Sjö menn handteknir vegna Hatton Garden skartgriparánsins

Scotland Yard handtók í dag sjö menn, sem grunaðir eru um aðild að umfangs­miklu skartgripa­ráni sem átti sér stað hjá breska skartgripa­salanum Hatton Garden í byrjun apríl. Frétta­miðillinn London Evening Standard greinir frá málinu.

Í samhæfðum aðgerðum ruddist 200 manna lögreglulið inn á tólf heimili í Norður-Lundúnum og handtók hina grunuðu. Í tilkynningu frá lögreglu segir að töluvert magn verðmæta hafi verið haldlagt í lögreglu­aðgerðunum, sem talið er að séu munir úr ráninu. Um er að ræða stóra poka fulla af skart­gripum, sem fundust á heimilum mannanna.

Allir mennirnir sem hand­teknir voru eru Bretar og eru á aldrinum 48 til 76 ára. Í dag eru liðnar um sex vikur frá ráninu, þar sem skartgripa­þjófar komust undan með verðmæti fyrir hátt í 60 milljónir punda, eða hátt í þrettán milljarða króna, í formi demanta, peninga og annarra verðmæta, í þaul­skipulögðu og bíræfnu ráni.

Ræningjarnir boruðu gat á steinvegg sem var um hálfur metri að þykkt, til að komast inn í geymslu skartgripa­salans, þar sem verðmætin voru geymd í banka­hólfum. Ráninu hefur verið líkt við Hollywood kvik­myndina Oceans Eleven, en þjófarnir slógu út lyftu og komust niður lyftu­göngin í kjallara þar sem verðmætin voru geymd.

Vanga­veltur hafa verið uppi um að Austur-Evrópsk glæpa­samtök hafi staðið að ráninu og til þess að framkvæma það hafi þau fengið upplýsingar frá innan­búðarmanni. Lögreglu­aðgerðirnar í dag benda til að mennirnir hafi ákveðið að halda kyrru fyrir í Lundúnum, þrátt fyrir vanga­veltur um hið gagnstæða, til að bíða af sér mesta fjaðra­fokið.

Aðgerðirnar í dag eru taldar vera Scotland Yard til hróss, en lögreglan hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir rannsókn sína á ráninu sem og viðbrögð sín þegar viðvörunar­kerfi skartgripa­salans fór í gang.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár