Hagvöxtur í Kína hefur ekki verið minni árum saman - 7,4 prósent

Hagvöxtur í Kína mældist 7,4 prósent í fyrra en útflutningur í þessu ógnar­stóra hagkerfinu, sem hefur þanist út á síðustu árum, dróst saman um 14,6 prósent í fyrra. Væntingar stóðu til þess að útflutningur myndi aukast um átta prósent, að því er fram kemur á vef breska ríkis­útvarpsins BBC. Þrátt fyrir allt, telst 7,4 prósent hagvöxtur verið mikið á flesta hagfræði­lega mæli­kvarða.

Í síðasta mánuði var útflutningur í Kína um fimmtán prósent minni en í sama mánuði í fyrra, og innflutningur var um 12,7 prósent minni. Þrátt fyrir þetta er vöruskipta­jöfnuður jákvæður um rúmlega 60 milljarða Bandaríkja­dala á mánuði.

Flestar spár benda til þess að hagkerfið í Kína, sem er fjölmennasta ríki heims með 1,35 milljarða íbúa, muni áfram halda áfram að hægja á sér, eftir eitt mesta hagvaxtar­skeið sem nokkur þjóð hefur gengið í gegnum í sögunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár