúklingsins sem tókst að endur­lífga.

Umfangsmikil rannsókn


Rannsókn máls­ins hefur verið mjög umfangs­mikil og um það bil eitt hund­rað manns verið yfir­heyrðir. Skömmu eftir að konan var hand­tekin vakn­aði grunur um að hún tengd­ist enn einu manns­láti, á ann­ari deild, á þessu sama sjúkra­húsi árið 2012. Hún hefur nú verið ákærð vegna þess máls ásamt hinum fyrri.

Tíu andlát að auki skoðuð


Við upp­haf rétt­ar­hald­anna var frá því greint að verið væri að rann­saka tíu and­lát til við­bótar. Að sögn sak­sókn­ara leikur grunur á að hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn teng­ist þeim en nið­ur­stöður úr þeim rann­sóknum eiga að liggja fyrir innan nokk­urra mán­aða.

Við réttar­höldin kom fram að vinnu­félagar konunnar á sjúkra­húsinu höfðu rætt sín á milli um að "það gerðist alltaf svo mikið" þegar hún væri á næturvakt og einn hjúkrunar­fræðingur hafði neitað að vera með henni á vakt á nóttunni.

Slúður segir verjandinn


Verjandi hjúkr­un­ar­fræð­ings­ins segir að það sem starfs­fólk tali um sín á milli sé ekki mark­tækt. Það sé ein­fald­lega slúður eins og þekk­ist á öllum vinnu­stöðum og hafi vinnu­fé­lag­arnir haft grun um eitt­hvað mis­jafnt hafi þeir átt að hafa sam­band við lög­reglu en ekki pískra á göng­unum. Skjól­stæð­ingur sinn hafi lýst sig sak­lausan af öllum ásök­unum. Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn hefur verið úrskurð­aður í áfram­hald­andi gæslu­varð­hald næstu fjórar vikur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár