Píratar sniðganga hátíðarþingfund

Þing­flokkur Pírata mun snið­ganga þing­fund á Alþingi vegna ákvörð­unar þings­ins um að velja Piu Kjærs­gaard sem hátíð­ar­ræðu­mann.

Pia Kjærsgaard, forseti danska þingsins, er til hægri á myndinni.
Pia Kjærs­gaard, for­seti danska þings­ins, er til hægri á mynd­inni. Mynd: EPA

Þing­flokkur Pírata hefur ákveðið að snið­ganga hátíð­ar­fund Alþingis á Þing­völlum í dag vegna ákvörðun þings­ins um að bjóða Piu Kjærs­gaard um að ávarpa það. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá þing­flokknum í dag.

Kjarninn greindi frá því í gær að Kjærs­gaard, sem er for­seti danska þings­ins verði hátíð­ar­ræðu­maður á þing­fundi á Þing­völlum í dag í til­efni 100 ára full­veld­is­af­mælis Íslands. [links]Ákvörð­unin hefur vakið sterk við­brögð, en Kjærs­gaard er þekkt fyrir þjóð­ern­is­sinn­aðar skoð­anir og hörð ummæli gegn fjöl­menn­ingu, inn­flytj­endum og íslam.

Samkvæmt til­kynn­ingu Pírata var engin nauð­syn fyrir því að bjóða Kjærs­gaard að ávarpa hátíð­ar­fund­inn í dag þar sem engin hefð sé fyrir því að erlendir gestir ávarpi þing­fundi af þessu tagi. Píratar segja ákvörð­un­ina ófor­svar­an­lega og kalla Kjærs­gaard einn helsta höf­und og tals­mann útlend­inga­andúðar í Evrópu. [adspot]

Í til­kynn­ing­unni segir einnig að sjálf­sagt og eðli­legt sé að fagna tíma­mótum sem þessum, þótt slík hátíð­ar­höld séu vand­með­farin á tímum upp­gangs þjóð­ern­is­hyggju um víða ver­öld. Var­huga­vert sé að gefa þjóð­ern­is­hyggju á nokkurn hátt undir fót­inn við slík til­efni, en íslenska þjóðin eigi betra skilið en það.

Píratar segir að upp­haf­lega hafi staðið til að taka þátt í hátíð­ar­höld­unum og segja megi að þeir hafi flotið sof­andi að feigðar­ósi þar sem per­sóna Piu væri þeim ekki ljós fyrr en við frétta­flutn­ing í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár