Framkoma meirihluta fjárlaganefndar „ekkert annað en skandall“

Þing­maður Við­reisnar segir fjöl­miðla sitja eftir með enn óreiðu­kennd­ari mynd af rekstr­ar­horfum sínum eftir til­raun meiri­hluta fjár­laga­nefndar til að veita N4 100 milljón króna styrk. Styrk­veit­ingin getur ekki talist til ábyrgra fjár­mála.

Hanna Katrín Friðrikssin, þingmaður Viðreisnar.
Hanna Katrín Frið­riks­sin, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

100 milljón króna styrkur sem meiri­hluti fjár­laga­nefndar ætl­aði að veita N4 „vegna rekst­­urs fjöl­miðla á lands­­byggð­inni sem fram­­leiða eigið efni fyrir sjón­­varps­­stöð“ með breyt­ing­ar­til­lögu á fjár­lögum fellur ekki undir ábyrg fjár­mál að mati Hönnu Katrínar Frið­riks­sonar, þing­manns Við­reisnar.

Styrknum var bætt á fjár­lög eftir að beiðni þar um kom frá Maríu Björk Ingva­dótt­­ur, fram­­kvæmda­­stjóra fjöl­miðla­­fyr­ir­tæk­is­ins N4 á Akur­eyri. Í beiðn­inni bað hún um að 100 millj­ónir króna myndu verða látnir renna úr rík­is­sjóði til mið­ils­ins. ­Full­­trúar stjórn­­­ar­­flokk­anna í nefnd­inni sam­­þykktu fjár­­heim­ild­ina. Þeirra á meðal var Stefán Vagn Stef­áns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hann er mágur fram­kvæmda­stjór­ans.

Kjarninn sagði frá beiðn­inni á mið­viku­dags­morgun. Fréttin vakti mikla athygli og málið var til umfjöll­unar á flestum helstu frétta­miðlum lands­ins.

Á mið­viku­dags­kvöld birti meiri­hluti fjár­laga­nefndar meiri­hluta­á­lit þar sem segir að við aðra umræðu um fjár­laga­frum­varpið hafi verið sam­þykkt til­laga um tíma­bundið fram­lag til rekst­urs fjöl­miðla á lands­byggð­inni sem fram­leiða eigið efni fyrir sjón­varps­stöð. „Í ljósi umræðu í fjöl­miðlum beinir meiri hlut­inn því til ráð­herra að end­ur­skoða þær reglur sem gilda um rekstr­ar­stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla á lands­byggð­inni þannig að aukið til­lit verði tekið til þeirra sem fram­leiða efni fyrir sjón­varp.“

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans mun fjár­fram­lagið renna inn í styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla og hækka þá upp­hæð sem þar verður til úthlut­unar úr 377 millj­ónum króna á næsta ári, í 477 millj­ónir króna. Það mun koma í hlut Lilju D. Alfreðs­dótt­ur, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra, að útfæra hvernig hið aukna til­lit til þeirra lands­byggð­ar­miðla sem fram­leiða sjón­varp verður tekið við úthlutun á næsta ári.

Óreiðukenndari mynd af rekstrarhorfum fjölmiðla

Hanna Katrín setti styrk­inn, eða til­raun­ina til styrk­veit­ingar, í sam­hengi við lög um opin­ber fjár­mál sem sett voru árið 2015. Undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í morgun vís­aði Hanna Katrín í orð Bjarna Bene­dikts­sonar, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, sem sagði við setn­ingu lag­anna að „þetta sner­ist um vand­aðan und­ir­bún­ing fjár­laga til að trygga fjár­laga­frelsið og tryggja yfir­sýn, draga úr frá­vikum og styrkja gegn­sæið.“ Þá vís­aði hún einnig í orð Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, þáver­andi vara­for­mann fjár­laga­nefndar, sem sagði ekki nóg að lög­festa málið, vinnu­brögð þyrftu að fylgja því sem þarna stæði.

Lögin tóku gildi í byrjun árs 2016. Hanna Katrín sagði að í raun hefði ekki reynt á lögin fyrr en nú vegna fjölda Alþing­is­kosn­inga auk kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins sem hafa ein­kennt síð­ustu ár.

„Og hvað ger­ist? Á loka­sentí­metrum afgreiðslu fjár­laga laum­aði meiri­hluti fjár­laga­nefndar, laum­uðu þing­menn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, í gegn 100 milljón króna styrk til einka­rek­inna fjöl­miðla á lands­byggð­inni, fjöl­miðla sem fram­leiða eigið efni fyrir sjón­varps­stöð,“ sagði Hanna Katrín.

Meiri­hluti nefnd­ar­innar hafi þannig kippt „sisvona“ úr sam­bandi fyr­ir­komu­lagi um styrk til einka­rek­inna fjöl­miðla.

„Síðar kom í ljós við eft­ir­grennslan for­viða fjöl­miðla að þessi við­bót var ætluð einni til­tek­inni sjón­varps­stöð og enn síðar kom í ljós að þessi til­tekna sjón­varps­stöð hafði sent inn beiðni um pen­inga til fjár­laga­nefndar, beiðni sem bara meiri hlut­inn sá eftir að hafa fengið vís­bend­ingar um það frá þing­flokks­for­manni Fram­sóknar að slíkt gæti skilað sér — gæti skilað sér,“ hélt Hanna Katrín áfram.

Fögur fyr­ir­heit for­svars­manna rík­is­stjórn­ar­innar um ný og betri vinnu­brögð eld­ast ekki vel að sögn Hönnu Katrínar. „Í þokka­bót sitja nú fjöl­miðlar lands­ins eftir með enn óreiðu­kennd­ari mynd af fram­tíð­inni og rekstr­ar­horfum sínum en áður og var þó nóg fyrir. Með til­liti til ábyrgra fjár­mála er þessi fram­koma meiri hluta fjár­laga­nefndar ekk­ert annað en skandall, herra for­seti.“

Birgir Ármanns­son, for­seti Alþingis, tók þá til máls og sagð­ist velta fyrir sér hvort orðið skandall hafi fengið þegn­rétt í íslensku. „Þing­málið er íslenska.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár