Stjörnustríðsmyndirnar fara á netið um helgina

Senn verður bið fjölmargra aðdáenda Stjörnu­stríðs­myndanna eftir að þær verði aðgengilegar á netinu á enda, því allar sex Star Wars kvik­myndirnar verða í boði til niðurhals á netinu frá og með föstu­deginum. Frétta­miðillinn Business Insider greinir frá tíðindunum.

Star Wars bíómyndirnar, frá „The Phantom Menace“ til „Return of the Jedi“ verða aðgengilegar til niðurhals á nokkrum stafrænum afþreyinga­veitum, þeirra á meðal eru iTunes, Google Play, Amazon, Vudu og PlayStation Store.

Samkvæmt heimildum USA Today mun hver mynd kosta 20 Bandaríkja­dali, en svo er hægt að kaupa alla seríuna á 100 dali, eða um 13.600 íslenskar krónur. Með hverri mynd fylgir mikið aukaefni, áður óbirtar senur, misheppnaðar tökur og sögur af tökustað.

Disney, sem keypti kvikmynda­fyrirtækið Lucasfilm af George Lucas árið 2012 fyrir rúma fjóra milljarða Bandaríkja­dala og þar með réttinn að Star Wars og Indiana Jones vöru­merkjunum, ákvað að halda kvikmynda­bálknum frá streymi­veitum á borð við Netflix og bjóða þess í stað upp á niðurhal í bestu mögulegum gæðum með fjöl­breyttu aukaefni.

Til að hita upp fyrir stafræna útgáfu Stjörnu­stríðs­myndanna var útbúin stikla. Hana má berja augum hér að neðan.

Eins og flestir aðdáendur Star Wars myndanna vita mætavel, er von á að sjöunda kvik­myndin í vinsælustu kvik­myndaröð sögunnar þann 18. desember næst­komandi. Myndin hefur hlotið nafnið „The Force Awakens“ og gerist eftir „Return of the Jedi,“ sem frumsýnd var árið 1983. Á þessu ári verða liðin tíu ár frá því að síðasta Star Wars mynd var frumsýnd, „Revenge of the Sith,“ sem fékk afar misjafnar móttökur gagn­rýnenda sem og tvær Stjörnu­stríðs­myndirnar á undan henni, það er „The Phantom Menace“ og „Attack of the Clones.“

Sjá stiklu úr fyrstu Star Wars myndinni úr smiðju Disney hér að neðan, en hún lofar góðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár