Veiðigjöldum ekki breytt og samið um þinglok

Stjórn­mála­flokk­arnir hafa náð saman um hvaða málum skal ljúka fyrir þing­flok.

Sam­komu­lag hefur náðst um að draga nýtt frum­varp um veiði­gjöld til baka, og fram­lengja þess í staða lögin um veiði­gjöldin, og verða þau því óbreytt, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Miklar deilur hafa verið í þing­inu und­an­farna daga vegna veiði­gjalda­frum­varps­ins, en stjórn­ar­and­staðan sak­aði rík­is­stjórn­ar­flokk­anna um að reyna að þrönga veiði­gjalda­frum­varpi í gegnum þingið, undir tíma­pressu, sem hefði þýtt tölu­verða lækkun að veiði­gjöld­unum fyrir útgerðir í land­inu.

Eftir fund­ar­höld flokk­anna hefur náðst sátt um að fram­lengja gild­andi lög, eins og áður segir, og má búast við að Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, mæli fyrir slíku máli innan skamms.

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir voru einnig með mál á odd­inum, sem krafa var uppi um að ljúka þyrfti áður en farið yrði í sum­ar­frí.

Hjá Við­reisn var það þings­á­lyktun um þjóð­ar­sátt um bætt kjör kvenna­stétta, hjá Sam­fylk­ingu voru það breyt­ingar á barna­lögum og hjá Mið­flokki er það þings­á­lykt­un­ar­til­laga um óháða, fag­lega stað­ar­vals­grein­ingu fyrir nýtt þjóð­ar­sjúkra­hús, sem meiri­hluti vel­ferð­ar­nefndar lagði í gær til að yrði felld.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans verða í það minnsta málin sem Viðreisn og Sam­fylk­ing vildu leggja fram og ljúka, sett í for­gang áður þingið fer í sum­ar­frí, að öllum lík­indum í lok næstu viku.

Fjallað var ítar­lega um stöðu mála og deilur stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu, í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár