Dómnefnd sem starfar á grundvelli dómstólalaga telur Karl Axelsson hæstaréttarlögmann hæfari til setu í Hæstarétti en Davíð Þór Björgvinsson og Ingveldur Einarsdóttir þrátt fyrir að Davíð og Ingveldur hafi meiri menntun og reynslu af dómarastörfum. Frá þessu greindi Kastljós í gærkvöldi, en í dómnefndinni sátu einungis fimm karlar og eru tveir þeirra skipaðir af Hæstarétti. Benti innanríkisráðuneytið Hæstarétti á að tilnefning tveggja karla færi í bága við jafnréttislög. Tilnefningaraðila er heimilt að víkja frá skilyrði laganna vegna „hlutlægra ástæðna“ og ber þá að skýra hverjar þær eru.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir