100 milljóna framlag vegna reksturs fjölmiðla á landsbyggðinni sem framleiða fyrir sjónvarp

Ein breyt­ing var gerð á fram­lögum til fjöl­miðla milli fyrstu og ann­arrar umræðu fjár­laga. Meiri­hluti stjórn­ar­flokk­anna ætlar að setja 100 millj­ónir króna í styrki vegna „rekst­urs fjöl­miðla á lands­byggð­inni sem fram­leiða eigið efni fyrir sjón­varps­stöð.“

Sérstaklega á að styrkja landsbyggðarmiðla sem framleiða sjónvarpsefni.
Sér­stak­lega á að styrkja lands­byggð­ar­miðla sem fram­leiða sjón­varps­efni. Mynd: Bára Huld Beck

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar, sem sam­anstendur af þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks, hefur gert eina breyt­ing­ar­til­lögu á fram­lögðu fjár­laga­frum­varpi milli fyrstu og ann­arrar umræðu sem felur í sér auk­inn stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla. Um er að ræða 100 milljón króna við­bót­ar­fram­lag sem er sagt „vegna rekst­urs fjöl­miðla á lands­byggð­inni sem fram­leiða eigið efni fyrir sjón­varps­stöð.“

Ekki er útskýrt af hverju ráð­ist er í þetta við­bót­ar­fram­lag og í áliti meiri­hluta fjár­laga­nefndar er ekki gerð grein fyrir því hvort eða hvaða beiðni um þetta fram­lag hafi komið.

Alls fara rúm­lega 5,9 millj­arðar króna í fjöl­miðla á næsta úr rík­is­sjóði. Meg­in­þorri þeirrar upp­hæðar fer í rekstur RÚV en 377 millj­ónir króna eru ætl­aðar í styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla. Styrkirnir eru end­ur­greiðsla á litlum hluta af rit­stjórn­ar­kostn­aði þeirra fjöl­miðla sem upp­fylla ákveðin fram­sett skil­yrði. Í ár fengu 25 fyr­ir­tæki styrk. Alls 53 pró­sent upp­hæð­ar­innar fór til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­­fyr­ir­tæki lands­ins, Árvak­­urs, Sýnar og Torgs.

Styrkja­kerfið, sem hefur verið við lýði frá 2020 en þó í mis­mun­andi útfærslu, átti að renna sitt skeið um kom­andi ára­mót. Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, lagði hins vegar fram frum­varp á föstu­dag sem fram­lengir gild­is­tíma þess í tvö ár, verði það sam­þykkt.

[adspot]Kjarninn hafði greint frá því að frum­varpið hafði verið afgreitt úr rík­is­stjórn nokkrum dögum áður en þá með þeim for­merkjum að það mætti ein­ungis fram­lengja gild­is­tíma þess í eitt ár, vegna and­stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins við það. Auk þess herma heim­ildir Kjarnans að þar hafi verið rætt um að láta skipa nýja nefnd til að fara yfir leiðir til að bæta rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla, en slík nefnd var síð­ast skipuð í lok árs 2016 af Illuga Gunn­ars­syni, þáver­andi ráð­herra fjöl­miðla­mála úr Sjálf­stæð­is­flokki. Sú nefnd skil­aði skýrslu með marg­hátt­uðum til­lögum til að bæta skil­yrði einka­rek­inna fjöl­miðla í byrjun árs 2018. Síðan þá hefur ein þeirra til­lagna, en þær voru alls sjö, verið inn­leidd. Ofan­greint styrkja­kerfi.

Frá því að rík­is­stjórn­ar­fundi lauk á þriðju­dag og þar til frum­varpið var lagt fram á föstu­dag voru þó gerðar breyt­ingar á áformunum og ákveðið að halda sig við tveggja ára gild­is­tím­ann.

Horfa til Norðurlanda

Í frum­varp­inu kemur fram að stefna stjórn­valda sé að innan gild­is­tíma frum­varps­ins yrði „lagt fram nýtt frum­varp til fimm ára sem sé í takt við þá þróun sem er að verða á hinum Norð­­ur­lönd­un­­um. Þannig verður Ísland ekki eft­ir­bátur hinna land­anna er kemur að stuðn­­ingi við einka­rekna fjöl­miðla.“

Í Danmörku, Noregi og Svíþjóð er unnið að umfangs­miklum breyt­ingum á stuðn­ingi við einka­rekna fjöl­miðla. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að í þessum löndum virð­ist þró­unin vera sú að auka fjár­magn til úthlut­unar en lækka þak ein­stakra styrkja. „Þegar þetta er ritað hafa drög að frum­vörpum þess efnis ekki verið birt. Í ljósi þess að gíf­ur­lega miklar breyt­ingar eru í vændum á stuðn­ings­kerfum Dan­merkur, Noregs og Sví­þjóðar og þeirrar miklu reynslu sem fram­an­greind lönd hafa af fjöl­miðla­styrkjum verður gild­is­tími laga­á­kvæða sam­kvæmt frum­varpi þessu aðeins tvö ár.“

Á mál­þingi sem Blaða­manna­fé­lag Íslands og Rann­sókn­ar­setur um fjöl­miðlun og boð­­skipti við Háskóla Íslands stóðu fyrir í febr­úar síð­ast­liðnum boð­aði Lilja að hún vildi fara „dönsku leið­ina“ í mál­efnum fjöl­miðla. Í Dan­­mörku er DR, danska rík­is­sjón­varp­ið, ekki á aug­lýs­inga­­mark­aði og stutt er við einka­rekna fjöl­miðla með nokkrum mis­­mun­andi leiðum með það að mark­miði að tryggja fjöl­ræði á fjöl­miðla­­mark­aði.

Framlög til RÚV aukast um tvo styrkjapotta á tveimur árum

Á sama tíma og fjöl­miðlar hafa fengið úthlutað úr styrkja­kerf­inu þrí­vegis hafa fram­lög til RÚV hækkað umtals­vert. Á næsta ári er gert ráð fyrir að þau auk­ist um 290 millj­ónir króna og verði 5.375 millj­ónir króna. Fram­lög til RÚV voru hækkuð um 430 millj­­ónir króna milli áranna 2021 og 2022 og því munu fram­lögin hafa hækkað um 720 millj­­ónir króna á tveimur árum, verði fjár­­laga­frum­varpið sam­­þykkt óbreytt. Aukn­ingin á tveggja ára tíma­bili nemur nán­ast tvö­földum árlegum styrkja­potti til einka­rek­inna fjöl­miðla. Til við­bótar aflar RÚV aug­lýs­inga­tekna. Þær voru rúm­lega tveir millj­arðar króna í fyrra.

[links]Af­leið­ing þeirrar þró­unar sem átt hefur sér stað á rekstr­­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi hefur átt sér ýmsar birt­ing­­­ar­­­mynd­­­ir. Ein slík birt­ist í Menn­ing­­­ar­vísum Hag­­­stof­unnar sem birtir voru í fyrra­sum­­­­­ar. Þar kom fram að árið 2013 hefðu 2.238 manns starfað í fjöl­miðlun á Íslandi. Árið 2020 voru þeir orðnir tæp­­­­lega 876 tals­ins. Fækk­­­­unin hafði ágerst hratt á síð­­­­­­­ustu árum. Frá árinu 2018 og út árið 2020 fækk­­­­aði starf­andi fólki í fjöl­miðlum 45 pró­­­­sent, eða 731 manns. ­Staðan hefur því versnað hratt í tíð sitj­andi rík­is­stjórn­ar.

Sam­hliða fækkun starfs­­­­manna fjöl­miðla hefur launa­sum­­­­ma, árleg summa stað­greiðslu­­­­skyldra launa­greiðslna launa­­­­fólks, einnig dreg­ist saman meðal rekstr­­­­ar­að­ila í fjöl­mið­l­un. Árið 2018 var launa­summan 8,1 millj­­­­arður króna. Árið 2020 var hún hins vegar komin niður í 5,3 millj­­­­arða króna og hafði því dreg­ist saman um 35 pró­­­­sent á tveimur árum.

Ísland er sem stendur í 15. sæti á lista sam­tak­anna Blaða­­menn án landamæra um fjöl­miðla­frelsi í heim­in­­um. Nor­eg­­ur, Sví­­þjóð og Dan­­mörk eru í efstu sætum þess lista.

Kjarn­inn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­fyllir skil­yrði fyrir rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár