Fjárlaganefnd dregur í land með 100 milljóna styrk til N4 „í ljósi umræðu í fjölmiðlum“

„Í ljósi umræðu í fjöl­miðlum beinir meiri hlut­inn því til ráð­herra að end­ur­skoða þær reglur sem gilda um rekstr­ar­stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla á lands­byggð­inni þannig að aukið til­lit verði tekið til þeirra sem fram­leiða efni fyrir sjón­varp.“

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, er formaður fjárlaganefndar.
Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, er for­maður fjár­laga­nefndar. Mynd: Eyþór Árnason

Styrkur upp á 100 millj­ónir króna, sem meiri­hluti fjár­laga­nefndar ætl­aði að úthluta „vegna rekst­­­urs fjöl­miðla á lands­­­byggð­inni sem fram­­­leiða eigið efni fyrir sjón­­­varps­­­stöð“ mun ekki verða ráð­stafað með þeim hætti sem nefnd­ar­meiri­hlut­inn ætl­aði. Styrknum var bætt á fjár­lög eftir að beiðni þar um kom frá Maríu Björk Ingva­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins N4 á Akur­eyri. Í beiðn­inni bað hún um að 100 millj­ónir króna myndu verða látnir renna úr rík­is­sjóði til mið­ils­ins. ­Full­trúar stjórn­ar­flokk­anna í nefnd­inni sam­þykktu fjár­heim­ild­ina. Þeirra á meðal var Stefán Vagn Stef­áns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hann er mágur fram­kvæmda­stjór­ans.

Í nefnd­ar­á­liti sem meiri­hlut­inn birti í kvöld segir að við aðra umræðu um fjár­laga­frum­varpið hafi verið sam­þykkt til­laga um tíma­bundið fram­lag til rekst­urs fjöl­miðla á lands­byggð­inni sem fram­leiða eigið efni fyrir sjón­varps­stöð. „Í ljósi umræðu í fjöl­miðlum beinir meiri hlut­inn því til ráð­herra að end­ur­skoða þær reglur sem gilda um rekstr­ar­stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla á lands­byggð­inni þannig að aukið til­lit verði tekið til þeirra sem fram­leiða efni fyrir sjón­varp.“

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans mun fjár­fram­lagið renna inn í styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla og hækka þá upp­hæð sem þar verður til úthlut­unar úr 377 millj­ónum króna á næsta ári, í 477 millj­ónir króna. Það mun koma í hlut Lilju D. Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, að útfæra hvernig hið aukna til­lit til þeirra lands­byggð­ar­miðla sem fram­leiða sjón­varp verður tekið við úthlutun á næsta ári.

Vakti hörð viðbrögð

Kjarninn greindi frá beiðn­inni frá N4 í morgun. Fréttin vakti mikla athygli og málið var til umfjöll­unar á flestum helstu frétta­miðlum lands­ins í dag. Heim­ildir Kjarnans herma að ráð­herrar í rík­is­stjórn hafi látið sig málið varða, enda þótti afar slæmur bragur á því þegar stjórn­ar­þing­menn af lands­byggð­inni ákveðna án rök­stuðn­ings að láta almannafé renna til fyr­ir­tækis í sínu kjör­dæmi, eða sem er stýrt af ein­stak­lingum í þeirra fjöl­skyldu.

N4 er meðal ann­­ars í eigu KEA, Kaup­­fé­lags Skag­­firð­inga og Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar, sem á hlut í gegnum Fjár­­­fest­ing­­ar­­fé­lagið Vör. Stærsti eig­andi Síld­­ar­vinnsl­unnar er Sam­herji, eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins sem er með höf­uð­­stöðvar á Akur­eyr­i.

N4 hefur fram­­leitt kostað efni fyrir ýmsa aðila, meðal ann­­ars Sam­herja, og í fyrra var helsti dag­­skrár­­gerð­­ar­­maður N4, Karl Eskill Páls­­son, ráð­inn í starf upp­­lýs­inga­­full­­trúa Sam­herja. Í við­tali við Stund­ina í fyrra, áður en hann réð sig til Sam­herja, tók Karl Eskill það sér­stak­lega fram að N4 væri ekki frétta­stöð.

Fyrir þing­­kosn­­ing­­arnar í fyrra­haust var svo greint frá því að N4 hafi ætlað að rukka fram­­boð fyrir að fá að vera með í kosn­­inga­um­­fjöllun sem stöðin ætl­­aði að vera með. Eftir að málið varð opin­bert var hætt við umfjöll­un­ina.

Í sam­tali við mbl.is í dag kom fram að eng­inn starfs­maður N4 er titl­aður sem rit­stjóri og eng­inn er titl­aður frétta­maður. Aðspurður hvort N4 liti á sig sem frétta­miðil sagði Jón Stein­dór Árna­son, stjórn­ar­for­maður N4, að það væri „svo­lítið erfitt að svara fyr­ir það nema þú skil­grein­ir fyr­ir mig hvað er frétt.“

Rök­stuðn­ingur byggður á röngum upp­lýs­ingum

Í beiðni Maríu, fram­kvæmda­stjóra N4, um 100 milljón króna styrk fyrir N4 var settur fram fjór­þættur rök­stuðn­ingur fyrir því að N4 ætti að fá sér­stakan rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði. Í fyrsta lagi að skil­yrði fyrir rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði á und­an­förnum árum hafi verið að N4 fram­leiddi eða sýndi 365 þætti á ári, eða að með­al­tali einn nýjan þátt á dag. Þetta er ekki rétt. Í lögum um fjöl­miðla segir að skil­yrði fyrir styrk séu að prent­miðlar komi út að lág­marki 20 sinnum á ári og að net­miðlar, hljóð- og mynd­miðlar og aðrir sam­bæri­legir miðlar skuli miðla nýju efni á virkum dögum í 20 vikur á ári.

Í öðru lagi til­tók María að mörg sveit­ar­fé­lög hafi verið til­búin að styrkja þátta­gerð af sínum svæð­um, ýmist með beinum styrkjum til þátta­gerðar eða kaupum á þjón­ustu. „Nú bregður svo við að aðal­bak­land­ið, Norð­ur­land allt, hvarf frá þessu 2022 en hélt okkur volgum fram eftir ári. Það komu að lokum rúmar 4 millj­ónir sam­tals í þjón­ustu­kaup frá 12 sveit­ar­fé­lögum á Norð­ur­landi eystra nú í lok árs. ( ca 26.000.- að með­al­tali á mán­uði frá hverju þeirra ). Þetta hefur sett rekstur stöðv­ar­innar í algjört upp­nám.“

Þá sagði hún aug­lýs­inga­tekjur hefðu stór­minnkað á þessu ári. Þar komi tvennt til, ann­ars vegar stór­aukið hlut­fall aug­lýs­inga sem fari til erlendra sam­fé­lags­miðla, sem María segir í beiðn­inni að taki til sín 55 pró­sent aug­lýs­inga­fjár. Hið rétta er að 43,2 pró­sent, eða 9,5 af 22 millj­örðum króna sem varið var til aug­lýs­inga­kaupa í fyrra, fór til erlendra aðila. Hitt sé að stærstur hluti þess sem eftir verði í land­inu fari til RÚV „ þar sem með­al­laun sölu­manna eru 1,2 millj­ónir á mán­uð­i“. Aug­lýs­inga­tekjur RÚV í fyrra voru rúm­lega tveir millj­arðar króna, sem er undir 20 pró­sent þeirra aug­lýs­inga­tekna sem fóru til inn­lendra aðila í fyrra. Þess utan juk­ust aug­lýs­inga­tekjur inn­lendra fjöl­miðla á síð­asta ári og flestir miðlar gera ráð fyrir því að kakan hafi stækkað aftur í ár.

Fjórða og síð­asta atriðið sem María nefndi til stuðn­ings þess að N4 eigi að fá sér­stakan rekstr­ar­stuðn­ing er að fyr­ir­tæki séu ekki lengur jafn áfjáð í að kosta þætti eftir að kór­ónu­veiru­far­aldr­inum lauk og þau voru áður. Það’ hafi orsakað mik­inn tekju­sam­drátt.

Bannað að nýta opinbera stöðu til persónulegs ávinnings

Á grund­velli þessa rök­stuðn­ings ákvað meiri­hluti fjár­laga­nefndar að veita N4 100 millj­ónum króna úr rík­is­sjóði. Meiri­hlut­ann skipa Bjarkey Olsen Gunn­ars­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Vinstri grænna, Har­aldur Bene­dikts­son, Bryn­dís Har­alds­dóttir og Vil­hjálmur Árna­son úr Sjálf­stæð­is­flokki og Þór­ar­inn Ingi Pét­urs­son og áður­nefndur Stefán Vagn.

Allir þessir þing­menn utan Bryn­dís­ar, sem kemur úr Suð­vest­ur­kjör­dæmi, eru þing­menn lands­byggð­ar­kjör­dæma. Þeir Stefán Vagn og Har­aldur eru úr Norð­vest­ur­kjör­dæmi, en fram­kvæmda­stjóri N4 og mág­kona Stefáns Vagns er búsett á Sauð­ár­króki sem er í því kjör­dæmi. Þau Bjarkey og Þór­ar­inn Ingi eru úr Norð­aust­ur­kjör­dæmi, þar sem höf­uð­stöðvar N4 eru.

Í siða­reglum fyrir alþing­is­menn segir í 5. grein að þing­menn skuli „ekki nýta opin­bera stöðu sína til per­sónu­legs ávinn­ings fyrir sig eða aðra“. Í 11. grein segir svo að þing­menn skuli við störf sín forð­ast árekstra milli almanna­hags­muna ann­ars vegar og fjár­hags­legra eða ann­arra per­sónu­legra hags­muna sinna eða fjöl­skyldu sinnar hins veg­ar. „Tak­ist þing­manni ekki að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra af þessu tagi skal hann upp­lýsa um þá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár