Engin greining fór fram á hvernig lækkun veiðigjalds myndi skiptast

Stjórn­völd létu ekki greina hvernig lækkun á veiði­gjöldum myndi skipt­ast niður á útgerðir. Stærstu útgerðir lands­ins myndu taka langstærstan hluta af þeim tekjum sem ríkið hefði gefið eftir.

Kristján Þór Júlíusson er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son er sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Hringbraut

Engin grein­ing fór fram innan sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins á því hvernig boðuð lækkun veiði­gjalda, sem lögð var til í frum­varpi atvinnu­vega­nefndar í síð­ustu viku, myndi skipt­ast niður á útgerðir. Þrátt fyrir að hug­takið „smærri útgerðir“ sé notað í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varp­inu þá er ekki hægt að fá svar við því hjá ráðu­neyt­inu hver skil­grein­ingin á „smærri útgerðum“ sé.

Lækkun veiði­gjalda hefði getað orðið meiri en 2,6 millj­arðar króna, en sam­kvæmt grein­ar­gerð frum­varps­ins var búist við því að áhrifin á tekjur rík­is­sjóðs á yfir­stand­andi alm­an­aks­ári verði lækkun upp á 1,7 millj­arða króna. Tekj­urnar sem rík­is­sjóður átti að inn­heimta sam­kvæmt fjár­lögum voru tíu millj­arðar króna en eftir lækk­un­ina yrðu þær 8,3 millj­arðar króna.

Ekkert verður þó af lækk­un­inni eftir að sam­komu­lag náð­ist um það seint í gær­kvöldi milli stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu að fram­lengja lög um veiði­gjöld óbreytt.

Í Frétta­blað­inu í vik­unni kom fram að sam­kvæmt útreikn­ingum blaðs­ins fari 80 pró­sent lækk­un­ar­innar til stærri útgerða, þ.e. þeirra sem greiða meira en 30 millj­ónir króna á ári í veiði­gjöld. Þessar stóru útgerðir eru á sjötta tug tals­ins. Blaðið reikn­aði það einnig út að um helm­ingur fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á veiði­gjöldum hefði lent í vasa tíu stærstu útgerða lands­ins.

Engin algild skilgreining á „smærri útgerðum“

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins og spurði hvort það hefði látið greina hvernig ávinn­ingur af lækkun veiði­gjalda, sem lagður var til í frum­varpi atvinnu­vega­nefndar mið­viku­dag­inn 30. maí, skipt­ist á milli útgerða.

Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur fram að það hafi ekki verið gert. „Veiði­gjald hefur síð­ustu ár verið lagt á land­aðan afla en ekki úthlutað afla­mark og er fjár­hæð þess gerð upp í fyrir hvern ein­stakan mánuð. Þó úthlutun afla­marks liggi fyrir í upp­hafi fisk­veiði­árs þá er leyfi­legt að færa afla­mark milli skipa, milli ára, fram­selja öðrum fyr­ir­tækjum og skipta milli fisk­teg­unda. Fyrir fisk­veiði­árið 2018/2019, sem hefst 1. sept­em­ber, hefur síðan hvorki ekki verið úthlutað afla­marki, né er komin ráð­gjöf um heild­ar­afla fisk­veiði­árs­ins í mörgum mik­il­vægum nytja­stofnum. Því er ekki hægt að reikna nákvæm­lega hvernig end­ur­á­kvörðun veiði­gjalds fyrir alm­anksárið 2018 myndi skipt­ast á ein­staka fyr­ir­tæki.“

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins sagði að hækkun á per­sónu­af­slætti útgerða hefði „einkum gagn­ast smærri útgerðum“. Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til ráðu­neyt­is­ins og spurði hver væri skil­grein­ingin á „smærri útgerðum“, hvaða aðrir stærð­ar­flokkar af útgerðum séu skil­greindir og hvernig ávinn­ingur af lækkun veiði­gjalda skipt­ist á milli þeirra flokka?

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að engin sam­ræmd eða algild skil­grein­ing sé til um hvað telj­ist til smærri útgerða í til­liti laga um veiði­gjald. „Hins vegar má geta þess að í frum­varpi um end­ur­á­kvörðun veiði­gjalds eru þau fyr­ir­tæki sem greiddu yfir 30 millj. kr. í veiði­gjald á fisk­veiði­ár­inu 2016/2017 und­an­skilin rétti til við­bótar per­sónu­af­sláttar sam­kvæmt frum­varp­inu. Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef­síðu Fiski­stofu greiddu 25 fyr­ir­tæki veiði­gjald yfir þeirri fjár­hæð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár