Helga Vala krefur Steingrím leiðréttingar

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir for­seta Alþingis hafa farið með rangt mál í frétta­til­kynn­ing­unni sinni í gær um hlut­verk Piu Kjærs­gaard á ald­ar­f­mæli full­veld­is­ins á mið­viku­dag­inn.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar
Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar Mynd: Bára Huld Beck

Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar krefst þess að Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis leið­rétti ummæli sín um við­brögð við hlut­verki Piu Kjærs­gaard á ald­ar­af­mæli full­veld­is­ins. Þetta segir Helga í nýrri stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni.

Kjarninn hefur fjallað um heim­sókn danska þing­for­set­ans Piu Kjærs­gaard í til­efni hátíð­ar­fundar Alþingis í gær vegna 100 ára full­veld­is­af­mælis Íslands. Pia er einn stofn­enda Danska þjóð­ar­flokks­ins og leiddi flokk­inn á árunum 1995 til 2012. Hún er einn þekkt­asti stjórn­mála­maður í Danmörku í dag og hefur talað hart gegn fjöl­menn­ingu, inn­flytj­endum og íslam.

Í kjöl­far fréttaum­fjöll­unar um komu Piu síð­ast­lið­inn þriðju­dag til­kynnti þing­flokkur Pírata að hann myndi snið­ganga þing­fund­inn, en flokk­ur­inn sagði enga nauð­syn fyrir komu hennar þar sem engin hefð sé fyrir því að erlendir gestir ávarpi þing­fundi af þessu tagi. Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gekk einnig út af hátíð­ar­fund­inum á meðan Pia flutti ávarp sitt.

Í gær birti svo Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, frétta­til­kynn­ingu þar sem hann seg­ist harma að heim­sókn danska þing­for­set­ans hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíð­ar­fund­inum, en hann leyfi sér að trúa því að meint óvirð­ing í garð heim­sókn hennar sé minni­hlut­ar­sjón­ar­mið.

Í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni fyrr í dag, sem lesa má hér að ofan, segir Helga Vala Stein­grím fara með rangt mál í frétta­til­kynn­ingu sinni í gær sem og í sér­stöku sendi­bréfi sínu til Piu,þar sem for­set­inn biður hana form­lega afsök­unar. Stein­grími sé ljóst að mót­mæli Helgu sneru ekki að Piu sem full­trúa danskrar þjóðar heldur hennar fram­göngu og hat­urs­orð­ræðu gagn­vart útlend­ingum og flótta­mönnum.

Enn fremur segir Helga að Stein­grímur hafi með rang­færslum sínum kosið að stilla upp þeirri sviðs­mynd að þau sem mót­mæli hat­urs­orð­ræðu og standi með mann­rétt­indum allra séu með því að kasta rýrð á danska þjóð. Hún segir að svo sé ekki og krefst jafn­framt að Stein­grímur leið­rétti ummæli sín án tafar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár