DR birtir áhrifamikið drónamyndband af eyðileggingunni á Gasa

Danska ríkis­útvarpið (DR) birtir áhrifa­mikið myndband á Fésbókar-síðu sinni af eyði­leggingunni sem blasir við á Gasa eftir sprengju­árásir ísraelska hersins á borgina sem fram fóru síðastliðið sumar.

Á mynd­bandinu má sjá hvernig heilu hverfin hafa verið jöfnuð við jörðu, en mynd­bandið sem DR birtir er tekið úr dróna. Sjón er sögu ríkari.

Loft­árásir Ísraela á Gasa hófust 8. júlí, eftir að þrír ísraelskir drengir voru myrtir af liðs­mönnum Hamas, og stóðu yfir í sjö vikur. Á sama tíma hófust eldflauga­árásir Palestínu­manna á Gasa yfir til Ísrael. Talið er að yfir 2.200 manns hafi fallið í árásunum, langflestir Palestínu­menn.



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár