Meniga fær 1,5 milljarða króna fjármögnun

Meniga hyggst nýta féð til þess að efla sölu- og markaðs­teymi sitt og leggja áherslu á vöruþróun og nýsköpun.

Georg Lúðvíksson forstjóri og meðstofnandi Meniga.
Georg Lúð­víks­son for­stjóri og með­stofn­andi Meniga. Mynd: Aðsend

Fjár­tækni­fyrirtækið Meniga hefur tryggt sér eins og hálfs milljarðs króna fjár­mögnun. Samkvæmt tilkynningu frá fyrir­tækinu var fjár­mögnunin leidd af hollenska fjár­festinga­sjóðnum Velocity Capital Fintech Futures og íslenska fjár­festinga­sjóðnum Frumtak Ventures.

Aðrir þátt­takendur voru sænski fjár­festinga­sjóðurinn Industrifonden, breski sjóðurinn UK Future Fund og bankarnir UniCredit, Swedbank, BPCE og Íslands­banki. Þessir bankar og fjár­festinga­sjóðir eiga það sameiginlegt að hafa verið lengi í hópi eigenda og viðskipta­vina Meniga.

Samkvæmt tilkynningu frá Meniga hefur heims­faraldurinn valdið því að spurn eftir stafrænni banka­þjónustu hefur stóraukist um heim allan. Féð sem nú fæst frá fjár­festum verður nýtt til þess að efla sölu- og þjónustu­teymi fyrir­tækisins og áhersla verður lögð á vöruþróun og nýsköpun.

„Sérstak­lega verður horft til þróunar og markaðs­setningar á vörum þar sem fjártækni og umhverfismál koma saman. Á meðal nýrra vara Meniga er umhverfis­varan Carbon Insight en hún gerir bönkum mögulegt að valdefla viðskipta­vini sína í umhverfis­málum. Með Carbon Insight geta notendur netbanka séð áætlað kolefnis­spor á einka­neyslu sinni og gripið til aðgerða til lágmarka það. Vörunni er ætlað að hjálpa fólki um allan heim að berjast við loftlags­breytingar,“ segir í tilkynningu fyrir­tækisins.

Haft er eftir Georg Lúðvíks­syni forstjóra og meðstofnanda Meniga að mikil ánægja sé með áfram­haldandi stuðning fjárfesta. „Nýtt fjármagn mun gera okkur kleift að markaðs­setja vörur okkar til væntanlegra viðskipta­vina um allan heim. Carbon Insight er gott dæmi um vöru sem mikill áhugi er á en að minnsta kosti fjórir bankar í jafnmörgum löndum munu taka hana í gagnið á þessu ári og við sjáum vaxandi eftir­spurn eftir henni hjá bönkum um allan heim,“ segir Georg.

Í frétta­tilkynningu Meniga er einnig haft eftir Svönu Gunnars­dóttur, framkvæmda­stjóra Frumtak Ventures, að sjóðurinn hafi frá upphafi verið sann­færður um að Meniga hefði mjög spennandi vaxtar­möguleika á sviði fjártækni.

„Meniga hefur fest sig í sessi sem öflugur braut­ryðjandi í fjár­tækni­lausnum fyrir helstu banka um allan heim, en sá markaður er nú í örum vexti sem aldrei fyrr,“ er haft eftir Svönu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár