Sjö af hverjum tíu Norðmönnum vilja ekki í ESB

Sjö af hverjum tíu kjósendum í Noregi eru á móti því að ganga í Evrópu­sambandið, samkvæmt skoðana­könnunum sem dagblöðin Nationen og Klassekampen létu gera. Lítill hluti lands­manna í Noregi er fylgjandi því að ganga í ESB, eða um 20 prósent.

Niður­staðan í fyrr­nefndum könnunum er í samræmi við kannanir sem gerðar hafa verið að undan­förnu. Þrátt fyrir andstöðuna er meirihluti Norðmanna samt á því að þeir eigi að halda áfram að vera hluti af innri markaði Evrópu í gegnum EES samninginn.

Noregur hefur átt góðu efnahags­legu gengi að fagna undan­farin ár, ekki síst vegna gjöfula olíu­auðlinda landsins og ekki síður öflugs fjöl­breytilegs útflutnings­geira. Atvinnu­leysi í landinu mældist 3,7 prósent í lok síðasta árs og hagvöxtur var tæplega tvö prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár