Einangrun stytt í fimm daga frá og með mánudegi

Einangrun þeirra sem smitast af kórónu­veirunni verður 5 dagar í stað 7 daga frá og með mánudegi, samkvæmt reglugerð frá heilbrigðis­ráðherra sem þá tekur gildi.

Rúmlega tíu þúsund manns hér á landi eru í einangrun um þessar stundir. Einhverjir þeirra koma til með að sleppa fyrr úr einangruninni en áætlað var er ný reglugerð tekur gildi á mánudag.
Rúmlega tíu þús­und manns hér á landi eru í ein­angrun um þessar stundir. Ein­hverjir þeirra koma til með að sleppa fyrr úr ein­angr­un­inni en áætlað var er ný reglu­gerð tekur gildi á mánu­dag. Mynd: EPA

Ákveðið hefur verið að stytta einangrun vegna kórónu­veirusmits úr sjö dögum í fimm, með reglugerð heilbrigðis­ráðherra sem tekur gildi á mánudaginn, 7. febrúar.

Fram kemur í tilkynningu frá heilbrigðis­ráðuneytinu að sem fyrr verði þó heimilt að fram­lengja einangrun ef þörf krefur samkvæmt læknis­fræðilegu mati.

Á mánudag taka einnig gildi breytingar sem varða sóttkví og smitgát. Þær felast í því að þeir sem hafa fengið COVID-19 sýkingu, sem staðfest hefur verið með PCR-prófi síðustu 7-180 daga, þurfa ekki lengur að fara í sóttkví né smitgát.

Allir fá skilaboð í gegnum Heilsuveru þegar einangrun lýkur

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að þeir sem losna úr einangrun þurfi að hafa verið hita­lausir í að minnsta kosti sólar­hring og að fylgja skuli reglum um smitgát í að minnsta kosti tvo daga eftir að einangrun lýkur.

Þá segir einnig að reglu­gerðin gildi einnig um þá sem verða í einangrun á mánudaginn, er hún tekur gildi.

„Það felur í sér að henni lýkur hjá þeim sem þegar hafa verið í einangrun í 5 daga eða lengur þegar reglu­gerðin tekur gildi 7. febrúar. Allir sem eru að ljúka einangrun frá skilaboð þess efnis í gegnum Heilsu­veru og þar með en ekki fyrr lýkur einangruninni,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Í dag eru alls 10.373 einstaklingar í einangrun vegna COVID-19 hér á landi, samkvæmt upplýsingum á tölfræðivef yfirvalda um stöðu faraldursins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár