Ekki endilega sómi að því að afturkalla boðið til Piu

Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis hefur svarað fyr­ir­spurn um aðdrag­anda þess að Piu Kjærs­gaard for­seta danska þings­ins var boðið á hátíð­ar­fund Alþingis á Þing­völlum. Gefur í skyn að koma Piu hafi legið ljós fyrir löngu áður en fund­ur­inn fór fram.

Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis segir að óvíst væri að sómi hefði verið að því að aft­ur­kalla boð hans til Piu Kjærs­gaard, for­seta danska þings­ins á hátíð­ar­fund­inn á Þing­völlum. Fyrir því væri engin „venja„ og ekk­ert dæmi finn­ist um að form­legt boð til erlends þing­for­seta eða sér­staks gests á vegum Alþingis hafi verið aft­ur­kallað.

Þetta kemur fram í svari Stein­gríms við fyr­ir­spurn Jóns Þórs Ólafs­sonar þing­manns Pírata um aðdrag­and­ann að ávarpi Piu á hátíð­ar­fund­inum.

Jón spurði meðal ann­ars hvenær Piu var form­lega boðið, hver tók þá ákvörðun og hvenær og hvernig ákvörð­un­ar­ferl­inu var háttað. Í svar­inu kemur fram að þegar hug­myndir um hátíð­ar­fund­inn hafi fyrst verið ræddar á sum­ar­fundi for­sætis­nefndar í ágúst árið 2017 hafi það verið kannað óform­lega hjá skrif­stofu danska þings­ins hvort lík­legt væri að for­seti danska þings­ins gæti þegið boð á hátíð­ar­fund Alþingis og flutt ávarp á Þing­völlum. „Málið var til athug­unar um nokk­urt skeið og loks ákveðið að því yrði ráðið til lykta á fundi sem for­seti Alþingis átti með for­seta danska þings­ins 20. apríl 2018, en sá tví­hliða fundur var hald­inn í tengslum við ferð for­seta og for­sætis­nefndar á Jóns­há­tíð í Kaup­manna­höfn (sum­ar­dag­inn fyrsta). Boðsbréf á hátíð­ar­fund Alþingis voru send 14. febr­úar 2018 til erlenda gesta en nán­ari dag­skrá ekki send að því sinni. Til­kynn­ingu um að danski þing­for­set­inn mundi flytja ávarp á Þing­völlum var birt á vef Alþingis 20. apríl 2018 og með henni fylgdi mynd af þing­for­set­unum með sér­stakan full­veld­is­fána á milli sín með íslenskri áletrun.“

Jón Þór spurði einnig hvenær og með hvaða hætti full­trúar í for­sætis­nefnd og for­menn þing­flokka hafi verið upp­lýstir um að fyr­ir­hugað væri að bjóða Piu á fund­inn í krafti emb­ættis hennar.

Stein­grímur leggur einnig áherslu á í svari sínu að þegar þing­for­setum erlendra ríkja er boðið í opin­bera heim­sókn, þeir sóttir heim eða önnur hefð­bundin sam­skipti átt við þá er ekki spurt um stjórn­mála­skoð­anir við­kom­andi ein­stak­lings enda er boðið til þess sem er æðsti full­trúi þjóð­þings­ins gangvart öðrum þingum. Gildir slíkt jafnt um smá sem stór ríki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár