Tilboð liggur fyrir um lausn á veiðigjaldadeilunni

Lík­leg­asta nið­ur­staða í deil­unni um veiði­gjalda­frum­varpið er sú að fallið verði frá lækkun veiði­gjalda og núgild­andi ákvæði fram­lengd. Nýtt frum­varp um breyt­ingar á inn­heimtu þeirra verði svo lagt fram í haust.

Mikið mæðir á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Hún þarf að höggva á hnútinn í veiðigjaldamálinu til að farvegur fyrir lok þingstarfa skapist.
Mikið mæðir á Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Hún þarf að höggva á hnút­inn í veiði­gjalda­mál­inu til að far­vegur fyrir lok þing­starfa skap­ist. Mynd: Bára Huld Beck

Reynt verður til þrautar að ná sátt um veiði­gjalda­frum­varpið á milli þeirra flokka sem sæti eiga á Alþingi á fundum sem eiga að hefj­ast um hálf ell­efu leytið. Þá munu þing­flokks­for­menn stjórn­mála­flokk­anna fyrst hitt­ast og for­menn þeirra í kjöl­farið. Heim­ildir Kjarnans herma að fyrir liggi óform­legt til­boð frá rík­is­stjórn­ar­meiri­hlut­anum um að gild­andi lög um veiði­gjöld verði fram­lengd án þess að inn­heimt gjöld verði lækkuð. Við­mæl­endur Kjarnans segja að í því felist að flöt krónu­tölu­lækkun og hækkun per­sónu­af­sláttar á minni útgerðir séu úti. Það þurfi þó að leggja fram nýtt frum­varp og ekki sé úti­lokað að reynt verði að ná per­sónu­af­slætt­inum aftur inn þegar það fer inn til atvinnu­vega­nefndar.

[links]Frum­varpið var lagt fram af meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar fyrir viku síðan, þegar örfáir dagar voru eftir af þing­inu. Í því felst, sam­kvæmt grein­ar­gerð þess, að greiðslur veiði­gjalda á yfir­stand­andi alm­an­aks­ári lækki úr tíu millj­örðum króna í 8,3 millj­arða króna. Því hefðu tekjur rík­is­sjóðs dreg­ist saman um 1,7 millj­arða króna í ár ef frum­varpið hefði verið sam­þykkt.

Núgild­andi veið­i­­gjalda­á­­kvæði renna út þann 31. ágúst næst­kom­andi og verði ekk­ert gert þýðir það að engin veið­i­­­gjöld verða inn­­heimt síð­­­ustu fjóra mán­uði árs­ins.

Hörð gagnrýni

Hörð gagn­rýni var sett fram af hendi stjórn­ar­and­stöð­unnar á málið, sér­stak­lega vegna þess hversu seint það kom fram og hversu hratt stóð til að keyra það í gegn, en frestur til að skila inn umsögnum um frum­varpið var ein­ungis um tveir dagar. Þá er umfang veiði­gjalda stórpóli­tískt mál þar sem sumir flokkar vilja auka álögur á útgerðir lands­ins en aðrir draga úr þeim. [adspot]Stjórn­ar­and­stæð­ingar hafa sagt það ótækt að láta meiri­hluta nefndar leggja slíkt frum­varp fram og óska síðan eftir afbrigðum til að koma mál­inu í flýti­með­ferð. Innan hennar hafa meðal ann­ars komið fram ásak­anir um að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hafi með­vitað beðið með að leggja málið fram þar til sveita­stjórn­ar­kosn­ingar í lok maí hefðu verið yfir­staðnar vegna þess að þeir hafi vitað hversu óvin­sælt það gæti orðið.

Frétta­blaðið hefur meðal ann­ars reiknað það út að um helm­ingur fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á veiði­gjöldum muni lenda í vasa tíu stærstu útgerða lands­ins. Kjarninn hefur kallað eftir upp­lýs­ingum um hvort grein­ing hafi farið fram á skipt­ingu lækk­un­ar­innar milli útgerða hjá sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu, sem hefur ekki getað svarað þeirri fyr­ir­spurn enn sem komið er.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur sagt opin­ber­lega að hún skilji þessa gagn­rýni og hefur því reynt að höggva á hnút­inn sem upp er kom­inn, og stendur í vegi fyrir því að hægt sé að ljúka þing­störfum. Verði það til­boð sem liggur fyrir eftir fund­ar­höld gær­dags­ins sam­þykkt þá mun Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, vænt­an­lega leggja fram nýtt frum­varp um breyt­ingu á veiði­gjöldum í haust sem mun hafa það mark­mið að miða útreikn­ing þeirra við síð­asta ár í rekstri, en ekki rekstr­ar­skil­yrði fyrir tveimur til þremur árum síðan eins og er í dag.

Hægt að ljúka þingstörfum ef sátt næst

Ef lend­ing næst í veiði­gjalda­mál­inu ætti að vera hægt að ljúka þing­störfum fljót­lega. Vonir standa til þess að það tak­ist að minnsta kosti fyrir þjóð­há­tíð­ar­dag­inn 17. júní. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir eru allir með mál sem þeir gera kröfu um að komi til umræðu og atkvæða­greiðslu eigi þeir að liðka fyrir þing­lokum. Hjá Viðreisn er það frum­varp um þjóð­ar­sátt um bætt kjör kvenna­stétta, hjá Sam­fylk­ingu er það breyt­ingar á barna­lögum og hjá Mið­flokki er það þings­á­lykt­un­ar­til­laga um óháða, fag­lega stað­ar­vals­grein­ingu fyrir nýtt þjóð­ar­sjúkra­hús, sem meiri­hluti vel­ferð­ar­nefndar lagði í gær til að yrði felld.

Takist sátt um ofan­greint verður hægt að afgreiða mjög mik­il­væg mál á borð við per­sónu­vernd­ar­frum­varp dóms­mála­ráð­herra, sem mun þó lík­ast til taka ein­hverjum breyt­ingum, og síð­ari umræða um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Þá þarf að sam­þykkja frum­varp um breyt­ingar á pen­inga­þvætt­is­lögum til að þau nái yfir raf­myntir og byggða­á­ætlun næstu fimm ára, svo nokkuð dæmi séu tekin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár