Vill vita hvort tengsl þeirra sem sóttust eftir opinberu fé við nefndarmenn hafi verið metin

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar sam­þykkti að veita 100 millj­ónum úr rík­is­sjóði „vegna rekst­­urs fjöl­miðla á lands­­byggð­inni sem fram­­leiða eigið efni fyrir sjón­­varps­­stöð“ eftir að N4 bað um það. Einn nefnd­ar­manna er mágur fram­kvæmda­stjóra N4.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata og nefnd­ar­maður í fjár­laga­nefnd, sendi í síð­ustu viku fyr­ir­spurn á nefnd­ina og spurði hvort mat hefði verið gert á því hvort „ein­hvers­staðar séu tengdir aðilar við nefnd­ar­menn eða aðra þing­menn - af því að það er sér­stak­lega bannað að taka þátt í atkvæða­greiðslu um slíka fjár­heim­ild." Hann hefur ekki fengið svar.

Fyr­ir­spurnin skiptir meðal ann­ars màli vegna breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta fjár­laga­nefndar þess efnis að veita 100 milljón króna fram­lag úr rík­is­sjóði „vegna rekst­­urs fjöl­miðla á lands­­byggð­inni sem fram­­leiða eigið efni fyrir sjón­­varps­­stöð“ eftir að beiðni þar um kom frá Maríu Björk Ingva­dóttur, fram­kvæmda­stjóra fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins N4 á Akureyri. Í beiðn­inni fór María fram á alla fjár­hæð­ina fyrir N4. Full­trúar stjórn­ar­flokk­anna í nefnd­inni sam­þykktu fjár­heim­ild­ina.

Á meðal nefnd­ar­manna í fjár­laga­nefnd sem stóðu að breyt­ing­ar­til­lögu til að veita 100 milljón króna nýtt fram­lag á grund­velli beiðni N4 er Stefán Vagn Stef­áns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hann er bróðir eig­in­manns Maríu, Ómars Braga Stef­áns­sonar.

í siða­reglum fyrir alþing­is­menn segir í 5. grein að þing­menn skuli „ekki nýta opin­bera stöðu sína til per­sónu­legs ávinn­ings fyrir sig eða aðra“. Í 11. grein segir svo að þing­menn skuli við störf sín forð­ast árekstra milli almanna­hags­muna ann­ars vegar og fjár­hags­legra eða ann­arra per­sónu­legra hags­muna sinna eða fjöl­skyldu sinnar hins vegar. „Takist þing­manni ekki að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra af þessu tagi skal hann upp­lýsa um þá.“

Kjarninn hefur reynt að ná tali af Bjarkeyju Olsen Gunn­ars­dóttur, for­manni fjár­laga­nefndar, í dag en án árang­urs.

Báðu um fjármagn byggt á röngum upplýsingum

Kjarninn greindi frá því í gær að María hefði sent beiðni til fjár­laga­nefndar þann 1. des­em­ber. Í beiðn­inni óskar María eftir að rík­is­sjóður veiti N4 100 milljón króna styrk „til að halda úti fjöl­miðl­un, þátta­gerð og frétta­miðl­un, af lands­byggð­unum árið 2023.“

N4 er meðal ann­­ars í eigu KEA, Kaup­­fé­lags Skag­­firð­inga og Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar, sem á hlut í gegnum Fjár­­­fest­ing­­ar­­fé­lagið Vör. Stærsti eig­andi Síld­­ar­vinnsl­unnar er Sam­herji, eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins sem er með höf­uð­­stöðvar á Akur­eyr­i.

Í beiðni Maríu er settur fram fjór­þættur rök­stuðn­ingur fyrir því að N4 eigi að fá sér­stakan rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði. Ann­ars vegar segir að skil­yrði fyrir rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði á und­an­förnum árum hafi verið að N4 fram­leiddi eða sýndi 365 þætti á ári, eða að með­al­tali einn nýjan þátt á dag. Þetta er ekki rétt. Í lögum um fjöl­miðla segir að skil­yrði fyrir styrk séu að prent­miðlar komi út að lág­marki 20 sinnum á ári og að net­miðlar, hljóð- og mynd­miðlar og aðrir sam­bæri­legir miðlar skuli miðla nýju efni á virkum dögum í 20 vikur á ári.

Í öðru lagi til­tekur María að mörg sveit­ar­fé­lög hafi verið til­búin að styrkja þátta­gerð af sínum svæð­um, ýmist með beinum styrkjum til þátta­gerðar eða kaupum á þjón­ustu. „Nú bregður svo við að aðal­bak­land­ið, Norð­ur­land allt, hvarf frá þessu 2022 en hélt okkur volgum fram eftir ári. Það komu að lokum rúmar 4 millj­ónir sam­tals í þjón­ustu­kaup frá 12 sveit­ar­fé­lögum á Norð­ur­landi eystra nú í lok árs. ( ca 26.000.- að með­al­tali á mán­uði frá hverju þeirra ). Þetta hefur sett rekstur stöðv­ar­innar í algjört upp­nám.“

Þá segir hún aug­lýs­inga­tekjur hafa stór­minnkað á þessu ári. Þar komi tvennt til, ann­ars vegar stór­aukið hlut­fall aug­lýs­inga sem fari til erlendra sam­fé­lags­miðla, sem María segir í beiðn­inni að taki til sín 55 pró­sent aug­lýs­inga­fjár. Hið rétta er að 43,2 pró­sent, eða 9,5 af 22 millj­örðum króna sem varið var til aug­lýs­inga­kaupa í fyrra, fór til erlendra aðila. Hitt sé að stærstur hluti þess sem eftir verði í land­inu fari til RÚV „ þar sem með­al­laun sölu­manna eru 1,2 millj­ónir á mán­uð­i“. Aug­lýs­inga­tekjur RÚV í fyrra voru rúm­lega tveir millj­arðar króna, sem er undir 20 pró­sent þeirra aug­lýs­inga­tekna sem fóru til inn­lendra aðila í fyrra.

Fjórða og síð­asta atriðið sem María nefnir til stuðn­ings þess að N4 eigi að fá sér­stakan rekstr­ar­stuðn­ing er að fyr­ir­tæki séu ekki lengur jafn áfjáð í að kosta þætti eftir að kór­ónu­veiru­far­aldr­inum lauk og þau voru áður. Það’ hafi orsakað mik­inn tekju­sam­drátt.

Þing­menn utan af landi mynda uppi­stöðu meiri­hlut­ans

Á grund­velli þessa rök­stuðn­ings ákvað meiri­hluti fjár­laga­nefndar að veita N4 100 millj­ónum króna úr rík­is­sjóði. Meiri­hlut­ann skipa Bjarkey Olsen Gunn­ars­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Vinstri grænna, Har­aldur Bene­dikts­son, Bryn­dís Har­alds­dóttir og Vil­hjálmur Árna­son úr Sjálf­stæð­is­flokki og Þór­ar­inn Ingi Pét­urs­son og Stefán Vagn Stef­áns­son úr Fram­sókn­ar­flokki.

Allir þessir þing­menn utan Bryn­dís­ar, sem kemur úr Suð­vest­ur­kjör­dæmi, eru þing­menn lands­byggð­ar­kjör­dæma. Þeir Stefán Vagn og Har­aldur eru úr Norð­vest­ur­kjör­dæmi, en fram­kvæmda­stjóri N4 er búsett á Sauð­ár­króki sem er í því kjör­dæmi auk þess se Stefán Vagn er mágur hennar. Þau Bjarkey og Þór­ar­inn Ingi eru úr Norð­aust­ur­kjör­dæmi, þar sem höf­uð­stöðvar N4 eru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár