Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Hér eru tíu mikil­vægir hlutir fyrir daginn í dag, en Business Insider tekur reglulega saman lista yfir mikil­vægustu hlutina.


  1. Tveir byssumenn voru drepnir eftir að þeir hófu skothríð á teiknimynda­samkeppni í Texas í Banda­ríkjunum í gærkvöldi. Teiknimynda­samkeppnin snérist um að teikna myndir af spámanninum Múhameð.

  2. Nú þegar björgunar­fólk er að komast að afskekktustu svæðunum í Nepal er búist við því að tala látinna hækki mikið. Eins og er er tala látinna 7.000, og 14 þúsund eru slasaðir.

  3. Tugir eþíópískra innflytjenda í Ísrael særðust og fjöldi var hand­tekinn eftir mótmæli gegn harðræði lögreglu í Tel Aviv í gærkvöldi.

  4. Yfir fjögur þúsund manns var bjargað af bátum í Miðjarðar­hafinu um helgina. Fólkið var allt á leið til Evrópu en var ennþá nálægt ströndum Líbíu.

  5. Útgöngu­banni var aflétt í Baltimore í gær, og fækkað var í liði þjóðvarða sem hafa verið í borginni eftir óeirðir síðustu viku. Óeirðirnar hófust vegna dauða Freddie Gray, sem var 25 ára og lést í haldi lögreglu. Lögreglu­menn hafa nú verið ákærðir vegna dauða hans.

  6. Grikkland og Evrópu­sambandið mjökuðust nær samkomu­lagi um umbætur í Grikk­landi, en þær eru forsendur fyrir því að þeir fái neyðarlán upp á 7,2 milljarða evra.

  7. Konur sem voru frelsaðar úr klóm nígerísku hryðjuverka­samtakanna Boko Haram um helgina hafa lýst hryllingnum sem þær upplifðu í haldi. Margir létust úr hungri og sjúkdómum í haldi samtak­anna.

  8. Vladimír Pútín Rúss­lands­forseti hefur fullgilt tilskipun sem kveður á um að settur verði upp 100 milljarða dala vara­sjóður fyrir Rússland, Kína, Brasilíu, Indland og Suður-Afríku. Sjóðnum er ætlað að verða valkostur við Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinn.

  9. Skip sem sökk um helgina undan ströndum Kosta Ríka var hlaðið 200 tonnum af eitur­efnum sem fóru út í sjóinn. Fólk hefur verið beðið um að veiða ekki og synda ekki í sjónum af þessum sökum, en í ljós hefur komið að aðeins lítið magn af eitrinu fannst í sjónum.

  10. Jemenar sem hafa hlotið herþjálfun í Sádí-Arabíu hafa gengið til liðs við banda­lagið sem undir stjórn Sádi-Araba berst gegn uppreisnar­mönnum í Jemen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár