Framlög til RÚV hækka enn – Verða milljarði hærri á næsta ári en árið 2021

Alls er búist við að RÚV fái um 5,7 millj­arða króna úr rík­is­sjóði á næsta ári. Það er 625 millj­ónum krónum meira en í ár og rúmum millj­arði króna meira en 2021. Á sama tíma hafa fram­lög úr rík­is­sjóði til styrkja­kerfis einka­rek­inna fjöl­miðla lækkað.

Framlög til RÚV úr rík­is­sjóði verða að óbreyttu 5,7 millj­arðar króna á næsta ári. Þau hafa hækkað um 335 millj­ónir króna frá því að fjár­laga­frum­varpið var lagt fram í sept­em­ber. Ástæða þess, sam­kvæmt kynn­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins fyrir fjár­laga­nefnd í gær, er almennt end­ur­mat á inn­heimtu útvarps­gjaldi á grund­velli nýrrar þjóð­hags­spár, álagn­ing lög­að­ila vegna árs­ins 2022 og þeirri stað­reynd að inn­heimta gjald­anna er komin lengra en áður var talið.

Áður lá fyrir að útvarps­gjaldið myndi hækka úr 18.300 krónum á ári í 20.200 krónur á ári til að fylgja verð­lags­breyt­ingum. Óli Björn Kára­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lagði í síð­ustu viku fram breyt­ing­ar­til­lögu við frum­varp til laga um breyt­ingu á ýmsum lögum vegna fjár­laga þess efnis að fram­lög til RÚV verði ekki hækkuð milli ára.

RÚV fékk 4,7 millj­arða króna úr rík­is­sjóði í fyrra og tæp­lega 5,1 millj­arð króna í ár. Auk þess þénar rík­is­fjöl­mið­ill­inn rúm­lega tvo millj­arða króna á ári með sölu aug­lýs­inga.

Rík­is­fram­lögin til RÚV á næsta ári verða því að óbreyttu rúm­lega millj­arði krónum hærri á næsta ári en þau voru árið 2021 og 625 millj­ónum krónum hærri en þau eru í ár.

Framlög til styrkjakerfis lækkuð

Á sama tíma lækkar sú upp­hæð sem áætlað er að veita í svo­kallað styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla lít­il­lega milli ára og er áætluð 377 millj­ónir króna. Styrkirnir eru end­ur­greiðsla á litlum hluta af rit­­stjórn­­­ar­­kostn­aði þeirra fjöl­miðla sem upp­­­fylla ákveðin fram­­sett skil­yrði. Í ár fengu 25 fyr­ir­tæki styrk. Alls 53 pró­­sent upp­­hæð­­ar­innar fór til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­­­fyr­ir­tæki lands­ins, Árvak­­­urs, Sýnar og Torgs.

[adspot]Styrkirnir hafa verið veittir, í mis­mun­andi mynd en að svip­aðri heild­ar­upp­hæð, síð­ast­lið­inn þrjú ár. Verði nýlega fram­lagt frum­varp menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra sam­þykkt mun kerfið verða fram­lengt á sömu for­sendum til tveggja ára.

Sú hækkun á fram­lögum til RÚV sem er áætluð milli fyrstu og ann­arrar umræðu um fjár­lög slagar því upp í heild­ar­upp­hæð­ina sem stefnt er að því að nota til í styrkja­kerfið fyrir einka­rekna fjöl­miðla á næsta ári. Á sama tíma og fram­lög til kerf­is­ins hafa lækkað um nokkrar millj­ónir króna frá því sem var 2021 hafa fram­lög til RÚV, líkt og áður sagði, hækkað um einn millj­arð króna.

Vilja 100 milljónir í landsbyggðarsjónvarp

Meiri­hluti fjár­laga­nefnd­ar, sem sam­anstendur af þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks, hefur gert eina breyt­ing­ar­til­lögu á fram­lögðu fjár­laga­frum­varpi milli fyrstu og ann­arrar umræðu sem felur í sér auk­inn stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla. Um er að ræða 100 milljón króna við­bót­ar­fram­lag sem er sagt „vegna rekst­urs fjöl­miðla á lands­byggð­inni sem fram­leiða eigið efni fyrir sjón­varps­stöð.“

Ekki er útskýrt af hverju ráð­ist er í þetta við­bót­ar­fram­lag og í áliti meiri­hluta fjár­laga­nefndar er ekki gerð grein fyrir því hvort eða hvaða beiðni um þetta fram­lag hafi kom­ið.

Heim­ildir Kjarnans herma að þessi breyt­ing sé runnin undan rifjum lands­byggð­ar­þing­manna í stjórn­ar­flokk­unum sem telja að RÚV sinni umfjöllun um lands­byggð­inni ekki nægi­lega vel í sjón­varpi. Sem stendur er einn fjöl­mið­ill sem rekur sjón­varps­fram­leiðslu á lands­byggð­inni, N4 á Akureyri. Sá fjöl­mið­ill er meðal ann­ars í eigu KEA, Kaup­fé­lags Skag­firð­inga og Síld­ar­vinnsl­unnar, sem á hlut í gegnum Fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Vör. Stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er Samherji, eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins sem er með höf­uð­stöðvar á Akureyri.

N4 hefur fram­leitt kostað efni fyrir ýmsa aðila, meðal ann­ars Samherja, og í fyrra var helsti dag­skrár­gerð­ar­maður N4, Karl Eskill Pálsson, ráð­inn í starf upp­lýs­inga­full­trúa Samherja. Fyrir þing­kosn­ing­arnar í fyrra­haust var greint frá því að N4 hafi ætlað að rukka fram­boð fyrir að fá að vera með í kosn­inga­um­fjöllun sem stöðin ætl­aði að vera með. Eftir að málið varð opin­bert var hætt við umfjöll­un­ina.

Google og Facebook taka stærstan hluta

Í gær greindi Hagstofa Íslands frá því að næstum önnur hver króna sem varið var til birt­ingu aug­lýs­inga á Íslandi í fyrra hafi runnið til erlendra aðila, aðal­lega vegna kaupa á aug­lýs­ingum fyrir vef. Alls fóru 9,5 af 22 millj­örðum króna sem varið var til aug­lýs­inga­kaupa á árinu 2021 til erlendra aðila, eða 43,2 pró­sent. Þessir aðilar eru aðal­lega Google og Facebook, en hlutur þess­ara tveggja alþjóð­legu stór­fyr­ir­tækja í greiðslu­korta­við­skiptum vegna þjón­ustu­inn­flutn­ings vegna aug­lýs­inga var 95 pró­sent á síð­asta ári.

[links]Hlutur þess­ara aðila í greiðslum vegna birt­ingu aug­lýs­inga hefur farið hratt vax­andi síð­ustu ár og rúm­lega tvö­fald­ast á átta árum, en á föstu verð­lagi fóru fimm millj­arðar króna til erlendra aðila árið 2013 og, líkt og áður sagði, 9,5 millj­arðar króna í fyrra.

Inn­lendir fjöl­miðlar skiptu með sér 12,3 millj­örðum króna í aug­lýs­inga­tekjur á síð­asta ári..

Þar segir enn fremur að eftir sam­drátt í birt­ingu aug­lýs­inga í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins árið 2020 hafi aug­lýs­inga­út­gjöld auk­ist á síð­asta ári um fimmt­ung og hafa þau ekki verið hærri síðan árið 2018 reiknað á föstu verð­lagi.

Árum saman hafa stjórn­ar­liðað boðað að erlend fjöl­miðla­fyr­ir­tæki, bæði aug­lýs­inga­salar og streym­isveitur, sem hafa miklar tekjur hér­lendis en greiða ekki virð­is­auka­skatt verði skatt­lögð frekar til að jafna leik­inn gagn­vart inn­lendum aðilum. Ekkert frum­varp þess efnis hefur verið lagt fram.

Kjarn­inn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­­­fyllir skil­yrði fyrir rekstr­­ar­­styrk úr rík­­is­­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár