Steingrímur harmar viðbrögð við komu Piu

Forseti Alþingis seg­ist harma þá athygli sem koma Piu Kjærs­gaard dró frá full­veld­is­há­tíð­inni á Þing­völlum í gær.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis. Mynd: Úr safni

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, harmar að heim­sókn danska þing­for­set­ans Piu Kjærs­gaard hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíð­ar­fund­inum á Þing­völlum í gær. Þetta kemur fram í nýbirtri frétta­til­kynn­ingu Stein­gríms í dag.

Í til­kynn­ing­unni segir Stein­grímur að hann hafi und­ir­búið þing­fund­inn á Þing­völlum og rætt hann jöfnum öndum við for­sætis­nefnd og for­menn þing­flokk­anna. Sjálf­sagt hafi þótt frá byrjun í ljósi til­efn­is­ins að Pia Kjærs­gaard yrði í sér­stöku hlut­verki á þessum hátíð­ar­fundi sem for­seti danska þings­ins. Henni væri því boðið til lands­ins sem full­trúa gagn­að­ila að full­veld­is­samn­ingnum.[adspot]

Þar að auki seg­ist Stein­grímur harma að heim­sókn Piu hafi verið notuð „til að varpa skugga á hátíð­ar­höldin“ og leyfir sér að trúa því að meint óvirð­ing í garð heim­sókn hennar sé minni­hlut­ar­sjón­ar­mið.

[links]Kjarninn fjall­aði í gær um heim­sókn Piu Kjærs­gaard í til­efni hátíð­ar­fundar Alþingis í gær vegna 100 ára full­veld­is­af­mælis Íslands. Pia er einn stofn­enda Danska þjóð­ar­flokks­ins og leiddi flokk­inn á árunum 1995 til 2012. Hún er einn þekkt­asti stjórn­mála­maður í Danmörku í dag og hefur talað hart gegn fjöl­menn­ingu, inn­flytj­endum og íslam.

Í kjöl­far fréttaum­fjöll­unar um komu Piu síð­ast­lið­inn þriðju­dag til­kynnti þing­flokkur Pírata í gær að hann myndi snið­ganga þing­fund­inn, en flokk­ur­inn sagði enga nauð­syn fyrir komu hennar þar sem engin hefð sé fyrir því að erlendir gestir ávarpi þing­fundi af þessu tagi. Píratar sögðu ákvörð­un­ina einnig ófor­svar­an­lega þar sem Pia væri einn helsti höf­undur og tals­maður útlend­inga­andúðar í Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár