Yfirlýsing: Eigandi Laugarásvídeó ósáttur við umfjöllun um kynferðisbrot

Gunnar Jósefsson sendir út yfir­lýsingu vegna umfjöllunar Stundarinnar.

Gunnar Jósefsson, eigandi Laugarás­vídeó, harmar umfjöllun Stundarinnar um vídeó­leigu sína og kynferðis­glæpi sem framin voru af fyrr­verandi starfs­mönnum leigunnar. Hann vísar ásökunum sonar síns á bug og segir að sonur sinn sé „augljós­lega veikur“. Auk þess hótar hann að sækja rétt sinn á hendur útgefanda, ritstjórn, blaða­manni og viðmælendum fyrir dómstólum. 

Stundin greindi frá því í nýjasta tölublaði að hópur kynferðis­brotamanna hefði verið viðloðandi Laugarás­vídeó. Sonur Gunnars Jósefs­sonar tilkynnti meint kynferðis­ofbeldi föður síns til lögreglu og barna­verndar­yfirvöld fjarlægðu dóttur Gunnars af heimili sínu. Ung kona lýsir hræðilegri reynslu sem hún segist hafa orðið fyrir í bakherbergi leigunnar þegar hún var sex ára gömul og í pössun hjá Gunnari.

Á leigunni störfuðu tveir dæmdir kynferðis­glæpamenn. Í yfir­lýsingu sinni segist Gunnar hafa vikið þeim báðum úr starfi. „Öðrum þeirra, Herði, vildi ég rétta hjálpar­hönd enda voru flest sund honum lokuð eftir að dómur gékk í máli hans. Var hann sakfelldur fyrir áreitni og blygðunarsemis­brot í garð ungra stúlkna. Eftir heiftúðuga umræðu á vefnum www.bland.is sá ég mér ekki annað fært að draga þá hjálpar­hönd til baka,“ skrifar eigandinn. 

Hér að neðan má sjá yfirlýsingu Gunnars í heild:

Yfir­lýsing Gunnars Jósefs­sonar - vegna fjölmiðla­umfjöllunar Stundarinnar

Sú ákvörðun ritstjórnar Stundarinnar og blaða­mannsins Jóhanns Páls Jóhanns­sonar að fjalla um persónu mína og fyrirtæki eins og gert var í blaða­grein í 8. tölublaði, 1. árgangs Stundarinnar sem gefið var út í ágúst 2015 er hörmuð.

Ég hef rekið Laugarás­vídeó í þrjá áratugi og hjá mér hefur starfað fjöldi starfs­manna, fleiri en ég hef tölu á. Fram­setning greinar blaða­manns er á þá leið að vídeó­leigan hafi verið skálka­skjól kynferðis­afbrota­manna; og verður ekki annað ráðið en allt slíkt hafi verið með vitund og vilja eiganda. Ég tek ekki ábyrgð á gjörðum annarra og þau brot sem lýst eru í greininni viðkoma mér ekki, né njóta þau samþykkis míns. Tveir menn eru nafn­greindir í greininni sem starfs­menn vídeó­leigunnar og hafa hlotið dóma fyrir kynferðis­brot. Ég vék þeim báðum úr starfi.

Öðrum þeirra, Herði, vildi ég rétta hjálpar­hönd enda voru flest sund honum lokuð eftir að dómur gékk í máli hans. Var hann sakfelldur fyrir áreitni og blygðunarsemis­brot í garð ungra stúlkna. Eftir heiftúðuga umræðu á vefnum www.bland.is sá ég mér ekki annað fært að draga þá hjálpar­hönd til baka. Að því sögðu þá teldi ég verðugt verkefni fyrir blaðamann Stundarinnar að finna atvinnu­rekendur allra dæmdra kynferðis­brotamanna og fjalla um þá með sömu formerkjum og gert var um fyrirtæki mitt. Þá getur blaða­maður svarað þeirri áleitnu spurning hvernig fara skuli með fólk sem afplánað hefur dóm og tekið út refsingu; og hvort þeim sé yfirhöfuð stætt að snúa aftur út í samfélag okkar hinna. Sérstak­lega, ef haft er í huga, að hann telur þau örlög að standa vaktir í söluturni of góð fyrir dæmda menn.

Grein blaða­mannsins Jóhanns miðar öll að því að gera fyrirtæki mitt tortryggilegt; þannig er meira að segja tínt til og staðhæft að mér hafi tekist að stýra umfjöllun fjölmiðla, og tryggt velvild yfirvalda, með kerfis­bundinni dreifingu á fríspólum til ráðandi afla í samfélaginu. Mikill þykir mér máttur sjoppu­eigandans.

Umfjöllun blaða­manns um mína persónu og fjölskyldulíf mitt er ekki einungis ósmekkleg heldur röng. Hann leyfir sér að hafa eftir ummæli sonar míns sem er augljós­lega veikur og frábið ég mér allar ásakanir hans í greininni. Hafi blaða­maður undir höndum opinber, trúnaðar­skjöl verður hann sjálfur að svara því til hvers vegna hann kýs að gera þau opinber. Heimili manna er friðhelgt og þó eitthvað gangi á inni á einu heimili þá gefur það ekki tilefni þess að viðra vanda­málin frammi fyrir alþjóð. Tel ég rétt að dóttur mín sé beðin afsökunar á því að hafa verið dregin inn í umræðuna án þess að hafa sér neitt til sakar unnið. Með þessari yfir­lýsingu læt ég fylgja afrit af sakar­vottorði mínu sem er hreint og tekur af öll tvímæli.

Það er forkastanlegt að gera mig að kynferðis­brotamanni í þeim eina tilgangi að selja fleiri blöð og auglýsingar. Ég krefst þess að vera beðinn afsökunar og áskil mér að sækja rétt minn á hendur útgefanda, ritstjórn, blaða­manni og viðmælendum fyrir dómstólum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár