Grikkir krefja Þjóðverja um 279 milljarða evra stríðsskaðabætur

Grísk stjórn­völd hafa krafið Þjóðverja um tæplega 278 milljarða evra stríðs­skaðabætur vegna hernáms nasista í landinu í Seinni heim­styrjöldinni. Þetta kemur fram á vef breska ríkis­útvarpsins BBC, en þetta er í fyrsta skipti sem opinber tala er sett á stríðs­skaða­bæturnar en töluverð umræða hefur átt sér stað að undan­förnu, einkum hjá stjórn­völdum í Grikk­landi, um að gera tilkall til þeirra.

Forsætis­ráðherra Grikk­lands, Alexis Tsipras, hefur þegar kynnt kröfurnar fyrir Angelu Merkel, kanslara Þýska­lands. Krafan er meðal annars byggð á láni sem Nasistar neyddu Grikki til þess að taka, upp samtals 10,3 milljarða evra, uppfært. En saman­lagður kostnaður vegna hernáms Nasista, sem hófst 1941 en lauk með lokum styrjaldarinnar, er áætlaður af grískum stjórn­völdum 278,7 milljarðar evra. Þetta er upphæð sem nemur um 10 prósent af árlegri lands­framleiðslu Þýska­lands.

Grísk stjórn­völd hafa staðið í ströngu undan­farin misseri við að semja um skuldir sínar, sem nema samtals 240 milljörðum evra. Á fimmtudaginn næsta á ríkis­sjóður Grikkja að greiða Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum 448 milljónir evra, en enn þyngri gjald­dagar eru síðan framundan á sumar­mánuðum. Ekki liggur fyrir hvort það takist að endur­semja um skuldirnar, en ljóst er að greiðslu­fall gæti haft alvarleg áhrif fyrir efnahagslíf Grikk­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár