Kaupfélag Skagfirðinga hefur hagnast um tíu milljarða á tveimur árum

Afkoma Kaup­fé­lags Skag­firð­inga á árunum 2018 og 2019 var sú besta í rúm­lega 130 ára sögu þess. Í fyrra hagn­að­ist félagið um 1,4 millj­arð króna á nokkrum vikum á fléttu með bréf í Brimi.

Höfuðstöðvar Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki.
Höf­uð­stöðvar Kaup­fé­lags Skag­firð­inga á Sauð­ár­króki. Mynd: Úr safni

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga hagn­að­ist um 4,8 millj­arða króna á árinu 2019. Það er mjög svipað og félagið hagn­að­ist um árið áður þegar hagn­að­ur­inn var 5,1 millj­arðar króna. Hagn­að­ur­inn nemur því um tíu millj­örðum króna á tveimur árum.

Sá munur er þó á að í fyrra var rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magnsliði (EBITDA) 4,8 millj­arðar króna eða 1,8 millj­arði krónum meiri en árið áður. Árið 2018 var nefni­lega 3,3 millj­arða króna hagn­aður af eign­ar­hlutum í félögum en hann var 1,9 millj­arðar króna á síð­asta ári.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Kaup­fé­lags Skag­firð­inga sem birtur var nýverið.

Metafkoma á síðustu árum

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, sam­vinnu­fé­lag með um 1.600 félags­menn, er risa­fyr­ir­tæki á íslenskan mæli­kvarða. Þórólfur Gíslason, kaup­fé­lags­stjóri, hefur leitt félagið um ára­bil sem for­stjóri og var afkoma félags­ins á árinu 2018 sú besta í rúm­lega 130 ára sögu félags­ins. Afkoman í fyrra var, líkt og áður sagði, litlu síðri.

Upp­bygg­ing kaup­fé­lags­ins hefur verið veru­lega umfangs­mikil á und­an­förnum árum, en í lok árs í fyrra var eigið fé félags­ins 40 millj­arðar króna.

Eignir Kaup­fé­lags Skag­firð­inga juk­ust umtals­vert á síð­asta ári, eða um átta millj­arða króna, og voru metnar á 70 millj­arða króna um liðin ára­mót.

Á meðal við­skipta félags­ins sem vöktu veru­lega athygli á árinu 2019 voru kaup dótt­ur­fé­lags­ins FISK Seafood á hlut í Brimi þann 18. ágúst. Strax í kjöl­far þeirra við­skipta bætti FISK Seafood við sig um tvö pró­sent hluta­fjár til við­bótar og eign­að­ist þannig alls 10,18 pró­sent hlut fyrir ríf­lega 6,6 millj­arða króna. Þann 8. sept­em­ber seldi FISK Seafood Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­vík­ur, sem nátengt er eign­ar­haldi Brims, þessa sömu hluti í félag­inu fyrir tæp­lega átta millj­arða króna. Hagn­að­ur­inn var um 1,4 millj­arðar króna á örfáum vikum.

Risi í sjávarútvegi og á meðal stærstu eigenda Morgunblaðsins

FISK Seafood, sem heldur á 5,5 pró­sent heild­ar­kvót­ans. FISK á 32,9 pró­sent í Vinnslu­stöð­inni í Vest­manna­eyjum sem er með 4,5 pró­sent heild­ar­afla­hlut­deild. Þá eign­að­ist FISK allt hlutafé í Soff­an­ías Cecils­son hf. síðla árs 2017, en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,3 pró­sent kvót­ans. Sam­tals nemur heild­ar­kvóti þess­ara þriggja ótengdu aðila rétt yfir ell­efu pró­sent.

Kaup­fé­lagið hefur tekið þátt á skráðum hluta­bréfa­mark­aði, meðal ann­ars með því að eiga um tíma hlut í bæði Högum og Brim. Þá á Kaup­fé­lag Skag­firð­inga 19,45 pró­sent hlut í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Í við­tal­i við Morg­un­blaðið í apríl í fyrra var Þórólfur spurður um það hvað varð til þess Kaup­fé­lagið ákvað að fjár­festa í fjöl­miðla­rekstri. „Við lítum þannig á að það sé mik­il­vægt að til staðar séu vand­aðir fjöl­miðlar sem ekki eru rík­is­rekn­ir. Ríkið er fyr­ir­ferð­ar­mikið á þessum mark­aði sem er ekki hollt til lengd­ar, og í raun mjög umhugs­un­ar­vert, enda þörfin ekki eins brýn og áður var. Ríkið rak einu sinni dreifi­kerfi á kart­öfl­um, en er hætt því sem dæmi. Þessi mikli rekstur rík­is­ins á fjöl­miðlum býður upp á ákveðna hættu. Að fjöl­mið­ill­inn verði ríki í rík­is­kerf­inu og leiði skoð­ana­mynd­un. Við þekkjum það í löndum þar sem ekki er virkt lýð­ræði, að þar eru rík­is­fjöl­miðlar mjög fyr­ir­ferð­ar­mikl­ir.“

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga á líka félög á borð við Esju Gæðafæði og Vogabær, auk þess sem að Kaup­fé­lagið er umsvifa­mikið í land­bún­aði. Þorri starf­semi þess fer fram á Sauð­ár­króki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár