Vorum ekki undirbúnar fyrir svona harða pólitík

Ungir umhverfis­sinnar stóðu fyrir Sólar­kvarðanum, mæli­kvarða á umhverfis­stefnur stjórn­málaflokka fyrir kosningarnar. Aðstand­endur hans segjast ekki hafa átt von á því að mæta rang­færslum og harðri pólitík stjórnmála­afla vegna þess, en það hafi þurft að grípa til drastískra aðgerða til að gera umhverfis­vernd að kosninga­máli.

Lögðu allt í þetta
Lögðu allt í þetta Tinna og Sigríður brenna báðar fyrir umhverf­is­málum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sex af þeim níu flokkum sem bjóða sig fram til alþingis­kosninga árið 2021 fengu fall­einkunn fyrir umhverfis- og loftslags­stefnu sína ef miðað er við Sólar­kvarða Ungra umhverfis­sinna. Óhætt er að fullyrða að meðlimir flokkanna voru misánægðir með niður­stöðurnar og kvörtuðu ýmsir sáran yfir lágri einkunn. 

„Auðvitað er fólk aldrei ánægt með að fá einkunn sem það telur ekki vera nógu háa, sér í lagi ef það kemur því á óvart,“ segir Tinna Hallgríms­dóttir, formaður Ungra umhverfis­sinna. Einhverjir hafi þó tekið einkunnina til sín og nefnt að um væri að ræða gott spark í rassinn. „Það er auðvitað það sem við viljum, að hvetja öll til að gera betur.“

Vildu setja mestan þunga á loftslagsmálin

Hver flokkur gat fengið allt að 100 stig og var ákveðið að skipta kvarðanum í þrjá undir­flokka, lofts­lagsmál, náttúru­vernd og hringrásar­samfélag. „Við vildum setja mestan þunga á loftslags­málin svo þau gilda 40 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár