Spyr hvaða fjölmiðlum ráðuneytin og Alþingi séu í áskrift að

Björn Leví Gunn­ars­son hefur spurt alla ráð­herrana og for­seta Alþingis út í kaup á dag­blöðum og tíma­ritum.

Þing­maður Pírata, Björn Leví Gunn­ars­son, lagði fram sömu fyr­ir­spurn­ina á alla tólf ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar sem og for­seta Alþingis síð­ast­lið­inn föstu­dag. Hann spyr hvaða dag­blöðum, tíma­ritum og öðrum miðlum ráðu­neytin – og stofn­anir og aðrir aðilar sem heyra undir þau – séu í áskrift að, hversu margar áskriftir séu að hverjum miðli og hver heild­ar­fjár­hæð áskriftar sé á ári fyrir hvern miðil.

Fram kom í frétt Kjarnans í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­ins að ráðu­neyti, rík­is­stofn­anir og fyr­ir­tæki á vegum hins opin­bera hefðu borgað tæpar 190 millj­ónir króna fyrir birt­ingu aug­lýs­inga fyrstu tíu mán­uði síð­asta árs. Tvö fjöl­miðla­fyr­ir­tæki, útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins og Árvakur útgef­andi Morg­un­blaðs­ins, fengu sam­tals tæp­lega þriðj­ung fjár­ins ­sem hið opin­bera eyddi í aug­lýs­inga­birt­ingar.

Kostn­aður hins opin­bera vegna aug­lýs­inga­birt­inga var 188 millj­ónir fyrstu tíu mán­uði árs­ins 2018, þá var ekki tal­in ­með vinna við gerð og hönnun aug­lýs­inga. Þar af fékk útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins 37 millj­ónir króna greitt fyrir aug­lýs­inga­birt­ingar og Árvak­ur, útgef­andi Morg­un­blaðs­ins og mbl.is, 21 milljón króna. Sam­an­lagt var það rétt tæp­lega þriðj­ungur allra aug­lýs­inga­kaupa ráðu­neyta, ­rík­is­stofn­ana og rík­is­fyr­ir­tækja á tíma­bil­inu.

Rík­is­út­varpið fékk greiddar rúmar tólf millj­ónir og Sýn, sem á Stöð 2, ýmsar útvarps­stöðvar og vef­inn Vísi, fékk fimm millj­ónir greiddar fyrir aug­lýs­inga­birt­ingar rík­is­ins.

Aug­lýs­inga­stofan Pipar er í þriðja sæti yfir þau fyr­ir­tæki sem fá mest greitt fyrir aug­lýs­inga­birt­ing­ar, með átján millj­ón­ir. Það er vegna birt­ing­ar­þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins við rík­is­stofn­an­ir, einkum Háskóla Íslands. Pipar sér um aug­lýs­inga­kaup fyrir við­skipta­vini og greiðsl­urnar dreifast því áfram á önn­ur ­fyr­ir­tæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár