Skrifstofa forseta útskýrir fálkaorðuveitingu Piu

Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu frá skrif­stofu for­seta Íslands er fálka­orðu­veit­ing Piu útskýrð í ljósi reglna, samn­inga og hefða sem gilda hér á landi um slíkar orðu­veit­ingar, líkt og ann­ars staðar í Evrópu.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands Mynd: Birgir Þór Harðarson

Skrif­stofa for­seta Íslands sendi frá sér til­kynn­ingu fyrr í dag þar sem hún útskýrði veit­ingu fálka­orð­unnar til danska þing­for­set­ans Piu Kjærs­gaard í ljósi reglna, samn­inga og hefða. Einnig tekur skrif­stofan fram að orðu­nefnd hafi ekki komið nærri orðu­veit­ingu Piu.

[links]Kjarninn hefur áður fjallað um hlut­verk Piu á full­veld­is­há­tíð Íslands á Þing­völlum síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, en þar var hún heið­urs­gestur og hélt hátíð­ar­ræðu fyrir hönd danska þjóð­ar­þings­ins. Pia er einn þekkt­asti stjórn­mála­maður Dan­merkur í dag og hefur talað hart gegn fjöl­menn­ingu, inn­flytj­endum og íslam.

Frétta­blaðið greindi svo frá því fyrr í vik­unni að for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, hafi veitt Piu stór­kross hinnar íslensku fálka­orðu í jan­úar í fyrra, en orðan var veitt í til­efni af opin­berri heim­sókn for­set­ans til Dan­merkur. Í kjöl­far umfjöll­unar um Piu síð­ustu daga greindi svo kvik­mynd­ar­gerð­ar­konan Elísabet Ron­alds­dóttir frá því á Facebook-síðu sinni í gær að hún ætli að skila sinni fálka­orðu. Í stöðu­upp­færslu sinni sagð­ist Elísabet ekki geta verið í ridd­ara­klúbbi með kyn­þátta­hat­ara. Upp­færsl­una má sjá hér að neðan.

Í frétta­til­kynn­ingu frá skrif­stofu for­seta Íslands stendur að emb­ætt­inu sé ljúft að taka fram að um veit­ingu fálka­orðu gildi ýmsar reglur, samn­ingar og hefðir, líkt og um aðrar orðu­veit­ingar víða í Evrópu. Á Íslandi egi þessar reglur einkum við um opin­berar heim­sóknir for­seta Íslands til hinna nor­rænu ríkja og opin­berar heim­sóknir þjóð­höfð­ingja þeirra til okkar. Einnig er sér­stak­lega tekið fram í frétta­til­kynn­ing­unni að á Íslandi komi orðu­nefnd ekki nærri þessu ferli. Forseti Íslands veiti hina íslensku fálka­orðu en við opin­berar heim­sóknir ytra sé hún að jafn­aði afhent orðu­hafa án þess að for­seti sé nærri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár