Mynd: Golli

Fjárlagafrumvarpið á mannamáli

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti fjár­laga­frum­varp vegna árs­ins 2023 í gær. Það segir til um hvernig þjóð­ar­heim­ilið er rekið.

Hver er stóra myndin?

Heild­­­ar­­­tekjur rík­­­is­­­sjóðs verða um 1.117 millj­­arðar króna á næsta ári. Það er tekju­aukn­ing upp á 103 millj­arða króna milli ára, miðað við fyr­ir­liggj­andi áætlun árs­ins 2022. Tekjur yfir­stand­andi árs hafa verið end­ur­metnar frá því sem sett var fram í fjár­lögum og eru nú áætl­aðar 79 millj­örðum krónum meiri. Ástæður þess eru tvær, ann­ars vegar vegna bættra efna­hags­for­senda og hins vegar vegna auk­innar verð­bólg­u.

Áætl­­­aður halli á árinu 2023 er 89 millj­­­arðar króna en í fjár­mála­á­ætlun sem lögð var fram í vor var hann áætl­aður 82,5 millj­arðar króna. Áætl­aður halli hefur því auk­ist um 6,5 millj­arða króna frá því í vor. Halli rík­is­sjóðs vegna árs­ins 2022 var áætl­aður 187 millj­arðar króna en er nú talin verða 142 millj­arðar króna.

Útgjöld munu aukast nokkuð milli ára, eða um 6,4 pró­sent, og verða 1.296 millj­­arðar króna.

Hverjir fá mest?

Fram­lög til heil­brigð­is­­­mála verða aukin um 12,2 millj­­­arða króna á árinu 2023 og verða um 327 millj­arðar króna á föstu verð­lagi.

Það þýðir að um fjórð­ungur af öllum útgjöldum rík­is­sjóðs fari í rekstur heil­brigð­is­mála (25 pró­sent). Svipað fer í félags-, hús­næð­is- og trygg­inga­mál og um 133 millj­arðar króna fara í mennta- og menn­ing­ar­mál.

Framlög til nýsköp­unar, rann­sóknar og þekk­ingar, sem fela aðal­lega í sér end­ur­greiðslur á kostn­aði fyr­ir­tækja munu halda áfram að hækka lít­il­lega milli ára og fram­lög til umhverifs­mála aukst um tæpa þrjá millj­arða króna og verða 27,9 millj­arðar króna.

Hvað er nýtt?

Það sem hefur helst vakið athygli er að rík­is­sjóður ætlar að auka tekjur um 700 millj­ónir króna á næsta ári með því að draga úr afslætti í toll­frjálsum versl­unum þannig að áfeng­is­gs­gjaldið í þeim fari úr tíu í 25 pró­sent og tóbaks­gjaldið úr 40 í 50 pró­sent. Þetta mun fyrst og síð­ast hafa áhrif á frí­höfn­ina í Leifs­stöð þar sem ferða­menn hafa hingað til getað keypt ódýr­ara áfengi og tóbak en ann­ars­staðar á land­inu.

Þá er gert ráð fyrir að breytt vöru­gjald á öku­tæki muni skila 2,7 millj­örðum nýjum krónum í rík­is­sjóðs og breyt­ingar á bif­reiða­gjaldi, aðal­lega vegna vegna þess að gjald­taka á raf­magns- og tvinn­bílum verður aukin, muni skila auknum tekjum upp á 2,2 millj­arða króna.

Athygli vekur að fjár­laga­frum­varpið gerir ráð fyrir að eft­ir­stand­andi 42,5 pró­sent hlutur rík­is­ins í Íslands­banka verði seldur fyrir 75,8 millj­arða króna. Það er gert þrátt fyrir að salan hafi verið sett á ís í vor á meðan að Rík­is­end­ur­skoðun og fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands rann­sök­uðu hluta síð­asta skrefs sem stigið var í sölu­ferl­inu. Hvorki Rík­is­end­ur­skoðun né fjár­mála­eft­ir­litið hefur birt neins konar nið­ur­stöðu úr rann­sóknum sínum.

Hvar á að spara?

Fjár­fest­ingar drag­ast veru­lega saman á næsta ári, eða um 16,6 pró­sent. Það er annað árið í röð sem það ger­ist en fjár­fest­ingar rík­is­sjóðs dróg­ust saman um 17,3 pró­sent í ár. Búist er við því að útgjöld til fjár­fest­ingar verði aukin aftur á næsta ári.

Heilt yfir er því aðal­lega sparað með því að fresta fjár­fest­inga­verk­efnum og með því að ráð­ast ekki í ný útgjöld. Sú fjár­fest­ing sem frestað er, og skilar mestum sparn­aði á næsta ári, er fram­lag vegna við­bygg­ingar við Stjórn­ar­ráðs­húsið, sem lækkar um 850 millj­ónir króna frá því sem áður var áætlað.

Þá hefur verið til­kynnt um að fram­lög til stjórn­mála­flokka verði lækkuð til að sýna aðhald í verki. Fram­lagið var lækkað úr 728,2 í 692,2 millj­ónir króna á ári, eða um 36 millj­ónir króna.

Er tekið á stöðunni á húsnæðismarkaði?

Í kynn­ingu fjár­laga­frum­varps­ins segir að rík­is­sjóði yrði beitt til að stemma stigu við verð­bólgu og þenslu í efna­hags­líf­inu, en verð­bólga mælist nú 9,7 pró­sent. Sá ein­staki þáttur sem hefur ráðið mestu um vöxt verð­bólg­unnar er gríð­ar­leg hækkun á hús­næð­is­verði, sem hefur hækkað um 48 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá byrjun því í mars 2020.

Helsta ástæða þess­arar þró­unar er að eft­ir­spurn eftir íbúðum hefur verið langt umfram fram­boð, og í febr­úar á þessu ári voru ein­ungis 437 íbúðir aug­lýstar til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem er sögu­legt lág­mark.

Til að stemma stigu við þessu hefur Seðla­banki Íslands þrengt að lána­skil­yrðum og hækkað stýri­vexti úr 0,75 í 5,75 pró­sent frá því í maí í fyrra.

Engar sér­stakar nýjar aðgerðir til að auka á fram­boð á íbúða­mark­aði eru kynntar til leiks í fjár­laga­frum­varp­inu en til­lögur þess efnis boð­aðar síðar. Þvert á móti eru stofn­fram­lög til upp­bygg­ingar í almenna íbúða­kerf­inu lækkuð um tvo millj­arða króna.

Sömu sögu er að segja um auk­inn hús­næð­is­stuðn­ing, en greiðslu­byrði hús­næð­is­kostn­aðar hefur stór­hækkað sam­hliða auk­inni verð­bólgu. Í mörgum til­fellum hefur greiðslu­byrði lána hækkað um meira en 100 þús­und krónur á mán­uði. frá byrjun árs. Sú hækkun sem er á hús­næð­is­stuðn­ingi milli ára er til­komin ann­ars vegar vegna þegar til­kynntra mót­væg­is­að­gerða við verð­bólgu og hins vegar vegna fjölg­unar fólks á leigu­mark­aði. Í frum­varp­inu stendur: „Starfs­hópur um hús­næð­is­stuðn­ing er nú að störfum með það hlut­verk að end­ur­skoða beinan hús­næð­is­stuðn­ing til ein­stak­linga. Á grund­velli þeirrar vinnu verður horft til breyt­inga og hækk­unar á hús­næð­is­stuðn­ingi rík­is­ins frá því sem gert er í frum­varpi þessu. Þar sem hóp­ur­inn er enn að störfum er horft til ann­arrar umræðu fjár­laga í því sam­hengi.“

Í kynn­ingu fjár­laga­frum­varps­ins var hins vegar sér­stak­lega vikið að aðgerðum sem sam­þykktar voru fyrr á þessu ári, og eru þenslu­vald­andi. Þ.e. þær auka á eft­ir­spurn­ina sem Seðla­bank­inn er að reyna að slá á. Aðgerð­irnar fela í sér að kaup­endur geta frá næstu ára­mótum notað svo­kall­aða til­greinda sér­eign til að safna fyrir fyrstu íbúð, auk þess að fá helm­ings afslátt af stimp­il­gjöldum. Þá verður þeim sem ekki hafa átt íbúð í fimm ár eða lengur gert kleift að nýta úrræði fyrstu kaup­enda.

Hver borgar fyrir tekjur rík­­is­­sjóðs?

Ein­stak­l­ingar og fyr­ir­tæki

Skatt­­tekjur verða alls 877,2 millj­arðar króna á næsta ári gangi for­sendur frum­varps­ins eftir. Áætlað er að þær verði 793,4 millj­arðar króna í ár og því munu skatt­tekj­urnar hækka um 83,8 millj­arða króna milli ára. Ein­stak­l­ingar munu greiða 241,4 millj­­arða króna í tekju­skatt og skatt­greiðslu sem er tæp­lega ell­efu pró­sent meira en í ár. Til við­­bótar borgum við auð­vitað virð­is­auka­skatt af flestu. Á næsta ári er búist við að virð­is­auka­skatts­tekj­urnar verði 338,4 millj­­arðar króna (tólf pró­sent aukn­ing) og að við fáum að greiða 7,6 millj­­arða króna í við­­bót í stimp­il­­gjöld.

Tekju­skattur sem leggst á lög­­­að­ila, fyr­ir­tæki og félög lands­ins, er nú áætl­­aður 97 millj­­arðar króna á næsta ári og tekjur vegna hans aukast um 20 millj­arða króna, eða 26 pró­sent, milli ára.

Þá munu tekjur rík­­is­­sjóðs vegna trygg­inga­gjalds aukast og verða 122,3 millj­­arðar króna á næsta ári. Það er rúmum átta millj­örðum krónum hærri tekjur en reiknað er með að skatt­stofnin skili rík­is­sjóði í ár.

Sér­­stakt gjald á banka

Bankar lands­ins borga líka sinn skerf til rík­­is­ins til við­­bótar við hefð­bundnar skatt­greiðsl­­ur, þótt það fram­lag fari lækk­­andi. Þar skiptir mestu að á banka­skatt­­ur­inn var lækk­­aður niður í 0,145 pró­­sent skulda árið 2020 sem hluti af efna­hags­að­gerðum rík­is­stjórn­ar­innar til að takast á við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn. Fyrir vikið lækk­­aði álagður banka­skattur sem rík­­is­­sjóður lagði á bank­ana um 6,1 millj­­arð króna vegna árs­ins 2020 og var 4,8 millj­­arðar króna. Það var lækkun upp á 56,2 pró­­sent. Áætlað er að hann hafi verið um 5,4 millj­arðar króna í ár og að hann verði 5,9 millj­arðar króna á næsta ári.

Veið­i­­­gjöld

Svo eru það auð­vitað útgerð­­ar­­fyr­ir­tæk­in. Þau borga rík­­is­­sjóði sér­­­stök veið­i­­­gjöld umfram aðra skatta fyrir afnot af fisk­veið­i­­auð­lind­inni.

Ný lög um veið­i­­­­gjald tóku gildi í byrjun árs 2019 þar sem meðal ann­­­ars var settur nýr reikni­stofn sem bygg­ist á afkomu við veiðar hvers nytja­­­stofns. Sam­­kvæmt þeim er veið­i­­gjaldið nú ákveðið fyrir alm­an­aksár í stað fisk­veið­i­­ár­s. Útgerð­irnar greiddu 4,8 millj­arða króna í veiði­gjöld árið 2020, 7,7 millj­arða króna árið 2021 og áætlað er að veiði­gjaldið skili 7,4 millj­arða króna í rík­is­sjóð á árinu 2022. Á næsta ári er búist við að veiði­gjöldin skili rúm­lega 9,8 millj­örðum króna, en af þeirri upp­hæð fellur 1,5 millj­arður króna til vegna gjalds á fisk­eldi sem var inn­leitt 2020. Tvær breyt­ingar eru gerðar á verð­mæta­gjaldi vegna sjó­kvía­eldis. Annars vegar er gjald­hlut­fallið hækkað úr 3,5 í fimm pró­sent og hins vegar er við­mið­un­ar­tíma­bil gjalds­ins fært nær í tíma. Útgerð­irnar greiða því 8,3 millj­arða króna í veiði­gjald.

Mynd: Wiki Commons
Mynd: Wiki Commons

Til sam­an­burðar voru veiði­gjöld útgerða 11,3 millj­­arðar króna árið 2018, á verð­lagi þess árs.

Þeir sem eiga mikið af pen­ingum

Rík­­is­­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hækk­­aði fjár­­­magnstekju­skatt í byrjun árs 2018, úr 20 í 22 pró­­sent. For­­sæt­is­ráð­herra sagði við það til­­efni að þessi hækkun væri liður í því að gera skatt­­kerfið rétt­lát­­ara.

Kjarn­inn greindi frá því í júlí að í grein­ingu á álagn­ingu opin­berra gjalda ein­stak­l­inga eftir tekju­­tí­undum sem Bjarni Bene­dikts­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti á rík­­is­­stjórn­­­ar­fundi 22. júní síð­­ast­lið­inn, hafi komið fram að þau tíu pró­­sent lands­­manna sem höfðu mestar fjár­­­magnstekjur á síð­­asta ári hafi tekið til sín 81 pró­­sent allra fjár­­­magnstekna ein­stak­l­inga á árinu 2021. Alls höfðu ein­stak­l­ingar 181 millj­­arð króna í fjár­­­magnstekjur í fyrra og því liggur fyrir að efsta tíund­in, sem telur nokkur þús­und fjöl­­skyld­­ur, var með tæp­­lega 147 millj­­arða króna í fjár­­­magnstekjur á síð­­asta ári. Heild­­ar­fjár­­­magnstekjur ein­stak­l­inga hækk­­uðu um 57 pró­­sent milli ára, eða alls um 65 millj­­arða króna. Mest hækk­­­aði sölu­hagn­aður hluta­bréfa sem var 69,5 millj­­­arðar króna á árinu 2021.

Þessi gríð­ar­lega aukn­ing á fjár­magnstekjum, sem var að stóru leyti til­komin vegna aðgerða sem rík­is­stjórnin og Seðla­banki Íslands gripu til og dældu fé inn á eigna­mark­aði, gerði það að verkum að fjár­magnstekju­skatt­ur­inn skil­aði 16 millj­örðum krónum meira í tekjur í ár en áætlað var í fjár­lögum, eða 47,5 millj­örðum króna. Umtals­verður sam­dráttur verður á tekjum vegna fjár­magnstekju­skatts á næsta ári, en reiknað er með því að hann skili 41,9 millj­örðum króna í rík­is­sjóð á árinu 2023.

Dauð­inn

Gert er ráð fyrir að erfða­fjár­skattur skili rík­is­sjóði 8,6 millj­örðum króna í tekjur árið 2023. Það minna en skatt­ur­inn skil­aði í ár þegar lands­menn greiddu tíu millj­arða króna í erfða­fjár­skatt.

Ráðandi breyta í því að inn­heimtur erfða­fjár­skattur var þriðj­ungi hærri í ár en áætl­anir gerðu ráð fyrir voru gríð­ar­legar hækk­anir á íbúð­ar­verði.

Bif­­reið­­ar­eig­end­­ur

Alls eru áætl­­aðar tekjur rík­­is­­sjóðs vegna vöru­gjalda af öku­tækjum auk­ist um 2,7 millj­arða króna og verði 8,2 millj­arðar króna á næsta ári.

Vöru­gjöld af bens­íni aukast um 440 millj­ónir króna milli ára og verða 9,3 millj­arðar króna, kolefn­is­gjöld aukast um 560 millj­ónir og verða 7,5 millj­arðar króna og olíu­gjaldið eykst um tæpan millj­arð króna og verður rúm­lega 13,5 millj­arðar króna.

Kíló­metra­gjald mun skila rúm­lega 1,6 millj­arð króna í rík­is­sjóð og bif­reiða­gjöld 10,6 millj­örðum króna.

Þeir sem drekka og reykja

Reyk­ing­­ar­­fólk og áfeng­is­­neyt­endur fá áfram sem áður að borga sinn skerf til sam­­neysl­unn­­ar. Alls er lagt til að áfengis- og tóbaks­gjaldið hækki um 7,7 pró­sent milli ára til við­bótar við þá miklu hækkun sem lögð verður á þessar vörur í frí­höfn­inni.

Allir sem flytja inn eða fram­­­leiða áfengi hér á landi til sölu eða vinnslu ber að greiða áfeng­is­­­gjald. Einnig þeir sem flytja áfengi með sér eða fá það sent erlendis frá, til eigin nota. Áfeng­is­­­gjald er greitt af neyslu­hæfu áfengi sem í er meira en 2.25 pró­­­sent af vín­­­anda að rúm­­­máli. Þessu gjaldi er velt út í verð­lag og því hækkar það útsölu­verð til neyt­enda.

Tekjur vegna áfeng­is­gjalds­ins á næsta ári eru áætl­aðar um 25,5 millj­arðar króna sem er 1,7 hærra en áætlað er fyrir 2022. Tekjur rík­is­sjóðs af áfeng­is­gjaldi hafa því hækkað 37 pró­sent frá 2018, eða í krónum talið eða um 6,9 millj­arða króna.

Mynd: Pexels
Mynd: Pexels

Tóbaks­­gjaldið átti að skila tæp­lega 5,8 millj­­örðum króna í rík­­is­­kass­ann í ár en skil­aði á end­anum um 200 millj­ónum krónum minna. Senni­leg­ast er að hrun í notkun á íslensku nef­tó­baki, sem ÁTVR fram­leiðir og selur, skipti þar máli. Á næsta ári munu tekj­urnar aukast á ný um 75 millj­ónir króna eftir hina miklu hækkun sem gripið verður til um ára­mót og verða rúm­lega 5,8 millj­arðar króna.

Óreglu­­legu tekj­­urnar

Ríkið hefur alls­­konar aðrar tekjur en skatta. Þar ber auð­vitað hæst arð­greiðslur frá fyr­ir­tækjum sem ríkið á, sér­­stak­­lega bönk­­unum og Lands­­virkj­un. Slíkar arð­greiðslur hríð­­féllu vegna kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­s­ins, og fóru niður í 18,7 millj­arða króna árið 2021, en tóku aftur við sér í ár. Þá voru arð­greiðslur rík­is­ins áætl­aðar 45,9 millj­arðar króna. Á næsta ári er áætlað að mót­tek­inn arður verði 34,3 millj­arðar króna, eða 11,6 millj­örðum krónum lægri en í ár. Þar skiptir máli að ríkið hefur þegar selt stóran hluta af eign sinni í Íslands­banka og fær ekki arð af þeim eign­ar­hluta leng­ur.

Ríkið mun líka inn­­heimta 17,5 millj­­arða króna í vaxta­­tekjur og 37,4 millj­­arða króna vegna sölu á vöru og þjón­­ustu. Inni í þeirri sölu eru til að mynda inn­­­rit­un­­ar­­gjöld í háskóla og fram­halds­­­skóla, sala á vega­bréfum og öku­­skír­teinum og greidd gjöld vegna þing­lýs­inga, svo dæmi séu tek­in. Þá fær ríkið um 4,9 millj­­arða króna vegna sekta og skaða­­bóta.

Rík­­is­­stjórnin ætlar að selja eft­ir­stand­andi 42,5 pró­­sent eign­­ar­hlut sinn í Íslands­­­banka að fullu á næsta ári fyrir 75,8 millj­arða króna.

Hvernig stendur rekstur rík­­is­­sjóðs?

Hallinn var yfir 600 millj­arðar króna á þriggja ára tíma­bili (2020 til 2022) en skap­legri á næsta ári, eða 89 millj­arðar króna. Upp­safn­aður halli áranna 2020 og 2021 er áþekkur að stærð í hlut­falli af vergri lands­fram­leiðslu og hallin árin 2009 og 2010 í kjöl­far banka­hruns­ins. Um kom­andi ára­mót verða heild­ar­skuldir rík­is­sjóðs 1.210 millj­arðar króna og fjár­laga­frum­varpið gerir ráð fyrir að þær fari upp í 1.276 millj­arða króna í lok næsta árs.

Gangi áform um að selja rest­ina af Íslands­banka eftir munu skuldir rík­is­sjóðs ná að verða 33 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu í lok næsta árs, en áætl­anir gera ráð fyrir að það verði 33,4 pró­sent í lok árs 2022. Verði hlut­ur­inn ekki seldur mun þeir 75,8 millj­arðar króna sem banka­salan á að skila í rekst­ur­inn á næsta ári verða teknir að láni og skulda­hlut­fallið hækka umtals­vert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár