Danir herða reglurnar

Frá og með klukkan 10 á morgun mega ekki fleiri en tíu koma saman í Danmörku, hvort sem er utan- eða innandyra. Bannið á að gilda til 30. mars. Þetta kom fram á blaðamanna­fundi dönsku ríkis­stjórnarinnar sem nú stendur yfir.

Frá og með klukkan 10 á morgun mega ekki fleiri en tíu koma saman í Danmörku, hvort sem er utan- eða innandyra. Bannið á að gilda til 30. mars. Þetta kom fram á blaðamanna­fundi dönsku ríkis­stjórnarinnar sem nú stendur yfir.

Þetta er gert til að stemma stigu við útbreiðslu Covid-19  veirunnar.   Allar íþrótta­miðstöðvar, líkams­ræktar­stöðvar og ýmis þjónusta, þar sem starfs­fólk er í mikilli nálægð við viðskipta­vini, eins og til dæmis hárgreiðslu- og snyrti­stofur munu einnig loka og einnig veitinga­staðir og kaffihús.

977 smit hafa nú greinst í Danmörku, að því er fram kom á fundinum. 82 Danir eru á sjúkra­húsum vegna veirunnar og 18 eru á gjörgæslu. Fjórir hafa látist í landinu af völdum veirunnar.

„Ástandið verður sífellt alvarlegra,“ sagði Mette Frederiksen, forsætis­ráðherra Danmerkur á fundinum.  „Við höfum gert margt og við höfum gert það hratt. Þetta eru einstakar aðstæður. En það er þörf fyrir  harðari aðgerðir.  Það er mikilvægt að við rjúfum smit­keðjuna núna.  Við verðum að gera allt sem við getum.  Þetta verður ekki auðvelt“

„Það er þörf fyrir  harðari aðgerðir.  Það er mikilvægt að við rjúfum smit­keðjuna núna.  Þetta verður ekki auðvelt“

Blaðamanna­fundurinn var haldinn í svokölluðum speglasal í danska forsætis­ráðuneytinu og var einungis einum frétta­manni frá hverjum fjölmiðli hleypt inn á hann. 

Danadrottning ávarpar þegna sína í kvöld

Margrét Þórhildur Dana­drottning mun ávarpa þjóð sína núna á eftir klukkan 20 að staðar­tíma, klukkan 19 að íslenskum tíma. Í umfjöllun danska ríkis­útvarpsins, DR, segir að slíkt ávarp sé nánast fordæma­laust í sögu Danmerkur. Drottningin hafi hingað til ekki flutt opinber ávörp af þessu tagi nema um áramót. Hún hafi til dæmis ekki gert það þegar hryðju­verk var framið í Danmörku árið 2015.

„Ávarp Kristjáns 10. þegar danska þingið kom saman í fyrsta skiptið eftir heim­styrjöldina síðari, kemur upp í hugann,“ segir Sebastian Olden Jørgensen sagn­fræðingur við Kaupmanna­hafnar­háskóla í samtali við DR. 

Danska ríkis­stjórnin hefur þegar gripið til ýmissa aðgerða til að hindra útbreiðslu veirunnar. Landa­mærum Danmerkur var lokað á laugar­daginn og í síðustu viku var öllum skólum þar lokað og ríkis­starfsmenn sendir heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár