„Erum við að fá Bandaríkjamenn hingað?“

„Mín tilfinning er að það sé litið fram hjá Grænlandi,“ segir Rikke Østergaard doktorsnemi við Háskólann á Grænlandi. Hún telur hugmyndir Bandaríkja­forseta varpa ljósi á nýlendu­hyggjuna sem viðgengst víða. Óbreyttir Danir eru spurðir á förnum vegi hvort þeir vilji selja Grænland.

Grænland á valið
Grænland á valið Rikke telur Danmörku og fleiri ríki gleyma því að setja vilja Græn­lend­inga í fyrsta sæti í umræð­unni und­an­farna daga. Mynd: AFP

„Þetta er í fyrsta skipti sem ég hugsa með mér: Erum við að fá Bandaríkja­menn hingað?“ segir Rikke Østergaard, doktorsnemi við Ilisimatusarfik – Háskólann á Grænlandi – og meðlimur Fulbright Arctic Initiative IV, í viðtali við Heimildina.

Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur enn á ný lýst því yfir að Banda­ríkin þurfi að komast yfir Grænland en hann gerði slíkt hið sama þegar hann sat í embætti síðast. Meiri alvarleiki virðist þó einkenna yfir­lýsingar forsetans í þetta skiptið og þá sérstak­lega í kjölfar innrásar hans í Venesúela. 

Rikke ØstergaardTelur ábyrgð fjöl­miðla mikla.

Rikke útskýrir að yfir­lýsingar Bandaríkja­forseta hafi víðtækari áhrif á umræðu um sjálf­stæði á Grænlandi og varpi í raun ljósi á nýlendu­hyggjuna sem viðgengst. „Það er ekkert leyndarmál að Grænland vill verða sjálfstætt.“ En viðbrögð Danmerkur, ýmissa annarra ríkja og norðurslóða­sérfræðinga í kjölfar áforma Trumps segir hún ekki …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Birgit Braun skrifaði
    Hvar mun hann stoppar? Drykkjarvatn og endurnýjanleg orka eru gullið framtíðarinnar...
    1
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Í gær 13.01.26 var í sænskum sjónvarpsfréttum forvitnilegt viðtal við Ben Hodges fyrrum yfirmann bandarísks herafla í Evrópu um þetta mál. Á endanum segir hann að bandaríski herinn þyrfti að óhlýðnast fyrirmælum um að ráðast á Grænland því fyrir það væri enginn lagalegur grunnvöllur.
    Hann bjóst við að slík umræða fari nú þegar fram milli æðstu manna í Pentagon - eða honum fyndist alla vega að ætti að fara fram. Afar merkilegt sjónarhorn.
    Svo mætti einnig fylgja eftir þeim fréttum af bandaríska þinginu að banna Trump einfaldlega að innlima Grænland. Hvernig er staðan þar núna?
    4
    • Greg Hill skrifaði
      Það var reynt að samþykkja ályktun um stríðsvald (þó sérstaklega tengda Venesúela) sem hefði þurft samþykki þingsins, en hún mistókst með 51 atkvæða gegn 50 fyrir tveimur dögum (googlaðu „War Powers Resolution U.S. 2026“). Hæstiréttur Bandaríkjanna er einnig í miklum vandræðum vegna „maggots“. Bandaríkin eru í miklum vandræðum og því miður lítur út fyrir að þetta verði næsta stóra útflutningsvara okkar.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár