Stefnt að því að framlengja fjölmiðlastyrki til tveggja ára en ekki eins árs

Þvert á það sem Kjarninn hefur heim­ildir fyrir að hafi orðið nið­ur­staðan á rík­is­stjórn­ar­fundi fyrr í vik­unni er nú komið fram frum­varp sem fram­lengir styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla til tveggja ára.

Lilja Alfreðsdóttir er menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir er menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt frum­varpi Lilju Alfreðs­dóttur menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra stendur til að það styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla sem verið hefur við lýði frá því í fyrra verði fram­lengt til tveggja ára.

Þetta er sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans breyt­ing frá því sem ákveðið var á rík­is­stjórn­ar­fundi fyrr í vik­unni, þar sem málið var afgreitt eftir nokkrar deilur.

Eftir þann fund var stefnt að fram­lagn­ingu frum­varps sem gilti bara til eins árs, eða út árið 2023, eins og Kjarninn sagði frá í gær.

Frumvarp Lilju um málið var lagt fram á Alþingi í dag, en sam­kvæmt því verður gild­is­tími ákvæða um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla fram­lengdur til 1. jan­úar 2025. Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að aðeins sé horft til þess að lengja gild­is­tím­ann til tveggja ára, sökum þess að miklar breyt­ingar séu í vændum á stuðn­ingi við einka­rekna fjöl­miðla á hinum Norð­ur­lönd­unum og hafa eigi þær til hlið­sjónar við mörkun stefnu til lengri tíma.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir einnig að við mat á stuðn­ingi árs­ins 2021 megi greina að sá stuðn­ingur sem einka­reknir fjöl­miðlar fengu hafi nýst afar vel.

[adspot]

„Stuðn­ingur við einka­rekna fjöl­miðla hefur meðal ann­ars gert sumum fjöl­miðlum kleift að fjölga stöðu­gildum á rit­stjórn, halda útgáfu óbreyttri, komið í veg fyrir frekara aðhald í rekstri og bætt aðstöðu blaða­manna, svo fátt eitt sé nefnt. Styrk­þegar eru sam­mála um að styrk­ur­inn hafi skipt miklu máli. Þrátt fyrir fram­an­greint hefur komið fram gagn­rýni um að stuðn­ings­kerfið sé ekki nægi­lega fyr­ir­sjá­an­legt en gild­is­tími kafla lag­anna um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla var ein­ungis til tveggja ára,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þar er einnig fjallað um að í Danmörku, Noregi og Svíþjóð standi miklar breyt­ingar fyrir dyrum hvað þetta varðar, og að í þessum löndum virð­ist þró­unin vera sú að auka fjár­magn til úthlut­unar en lækka þak ein­stakra styrkja.

„Þegar þetta er ritað hafa drög að frum­vörpum þess efnis ekki verið birt. Í ljósi þess að gíf­ur­lega miklar breyt­ingar eru í vændum á stuðn­ings­kerfum Dan­merkur, Noregs og Sví­þjóðar og þeirrar miklu reynslu sem fram­an­greind lönd hafa af fjöl­miðla­styrkjum verður gild­is­tími laga­á­kvæða sam­kvæmt frum­varpi þessu aðeins tvö ár, með það að mark­miði að innan þess tíma verði lagt fram frum­varp til laga með gild­is­tíma til fimm ára sem sé í takt við þróun ann­ars staðar á Norð­ur­löndum. Þannig verði Ísland ekki eft­ir­bátur hinna land­anna er kemur að stuðn­ingi við einka­rekna fjöl­miðla,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu frá ráð­herra.

Lítill fyrirsjáanleiki gagnrýndur

Í umsögn um frum­varps­drög sem lögð voru fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda gagn­rýndi Árvak­ur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins og tengdra miðla, meðal ann­ars að stuttur gild­is­tími styrkja­kerf­is­ins drægi úr fyr­ir­sjá­an­leika í rekstri fjöl­miðla.

„Þá er þetta sér­­stak­­lega óheppi­­legt þegar um er að ræða rík­­is­­stuðn­­ing við einka­rekna fjöl­miðla því að með skömmum gild­is­­tíma eru þessi mál til stöðugrar umfjöll­unar sem getur sett frjálsa fjöl­miðla í óheppi­­lega stöðu gagn­vart stjórn­­völd­um, sen hafa verður í huga að meðal mik­il­vægra hlut­verka frjálsra fjöl­miðla er að veita stjórn­­völdum aðhald,“ sagði í umsögn Árvakurs.

Gert er ráð fyrir því árlegur kostn­aður rík­is­sjóðs vegna styrkj­anna til einka­rek­inna fjöl­miðla verði allt að 400 millj­ónir króna.

Kjarn­inn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­fyllir skil­yrði fyrir rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár